Samtíðin - 01.12.1956, Qupperneq 30
22
SAMTÍÐIN
þessi ár, verið förunautur hennar og
vegsögumaður á leiðinni til meiri
fegurðar og frelsis. f ljóðum hans
hefur okkur opinberazt hinn heill-
andi skáldskapur jarðlífsins og nátt-
úrunnar i kringum okkur, og þau
hafa leitt okkur að hjartarótum
landsins og kennt okkur, hörnum
þess, að elska það. Og þó er Jónas
Hallgrímsson ekki ættjarðarskáld í
venjulegri merkingu. Ekkert is-
lenzkt skáld hefur kunnað tilfinn-
ingum sínum tignara hóf, og í raun-
inni er honum ættjarðarástin of
samgróin og eðlileg, til þess að hann
geri hana að sérskildu viðfangsefni
í ljóðum sínum. En þegar liann yrk-
ir harmljóð eftir vini sína eða sakn-
aðarljóð um stúlkuna, sem hann
unni, eru kvæðin fyrr en varir orð-
in að ástarjátningu til ættjarðar-
innar. Þess vegna er föðurlands-
laust kvæði naumast til í ljóðabók
lians. Jafnvel kvæðin, s,em liann
þýðir, kunna ekki við sig annars
slaðar en í íslenzkum átthögum.“
Verði framliald smábókaútgáf-
unnar eins og til er ætlazt, þykir
auðsýnt, að hún geti orðið mikilvægt
framlag í sókninni gegn ritrusli þvi,
sem dreift er meðal þjóðarinnar
ellefu mánuði ársins.
5. Sk.
„Elskarðu mig?“
ástin mín.“
„Mundirðu vilja deyja fyrir mig?“
„Nei, ást mín er ódaiiðleg."
Húfugerð. Herraverzlun.
P. EYFELD
Ingólfsstræti 2, Reykjavik. Sími 5098.
Það ORKAR ekki tvímælis, að
RAFORKA
á Vesturgötu 2 og Laugav. 63.
hefur beztu og fallegustu
LJása tœh in
Mfúsáhötdin
Heiwnitisvélnrnar
Við bjóðum ávallt bað bezta.
Látið okkur annast alla rafmagns-
vinnu fyrir yður.
Síminn er 80946.