Samtíðin - 01.11.1957, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.11.1957, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 17 Eyktir þú sjálfstraust mannsins þíns? ÞAÐ ER auðvelt fyrir eiginmann að sitja fastan í því hjólfari, sem konan hans hýr honum. Hún getur á margan liátt lyft honum í lífinu, en einnig grafið undan velgengni hans. Ef hún er alltaf að segja honum, hve auvirðilegur hann sé, fer hann smám saman að trúa því sjálfur. Spurningar þær, sem hér fara á eftir, munu hjálpa hverri eiginkonu til að ganga úr skugga um, livort hún lvftir manni sínum eða dregur hann niður. 1. Miðar þú kröfur þínar við tekjur mannsins þíns ? 2. Gefurðu honum oft í skyn, að hann sé orðinn allur annar en hann var áður fyrr? 3. Ertu vön að hrósa honum fyrir margt, en finna að fáu? 4. Ögrarðu honum með því, að hann eigi að reyna að likjast ein- hverjum öðrum? 5. Kyssirðu hann, af því að þig langi til þess? 6. Ertu vön að hafa orð á því við hann, að heppinn hafi liann verið, er hann kvæntist þér ? 7. Gefurðu þér alltaf tíma til að tala við hann? 8. Segirðu honum þráfaldlega, að mikið væri hann umkomulaus, ef hann ætti þig ekki að? 9. Hrósarðu honum, svo að hörn- in vkkar lieyra til? 10. Segirðu honum oft, að liann eigi góða daga, meðan þú þrælir þér út ? 11. Jafnarðu honum við aðra menn þannig, að það sé honum til hróss ? 12. Ivvartarðu um það við hann, hve leiðinlegur hann sé í venjum sínum og háttum? 13. Hrósarðu honum fyrir, hve hjálpsamur hann sé við heimilisstörf- in? 14. Hrósai'ðu lionum fyrir vel- gengni lians i lífinu? Reyndu að svai-a þessum spurn- ingum samkvæmt beztu vitund. Ef 10 svör eða fleiri eru jákvæð, getur maðurinn þinn í-eitt sig á, að þú trevstir honum. En ef færi’i en 8 svör eru jákvæð, getur hann illa treyst því, að þú elskir hann, þó að þú kunnir að gera það. Leitastu við að sýna h'onum jafnan ástúð. Mundu, að farsæld ykkar beggja getur oltið á því. Kona ein kom aS litlum syni sín- um, þar sem hann var að leggja síð- ustu hönd á blýantsmynd af manni. „Af hnerjum á þessi mynd að vera?“ spurði móðirin. „Af Guði,“ anzaði drengurinn. „En veiztu ekki, barnið mitf, að það veit enginn maður, hvernig Guð lítur út?“ Barnið horfði andartak mjög há- tíðlega á myndina og sagði síðan: „Það getur vel verið, en nú geta allir séð, hvernig hann lítur út.“ MUNIÐ Nora Magasín

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.