Samtíðin - 01.09.1947, Side 7

Samtíðin - 01.09.1947, Side 7
SAMTiÐIN September 1947 Nr. 135 14. árg., 7. hefti SAMTÍÐIN kemur mánaðariega, nema i janúar og ágúst. Árgjaldið er 2U kr. og greið- ist lyrirl'ram. Áskrift getur úyrjað hvenær sem er. Úrsögn er bundin við aramót. i-iitstjóri og útgeíandi: Sigurður Skúiason magister, simi 2526, pósthólf 75. Áskriítar- gjöidum veitt móttaka i Bókaverzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1, Bókabúð Aust- urbæjar, Laugaveg 34, og á Bræðraborgarstig 29. Prentuð i Féiagsprentsmiðjunni. SLENDINGAR hafa löngum unnað bók- menntum, og- lestur bóka hefur lengst af verið höfuðskemmtun þeirra. Því má ætla, að ýmsum þyki fróðlegt að kynnast því, sem hinn vitri menntamaður, Kínverj- inn Lin Yutang, segir um lestur. Hér verða endursagðar nokkrar setningar úr grein hans um listina að lesa: Lestur, eða sú nautn, sem bækur veita, hefur jafnan verið talinn til þess hugð- næmasta, er menningin heimilar mönnum að njóta. Slíkt er í hávegum haft og litið öfundaraugum af þeim, sem sjaldan Unna sér slíkra sérréttinda. Þetta er auðskil- ið, þegar borinn er saman munurinn á lífi þess manns, sem aldrei lítur í bók, og hins, sem iðkar lestur. Sá, sem ekki legg- ur það í vana sinn að lesa, er fjötraður af nánasta umhverfi sínu, að því er snertir tíma og rúm. Líf hans er lagt í ákveðnar, vanabundnar skorður. Hann verður að láta sér nægja að umgangast og ræða við fáeina vini og kunningja, og hann sér ekki ann- að en það, sem við ber í kringum hann. Úr þessari prísund á hann sér engrar út- göngu auðið. En jafnskjótt og hann tekur sér bók í hönd, opnast honum nýr heimur, og sé þar um góða bók að ræða, er hann á sömu stundu kominn í samfélag við einn af mestu mælskumönnum veraldarinnar. Þessi málsnillingur gerist síðan leiðsögu- maður hans og fer með hann inn í nýstár- legt land eða til annarlegs tímabils. Stund- um trúir hann honum fyrir hörmum sínum eða ræðir við hann einhverja þá lífsskoðun eða sjónarmið, sem lesandinn er gersam- lega ófróður um. Fornaldarhöfundur veit- ir honum samfélag við anda löngu horf- innar aldar, og þegar hann les meira, fer hann að mynda sér skoðun um útlit hins forna höfundar og hvers konar maður hann hafi verið .... Það ætti auðvitað að vera öfundarefni því fólki, sem fjötrað er viðjum líkama síns, að eiga þess kost að lifa tvær klukkustundir af hverjum tólf í aunarlegri veröld og gleyma þar með annríki líðandi stundar. Slík breyting á umhverfi er vissulega sambærileg við ferðalag, hvað sálræn áhrif snertir. En hér kemur einnig fleira til greina. Les- andinn berst ávallt inn á svið hugsunar og íhygli. Enda þótt bók fjalli um atburði úr efnisheiminum, er ærinn munur á því að sjá þá atburði gerast sjálfur eða vera þátt- takandi í þeim og hinu að lesa um þá í bókum, því að þá öðlast þeir ávallt ákveðna mynd, og lesandinn verður óháður á- horfandi. Það lesmál er því hollast, sem vekur okkur til umhugsunar, en ekki hitt, sem eingöngu fjallar um atburðaröð. Ég lít svo á, að öllum þeim ókjörum af tíma, sem varið er til þess að háma í sig blaðales- mál, sé alls ekki varið til lestrar, því að venjulegir blaðalesendur hugsa mestmegn- is um að forvitnast um fregnir af atvikum og viðburðum, sem eru fjarri því að þjálfa hugsunina. Ég álít, að skáldið Huang Shanku hafi skýrgreint allra manna bezt, í hvaða tilgangi menn eigi að lesa. Hann komst þannig að orði: „Námsmaður, sem ekki hefur litið í bók r þrjá daga, verður þess var, að ræða hans er orðin gersneydd öllum hljómif er orðin bragðlaus) og and- lit hans verður viðurstyggilegt á að líta (í speglinum).“ Það, sem hann á við, er, að lestur veiti manni vissan yndisþokka og hugðnæman blæ, sem hefur í sér fólg- inn gervallan tilgang lestrarins, og því

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.