Heilbrigðismál - 01.07.2007, Qupperneq 33

Heilbrigðismál - 01.07.2007, Qupperneq 33
STAÐREYNDIR UM ÓBEINAR REYKINGAR I tóbaksreyk eru nokkur þúsund efni og efnasambönd. Uppruni þeirra er margvfslegur: Þetta eru efni úr tóbaks- jurtinni sjálfri, efni notuð við ræktun hennar, efni notuð við vinnslu plönt- unnar og efni notuð til að auka áhrif nikótíns. Fjölmörg þessara efna og efna- sambanda eru hættuleg heilsu manna, þar á meðal eru nokkrir tugir krabba- meinsvaldandi efna. Rúm hálf öld er slðan fyrstu sannanir um skaðleg áhrif reykinga á heilsu komu fram og hafa þau margoft verið staðfest síðan. Áratugir eru liðnir frá því að menn gerðu sér grein fyrir því að reykingar þungaðra kvenna hafa skaðleg áhrif á fóstur. Styttra er slðan vísbendingar komu fram um heilsuskaða hjá þeim sem ekki reykja sjálfir en búa við tóbaks- reykmengað andrúmsloft á heimili eða I vinnu. Á undanförnum árum hefur komið fram fjöldi rannsókna sem sýna að slfkar óbeinar reykingar eru skaðlegar heilsunni og geta auk ýmiss konar óþæg- inda og vanlíðunar valdið mörgum sömu sjúkdómum og hljótast af því að reykja. Óþægindi í augum, nefi og önd- unarfærum eru algengustu og best staðfestu heilsufarsáhrif óbeinna reyk- inga. Sýnt hefur verið fram á að tóbaks- reykur og þau efni og efnasambönd sem hann inniheldur, hafa áhrif á starfsemi bifhára I öndunarvegi og draga úr hreinsun slíms og óhreininda, m.a. reykagna úr öndunarvegi og lungum. Þetta getur valdið því að þeir sem verða fyrir óþeinum reykingum reglulega eigi frekar á hættu að fá langvinn öndunar- færaeinkenni, svo sem hósta, slímupp- gang og mæði. Einnig hefur verið sýnt fram á að þeir sem verða fyrir tóbaks- reyk heima eða I vinnunni séu 140-60% meiri hættu á að fá astma en þeir sem ekki verða fyrir tóbaksreyk. Fólk sem er með astma fær ekki aðeins alvarlegri astmaköst ef það verður fyrir tóbaksreyk heldur llður þvl verr og þarf oftar að leggjast inn á sjúkrahús. Alþjóða krabbameinsrannsóknastofn- unin, IARC, komst nýlega að þeirri nið- urstöðu að óbeinar reykingar geti aukið hættu á lungnakrabbameini um 20- 30%. Tengsl eru milli reykmagnsins og hættu á lungnakrabbameini, rétt eins og hjá reykingamönnum. Einnig benda rannsóknarniðurstöður til þess að óbeinar reykingar geti aukið hættuna á leghálskrabbameini og brjósta- krabbameini. Margar rannsóknir hafa sýnt að óbeinar reykingar auka hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum hjá þeim sem búa við reykingar heima eða I vinnunni. Þessar rannsóknir benda til að | ef einstaklingur sem reykir ekki á maka ° sem reykir eða vinnur I reykmettuðu <§ umhverfi eykst hættan á að hann fái hjartaáfall um 25-30%. Aðeins lltinn reyk þarf til að hafa áhrif á storknun blóðs og myndun blóðtappa. Langtíma- áhrif koma fram I æðakölkun. (Ijós hefur komið að fólk sem verður reglulega fyrir óbeinum reykingum er I tvöfalt meiri hættu á að fá heilablóð- fall en þeir sem verða ekki fyrir óbeinum reykingum. Nýleg rannsókn sýnir einnig að konur sem urðu fyrir óbeinum reyk- ingum á heimili sfnu voru í 50% meiri hættu á að fá heilablóðfall í fyrsta sinn en hinar sem ekki önduðu að sér reyk í heimahúsum. Börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir óbeinum reykingum. Tóbaksreykur minnkar lungnavirkni þeirra og þau verða viðkvæmari fyrir sýkingum f önd- unarfærum, svo sem lungnabólgu, berkjubólgu og eyrnabólgu. Óbeinar reykingar hafa jafnframt verið tendgar minni vexti lungna (lungun verða ekki Krabbameinsfélagið fagnaði stórum áfanga í baráttunni fyrir reyklausu umhverfi 1. júní með því að flagga við hús sitt í Skógarhlíð, en félagið hefur hvatt til reykleysis á veitinga- og skemmtistöðum í áratugi. Margir virðast vera sammála um mikilvægi þessa banns. Ómar Ragnarsson frétta- maður segir á bloggsíðu sinni: „Þetta mál snýst um frelsi, ekki frelsi reykingamannsins til að reykja ofan í hvern sem er, heldur frelsi þess sem ekki reykir að fá að vera í friði fyrir reyknum og rækta heilsu sína." eins stór og í jafnöldrum sem búa ekki við reyk heima við). Einnig valda óbeinar reykingar einkennum eins og hósta og blístri í öndunarfærum. Börn reykinga- fólks fá líka oftar astma en börn þeirra sem reykja ekki og óbeinar reykingar auka fjölda og þunga astmakastanna. Ófædd börn verða fyrir óbeinum reykingum ef móðir þeirra reykir eða ef reykt er umhverfis þungaða móður. Lítil fæðingarþyngd og fyrirburafæðing er algengari ef móðirin hefur orðið fyrir óbeinum reykingum á meðgöngu og hættan eykst eftir þvi sem óbeinu reyk- ingarnar eru meiri. Einnig hefur verið bent á að vöggudauði sé algengari ef barn verður fyrir óbeinum reykingum. Margar rannsóknir benda til þess að óbeinar reykingar á vinnustöðum séu skaðlegar heilsu fólks. Sýnt hefur verið fram á að fólk sem vinnur á börum og veitingahúsum en reykir ekki sé með svipaða þéttni nikótíns í blóði og fólk sem reykir daglega. ( rannsókn sem gerð var i Kaliforniu kom fram að einum mánuði eftir reyk- ingabann tók gildi á veitingastöðum höfðu einkenni í öndunarfærum minnkað um 60% og óþægindi um 80%. Lungnavirkni hafði einnig aukist nokkuð. Þessar rannsóknarniðurstöður sýna að það að útiloka óbeinar reykingar úr umhverfi starfsmanna hefur mjög fljótt jákvæð áhrif á heilsu og llðan og fækki ótímabærum dauðsföllum. Samantekt þessi er byggð á grein- argerð með lagafrumvarpi um breyting- ar á lögum um tóbaksvarnir sem tóku gildi 1. júní 2007. HEILBRIGÐISMAL 1/2007 33

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.