Samtíðin - 01.11.1957, Blaðsíða 8
4
SAMTÍÐIN
fái notið þess og lesturinn sé samboðinn
því efni, sem verið er að fiytja. Hætt er
við, að næsta fáir, sem þó yrðu að teljast
mjög; sæmileg-a læsir í hljóði, fengju stað-
izt þá raun, að aðrir nytu þess að heyra
þá lesa. En fyrr verður varla sagt, að
menn séu góðir lesarar. Segulbönd færa
mönnum lieim sanninn um, hvar þeir eru
á vegi staddir í þessum efum.
Kennslukonan: „Eg verS að segja
yður alvsg eins og er, að hann sonur
yðar er eitthvert áhugalausasta barn,
sem ég hef kennt. 1 eina skiptið, sem
hann hefur rétt upp hönd til að spyrja
um nokkurn skapaðan hlut, var þegar
hann spurði um það skömmu eftir
jólaleyfið, hvenær páskaleyfið byrj-
aði.“
Efni þessa heftis:
Sig. Skúlason: Fullkomin lestrar-
kunnátta er nauðsyn.......... Bls. 3
Ingólfur Davíðsson: Gamanljóð — 4
Verðlaunaspurningarnar ......... — 6
Kvennaþættir Freyju ............ — 7
Og lyngið glóði (saga) ......... — 10
Draumaráðningar ................ — 14
Framhaldssagan ................. — 14
Ástamál ........................ — 16
Eykur þú sjálfstraustmannsþíns? — 17
Bréfaskóli Samtíðarinnar ....... — 18
Guðm. Arnlaugsson: Skákþáttur — 19
Afmælisspádómar fyrir nóvember — 22
Árni M. Jónsson: Bridge......... — 25
íslands er það lag (bókarfregn) — 27
Þeir vitru sögðu. — Krossgáta o. m. fi.
Forsíðumynd: Franska leikkonan NI-
COLE MAUEEY og WENDELL COEEY
í bandarísku kvikmyndinni „The Bold and
the Brave“, sem sýnd verður í Gamla Bíó.
*l£)œcýLtrlacýCitextar
INGÓLFUE DAVÍÐSSON:
Kvennaminni
(Lag: Vals „Kátu ekkjunnar").
Eauðar rósir, rauðar rósir
rétti’ eg þér.
Lokkar Ijósir, iokkar ljósir
lýsið þið mér.
Svartir lokkar seiða
sífeilt minn hug.
Löngum hefur lagleg stúlka
lyft skáldi’ á flug.
Hárið rauða, hárið rauða
eld I sér ber.
Ég vil ekki brenna’ á báli,
bjargaðu mér!
Það freistar mín oft að finna
freknur á meyjarkinn.
Ég veit sem er, að vist er mjúk
við vanga þinn.
Fagurvaxinn freyjubarmur
fjötrar mig.
Einatt þessi útskot ykkar
æra mig!
En innst í eigin barmi
ómar spurnarmál.
Þú, sem ert svo yndisfögur,
áttu líka sál?
Stúlkur mála munn og segja:
„Sérðu mig?“
Forn er listin, enn er „Eva“
•söm við sig.
Feginn vil ég, „Freyja“,
eiga þig að.
Því ég elska líf og liti.
Láir mér nokkur það?
Tízkan er á okkar bandi.
Landsins beztu og fjölbreyttustu
prjónavörur. Sent gegn póstkröfu.
HLÍN, Skólavörðustíg 18. Sími 12779.
Gullsmiðir Steinþór og Jóhannes,
Laugavegi 30. Sími 19209.
Trúlofunarhringir, 14 og 18 karata
Steinhringar, gullmen.