Fréttablaðið - 24.12.2009, Qupperneq 34
24. DESEMBER 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● kirkjan
Hjálpræðisherinn í Kirkjustræti 2 í Reykjavík verður með jóla-
boð og áramótaveislu fyrir alla sem vilja koma.
„Við erum með jólaboð í kvöld, aðfangadag, sem er nokkuð
þekkt en í það koma að jafnaði í kringum 150 manns að borða.
Þetta er mjög blandaður hópur fólks sem kemur, ekki bara þeir
sem búa á götunni heldur líka þeir sem eru einmana og vilja vera
í góðum félagsskap um jólin,“ segir Anne Marie Reinholdtsen,
major og yfirforingi Hjálpræðishersins, og tekur fram að jóla-
boðið hefjist klukkan sex í kvöld.
Á morgun, jóladag, verður líka opið hús á hádegi. „Við verðum
með jólaguðsþjónustu klukkan tvö, rétt í framhaldi af matarboð-
inu. Það má segja að allt sem við höfum fram að færa af gjöfum
og mat verði gefið,“ segir Anne Marie.
Hjálpræðisherinn verður einnig með opið hús á Eyjaslóð 7 á
gamlárskvöld. Það hefst klukkan átta og stendur fram yfir mið-
nætti. Aðspurð segir Anne Marie áfengisdrykkju stranglega
bannaða innandyra. „En við neitum engum um inngöngu þó hann
hafi fengið sér í aðra tána. Við erum vön því að fólk sé í mis-
jöfnu ástandi þegar það kemur, en samt reyna flestir að vera í
góðu lagi. Sumir fá sér kannski aðeins neðan í því til að þora að
mæta,“ segir Anne Marie og bætir við að sjaldan komi upp leið-
indi vegna drykkju, þvert á móti sé stemningin ávallt fín og ríkj-
andi gleði. „Ég man eftir því að í fyrra eða hittifyrra kom einn
maður að máli við mig og sagðist bara líða aftur eins og krakka.
Og það var satt hjá honum. Þetta var svona stemning sem maður
mundi eftir sem barn,“ segir Anne Marie.
Að hennar sögn er fólk úti um allan bæ sem finnur til ein-
manaleika og þeir sem leiti á náðir Hjálpræðishersins séu aðeins
hluti þess. Margir þori þó ekki að kíkja eða geti það einfaldlega
ekki sökum veikinda. Hins vegar verði góður félagsskapur og
matur í boði fyrir þá sem sjá sér fært að mæta. - nrg
Matur og góður
félagsskapur
Anne Marie Reinholdtsen, major og yfirherforingi hjá Hjálpræðishernum,
segir mikið af einmana fólki í þjóðfélaginu. Hluti þess leiti á náðir Hjálpræðis-
hersins um jól og áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Prestar á landsbyggðinni
vinna í samstarfi við Hjálp-
arstarf kirkjunnar að því að
hjálpa þeim sem þurfa aðstoð
með mat og aðrar nauðsynjar
fyrir jólin. Prestar þeir sem
Fréttablaðið hafði samband
við voru allir sammála um að
sjaldan hafi jafn margir þurft á
hjálp að halda og nú í ár.
Magnús Erlingsson, sóknarprest-
ur á Ísafirði, segir hjálparstarf á
landsbyggðinni rekið með þeim
hætti að fólk geti leitað til presta,
sem fylla þá út umsókn fyrir við-
komandi með beiðni um hjálp sem
send er áfram til Hjálparstarfs
kirkjunnar.
„Fólk fær úthlutað aðstoð, gjarn-
an í formi korta sem svipa til deb-
etkorta, en fólk getur þá tekið út
nauðsynjavöru á kortin. Í einstaka
tilfellum berast prestum svo gjaf-
ir frá einstaklingum og fyrirtækj-
um og sjá þá um að koma þeim til
skila.“
Magnús segir marga oft veigra
sér við að leita hjálpar og í ár hafi
ábendingum fjölgað þar sem prest-
um er bent á fjölskyldur sem vant-
ar hjálp en hafa ekki leitað hennar.
„Þar nýtur fólk þess að búa í litlu
samfélagi þar sem oft er um mikla
samhjálp að ræða og fólk er vak-
andi yfir nágrannanum.“
BÁGSTÖDDUM FJÖLGAR
Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir er
sóknarprestur í Eiðaprestakalli
á Fljótsdalshéraði og Borgar-
firði eystra. Hjálparstarf þar er
unnið í samstarfi við Hjálparstarf
kirkjunnar. Auk þess hefur Lions-
klúbburinn Múli og Rauði kross-
inn veitt aðstoð í samráði við fé-
lagsþjónustuna og sóknarpresta
fyrir jólin. Í dreifðari byggðum
býr fólk yfirleitt að sínu með mat.
Þegar að þrengir í þjóðfélaginu
og allt hækkar í verði þurfa þeir
sem standa höllum fæti, einstæðar
mæður og öryrkjar sem hafa litl-
ar tekjur, fremur á hjálp að halda.
„Mín tilfinning er sú að í ár séu
fleiri en áður sem þurfa að leita að-
stoðar, sem er þá veitt til að kaupa
í matinn,“ segir Jóhanna.
EINHUGUR Í ÍSLENDINGUM
Fyrir um ári var Velferðarsjóður
á Suðurnesjum stofnaður en Kefla-
víkurkirkja hefur haft umsjón með
söfnun í sjóðinn og hefur hún út-
hlutað úr honum í samvinnu við
Hjálparstarf kirkjunnar. Fénu sem
safnast er eingöngu varið til að-
stoðar einstaklingum á Suðurnesj-
um. „Við byrjuðum með Velferðar-
sjóðinn fljótlega eftir hrunið. Fyrir
vikið gefum við einstaklingum og
félagasamtökum kost á að gefa pen-
ing á einn stað sem mætir þörfinni
á Suðurnesjum en atvinnuleysi hér
er eitt það mesta á landinu,“ segir
Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur í
Keflavíkurprestakalli.
Með tilkomu Velferðarsjóðs-
ins geta fjölskyldur á Suðurnesj-
um fengið meiri styrk heldur en
annars væri í boði, og ekki bara í
formi matarúttekta heldur líka að-
stoð við lyfjakaup, skólamáltíðir
barna og fleira. Gengið hefur vel
að safna í sjóðinn að sögn sr. Skúla
en sama dag og viðtalið var tekið
komu nemendur í Myllubakkaskóla
í kirkjuna og gáfu sjóðnum 50 þús-
und krónur í stað þess að gefa
hvert öðru jólagjafir. „Nú á þessu
ári hafa um 20 milljónir safnast í
sjóðinn sem sýnir hversu mikill
einhugur er í fólki. Allir reyna að
leggja sitt af mörkum til að hjálpa
náunganum. Fólki skynjar um leið
að það getur verið gerendur í þess-
um hildarleik en ekki bara þolend-
ur,“ segir Skúli.
FULLT ÚT ÚR DYRUM
Sr. Arnaldur Bárðarson, prestur
í Glerárkirkju á Akureyri, segir
stöðuna afar erfiða hjá mörgum
fjölskyldum þessi jól. „Það er erf-
itt að sjá hve mikið af ungu fólki
með börn er að upplifa neyð. Við
erum einnig að fá hjálparbeiðnir
frá mikið af fólki sem hefur ekki
þurft að leita aðstoðar áður. Í fyrra
var mikil aukning í hjálparbeiðn-
um en þó er aukningin enn meiri
í ár.“
Í fyrra, eftir hrunið, varð til
sjálfboðaliðakjarni í Glerárkirkju
sem aðstoðar einnig við úthlutan-
ir núna í ár. Úthlutanir hófust um
viku fyrir jól og var fullt út úr
dyrum, að sögn Arnalds, morgun-
inn sem byrjað var að útdeila. - jma
Aðstoð á landsbyggðinni
Sr. Magnús Erlingsson.
Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir.
Sr. Skúli Ólafsson.
Í Glerárkirkju hefur Sr. Arnaldur
Bárðarson, sjálfboðaliðar og starfsfólk
kirkjunnar verið önnum kafið.
Sjálfboðaliðar Hjálparstarfs kirkjunnar að störfum við matarúthlutanir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rauðakrosshúsið, Borgartúni
25, hefur nú starfað í níu mán-
uði og er opið öllum til samfé-
lags, afþreyingar og fræðslu
af ýmsu tagi. Frá upphafi verk-
efnisins hefur Reykjavíkurpróf-
astsdæmi vestra og Þjóðkirkjan
verið í samstarfi við Rauðakross-
inn. Prestar og djáknar eru í hús-
inu hvern virkan dag frá klukk-
an 14-16 til samtals og stuðnings,
bæði frammi yfir kaffibolla og
eins undir fjögur augu ef óskað
er eftir. Einnig hefur kirkjan
boðið upp á fyrirlestra og kyrrð-
arstundir. Áhersla er á sjálfboða-
liðastarf í Rauðakrosshúsinu, en
nánast allir sem þar starfa gefa
vinnu sína og eru nýir sjálfboða-
liðar ávallt velkomnir til starfa.
Að sögn Ragnheiðar Sverris-
dóttur, djákna á Biskupsstofu,
hefur samstarfið í Rauðakross-
húsinu verið ánægjulegt og gef-
andi. Fólki þykir gott að koma
til að spjalla um sín mál og finna
stuðning í félagsskap og fræðslu.
Ragnheiður er ein þeirra sem
boðið hafa upp á umræðuhópa í
Rauðakrosshúsinu. Miðvikudag-
inn 30. janúar stendur hún fyrir
samtali um þau tímamót sem
áramótin eru og verða áramóta-
heit meðal annars til umræðu.
Opið er í Borgartúninu mánu-
dag, þriðjudag og miðvikudag
milli jóla og nýárs frá klukkan
12 til 17. Sjá vikulega dagskrá og
nánari upplýsingar á www.rau-
dakrosshusid.is.
María Ágústsdóttir tók saman.
Komdu við í
Rauðakrosshúsinu
Rauðakrosshúsið er opið öllum til
samfélags, afþreyingar og fræðslu af
ýmsu tagi.