Samtíðin - 01.06.1940, Side 10

Samtíðin - 01.06.1940, Side 10
6 SAMTIÐIN til vill í 100 ái\ Þar á að vera liægt að koma fyrir kenslu í ýmsum nýj- um greinum, svo sem hagfræði, verslunarfræði og náttúruvísindum. Enn fremur er gert ráð fvrir kenn- aradeild. Er þess að vænta, að |>ess- ar nýju deildir bætist við á næstu 10—20 árum, og verður lnisið þá fullskipað. — Eruð þér ekki hjartsýnn á framtið Háskóla íslands og þar með íslenskrar vísindastarfsemi ? spvr ég dr. Alexander að lokum. Ég vona, að háskólinn verði þjóð vorri til blessunar á ókomn- um öldum og lyfíistöng til livers konar framfara, hæði í andlegum og efnalegum skilningi, þroski manndóm hennar og sjálfstæði og stuðli að því, að hér á landi húi vel mentuð þjó.ð, sem notfæri sér vís- indalega þekkingu á öllum sviðum, er nauðsynleg revnast til frama og þróunar. IÐ NYJA háskólahús vort er veglegasta stórhýsi, sem reisl Iiefur verið hér á landi og þannig sett, að það er veruleg bæjarprýði i höfuðstað landsins. Gerl er ráð fvrir öðrum stúdentagarði og kenn- arabústöðum í nánd við liáskólann, svo að þarna mun í framtiðinni risa myndarleg húsaþyrping, sem öll þjóðin á vonandi eftir að iíta til með virðingu og velvild. Yið svo stórbætt skilyrði er þess að vænta, að háskólinn eflist hrátt lil meiri dáða en unt var að vænta af hon- um i þröngbýlinu við Austurvöll. Er vonandi, að þangað veljist jafnan dugandi starfsmenn, er verði hinu veglega hú'si samboðnir. ÞEIR VITRIJ ----------------------SÖGÐU: Rætur mentunarinnar eru beiskar, en ávextir hennar eru sætir. — Aristoteles. Mentun er prýði í meðlætinu og skjól og skjöldur í mótlætinu. — Sami höfundur. Þeir einir, sem eru mentaðir, eru frjálsir. — Epictetus. Mentun er fjársjóður, og menn- ingin mun aldrei líða undir lok. — Petronius. Öfund á sér aldrei hvíldardag. — Francis Bacon. Öfund og hræðsla eru þær einu ástríður, sem engin ánægja er sam- fara. — C. Collins. Enginn máður mun auðgast á öfund. — Draxe. Menlaður maður hlýtur einhvern tíma að komast að raun um, að það er fávíslegt að öfunda aðra. — Emerson. Lifandi vitleysa er betri en dautt snildarverk. — Bernard Shaw. Frægðin er þorsti æskulýðsins. — Byron. Stjórnmálamenn eru hættulegustu þrælar mannkynsins, og þar af leið- andi þeir menn, sem mestar gætur verður að hafa á, því að annars má ætla, að þeir vinni þjóðunum meira tjón en skyldi. — X. Margir stjórnmálamenn virðast vinna í þeirri góðu trú, að þegnarnir séu til ríkisins vegna (þ. e. þess flokks, er fer með völd í þann og þann svip- inn), en ríkið ekki vegna þegnanna. — Rödd 20. aldarinnar.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.