Fréttablaðið - 24.12.2009, Page 38
24. DESEMBER 2009 FIMMTUDAGUR12 ● fréttablaðið ● kirkjan
Aðventa, jól og áramót eru oft
langerfiðasta tímabil ársins fyrir
syrgjendur. Í hugum margra eru
jólin og áramótin hátíð fjölskyld-
unnar og gleðilegra samveru-
stunda hennar. Á aðventunni
kann að vera að syrgjendur langi
helst að hátíðunum ljúki sem fyrst
og desember hreinlega hverfi úr
almanakinu. Erfitt getur verið að
heyra jólalögin hljóma hvert sem
farið er og fólk að óska hvert öðru
gleðilegra jóla. Ef til vill kemur
einhver auga á tilvalda jólagjöf en
gerir sér svo grein fyrir að ástvin-
urinn er ekki lengur á lífi til þess
að njóta hennar. Hér eru nokkur
ráð til að komast í gegnum hátíð-
irnar:
Kertaljós og tónlist Ef þið hafið
ákveðið að skreyta heimili ykkar,
fáið þá hjálp frá börnum, öðrum
úr fjölskyldunni eða vinum. Það
er í lagi að gera eitthvað öðruvísi
en vanalega eða bara skreyta ekki
neitt. Munið þó að kertaljós og
notaleg tónlist auka á vellíðan.
Samvera Samverustundir fjöl-
skyldunnar geta tekið á. Verið
heiðarleg hvert við annað um til-
finningar ykkar. Ræðið saman
um hvað þið viljið gera yfir hátíð-
irnar. Ekki setja markið of hátt,
hvorki fyrir ykkur sjálf né fjöl-
skylduna.
Kort Hugleiðið að
fækka jólakort-
um í ár. Það er ekki
nauðsynlegt að
senda kort, sérstak-
lega ekki fólkinu
sem þið hittið um
hátíðirnar.
Matur Ef til vill gerir það ykkur
gott að þiggja matarboð hjá ætt-
ingjum eða vinum á hátíðunum.
Ef þið ákveðið að halda matarboð
heima hugleiðið þá hvort ástæða
sé til að breyta aðeins út af venj-
unni, t.d. hafa
eitthvað
annað í
matinn
en venju-
lega.
Hvíld Mikill ys og þys fylgir oft
jólahátíðinni. Þess vegna þurfa
syrgjendur að hvíla sig eins vel
og kostur er. Þeim veitir ekki af
allri sinni orku.
Ljós og von Sumir halda að
þegar nokkrir mánuðir eru liðn-
ir frá andláti ástvinar séu syrgj-
endur að „komast yfir missinn“.
En söknuðurinn eftir ástvinin-
um verður fylginautur syrgjenda
ævilangt. Reynslan hefur hins
vegar sýnt að flestir muni geta
notið hátíða eins og jóla, hátíðar
ljóss og vonar.
Svandís Íris Hálfdánardóttir, hjúkrunarfræð-
ingur á líknardeild LSH í Kópavogi, staðfærði með
hliðsjón af bókinni: Bereavement Care (1993),
Victoria Hospice Society, Kanada. Þennan texta
er einnig að finna í bæklingi sem Ný dögun
hefur gefið út. Hann liggur frammi á líknardeild
Landspítalans og á fleiri stöðum.
Aðventan, jólin
og sorgin
● HVAÐA DAG FÆDDIST JESÚS? Enginn veit nákvæmlega hvenær Jesús fæddist, því í augum kirkjunn-
ar var lengi framan af talið ástæðulaust að halda upp á byrjun jarðnesks lífs. Hin sanna fæðingarstund þótti vera dán-
ardagurinn, þegar menn öðluðust eilíft líf. Síðar vaknaði áhugi fyrir því að reyna að komast að þessu, og allt frá byrj-
un 3. aldar sjást merki þeirrar viðleitni í gömlum ritum. Voru ýmsir dagar nefndir, svo sem 6. janúar, 20. apríl, 20. maí,
17. nóvember og 25. desember. Í fyrstu náði 6. janúar mestri útbreiðslu, en á 4. og 5. öld víkur hann fyrir 25. desem-
ber sem fæðingardagur Jesú Krists víðast hvar, líklega vegna áhrifa frá ljósahátíð Rómverja tengdri sólhvörfum að
vetri, sem árið 46 f.Kr. höfðu verið ákvörðuð einmitt þann dag. Eftir það gerði austurkirkjan 6. janúar að minningardegi
skírnar Jesú í ánni Jórdan, eins og verið hafði í Egyptalandi þegar um árið 200, og kallaði Opinberunarhátíð, en vest-
urkirkjan fór á hinn bóginn að minnast komu austurlandakonunganna eða vitringanna til Betlehem. Og fleiri atburð-
ir tengdust síðar umræddum degi, t.d. brúðkaupið í Kana og mettun fimm þúsundanna. Í nágrannalöndum okkar, t.d.
Englandi, Þýskalandi og Noregi er þrettaándinn kallaður Opinberunarhátíðin (epiphania). Á einhverjum tímapunkti
undir lok fornaldar eða við upphaf miðalda var ákveðið að hin kristnu jól skyldu ná yfir þessa daga alla – og þá til að
sameina hátíðirnar báðar, 25. desember og 6. janúar. Þar eru þá komnir þrettán dagar jóla. Kristnar kirkjur halda þó
ekki allar jólin á sama tíma. Austurkirkjan, eða rétttrúnaðarkirkja, fylgir öðru tímatali en Vesturkirkjan, það er rómversk-
kaþólsk og mótmælendakirkjur. Þess vegna er aðfangadagur í Austurkirkjunni hinn 6. janúar. Heimild: www.tru.is.