Fréttablaðið - 24.12.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 24.12.2009, Síða 8
8 24. desember 2009 FIMMTUDAGUR FÓLK „Þetta var allt öðruvísi upp- lifun,“ segir Eydís Rún Jónsdóttir. Hún eyddi síðustu jólum í borginni Feira de Santana í Brasilíu, þar sem hún var skiptinemi. „Við sett- um upp jólatré í byrjun desember en eftir það var eiginlega enginn jólaundirbúningur hjá fjölskyld- unni fyrr en á aðfangadag. Þá fórum við í matarboð til frænku minnar þarna úti þar sem stórfjölskyldan kom öll saman,“ segir hún. Ekki mátti hefja hátíð- arhöldin fyrr en á miðnætti. „Allir mættu með lítinn pakka, dreginn var miði og hver og einn fékk eina gjöf. Svo var sungið og spilað á harmonikku fram eftir nóttu; það var steikjandi hiti enda hásumar.“ Eydís tók sig þó til á Þorláks- messu, þegar fjölskyldan henn- ar var farin að sofa, og skreytti húsið að innan. „Það var nokkuð sem þau höfðu aldrei upplifað, þau hágrétu og fannst þetta alveg æðislegt.“ Eydís segir marga ætt- ingjanna hafa ferðast í marga klukkutíma til að eyða jólunum saman. „Þetta snerist meira bara um kærleikann og að njóta tímans saman, ekkert jólastress eins og hér á Íslandi.“ Sandra Espersen bjó í Abú Dabí í Sameinuðu arabísku furstadæm- unum jólin 2007 þar sem hún vann sem flugfreyja. „Þar eru þetta bara venjulegir dagar og ekk- ert sérstakt. Maður kemst ekki í mikla jólastemningu. Það var samt haldið upp á íslamska nýja árið um svipað leyti, og það voru nokkrar seríur uppi hér og þar,“ segir Sandra. Hún bjó með tveimur íslensk- um stelpum sem störfuðu einnig sem flugfreyjur. „Við báðum um að vera að vinna saman yfir jólin. Við gátum ekki hugsað okkur að ein yrði í Pakistan og önnur föst í Abú Dabí og sú þriðja enn ann- ars staðar. Við fengum að fara til Dublin þar sem okkur hafði verið sagt að jólastemningin væri góð.“ Það reyndist þó öðruvísi en þær höfðu vonað. „Það var lokað alls staðar klukk- an sex svo við enduðum þrjár í náttfötum á hótelherberginu með hamborgara, franskar og míní- barinn. Þetta voru eftirminnileg jól, en það er ekkert betra en jólin sem við höldum hérna heima.“ thorunn@frettabladid.is Jól á framandi slóðum Margir Íslendingar eyða jólunum erlendis. Fréttablaðið ræddi við tvær ungar konur sem hafa eytt jólunum í framandi umhverfi, fjarri fjölskyldu og vinum á Íslandi. MEÐ FJÖLSKYLDUNNI Eydís með hluta fjölskyldunnar í Brasilíu. Sumir ferðuðust í marga klukkutíma til að geta eytt kvöldinu með fjölskyldunni. UM JÓLIN Ekki er jólalegt um að lítast í Abú Dabí í desember. AÐFANGADAGUR Karen, Svanhvít og Sandra í vinnunni á aðfangadag. Á JÓLANÓTT Stórfjölskylda Eydísar kom saman og hóf hátíðarhöldin á miðnætti. Þá var sungið og spilað á harmonikku fram eftir nóttu. 1 Í kringum lög hvers á að búa til söngleik í Borgarleikhúsinu? 2 Hver samdi leikritið Hart í bak sem verður sýnt í sjónvarp- inu á jóladag? 3 Hvaða dönsku liði stýrir Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknatt- leik? SVÖR Á SÍÐU 38 ALÞINGI Til stendur að afgreiða breytingar á lögum um rannsókn Alþingis á hrun- inu á þingfundi á mánudag. Steinunn Val- dís Óskarsdótt- ir, formaður allsherjarnefnd- ar, segir sam- komulag þar um hafa verið gert við formenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Hreyfingin er andvíg fyrirhug- uðum breytingum sem fjalla um meðferð þingsins á skýrslu Rann- sóknarnefndar Alþingis. Rannsóknarfrumvarpið og Icesave eru einu málin sem ráð- gert er að þingið fjalli um milli hátíða. - bþs Frumvarp um hrunsrannsókn: Verður afgreitt milli hátíðanna STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Mjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær OPIÐ TIL HÁDEGIS Í DAG Jólakveðja Starfsfólk Nettó VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.