Samtíðin - 01.11.1957, Qupperneq 22
18
SAMTÍÐIN
Yjil qeta aííir lœrt íilenzlm lieima 4
ija
óer me<
Í aíitoÁ ohha
2. verkefni
Bréfaskóli Samtíðarinnar
NÁMSREGLUR: Námskeið þetta í ís-
lenzkri stafsetning:u og málfræði stendur
frá 1. okt. 1957 til 1. okt. 1958. Námsgjald-
ið, 125 kr., greiðist, um leið og- menn til-
kynna þátttöku sína. í því eru innifaidar
2 námsbækur (ritreglur og málfræði),
sem þátttakendum verða sendar. Fyrir
þá, sem eiga bækurnar, er námsgjaldið
aðeins 100 kr. Nemendur leysa verkefnin
skriflega, senda okkur þau til leiðrétting-
ar og fá þau síðan endursend. Utaná-
skrift: Bréfaskóli Samtíðarinnar, Pósthólf
472, Reykjavik.
2. Ritæfing: z,s (framh.)
LESIÐ 2. og 3. z-reglu ásamt undan-
tekningum á bls. 6—7 i ritreglunum.
Skrifið síðan upp eftirfarandi verkefni í
aðra hverja línu á venjulegan skrifpappír
og setjið z eða s í stað bandanna.
Ingunn viidi eiga <eLta hestinn.
Be-t er að vera heima hjá sér.
Minn-tu börnin reyndu-t sí-t löku-tu
nemendumir. Heiöin er læg-t nyr-t,
en hæ-t syö-t. Hér er styt-t yfir fjörö-
inn. Eyþór sleit mjó-ta spottann.
Halldór vill hel-t, aö þið flýtiö ykk-
ur sem me-t. Stær-ta sneiöin var dýr-
u-t. Þau kvöddu-t í hin-ta sinn, þeg-
ar hánn fór utan í fyrrahaust. Y-t á
firöinum hefur fiska-t prýöilega.
Hjörtur hefur bari-t fyrir heppi-
legri lausn þessa máls. Eg efa-t um,
aö nokkur hafi tönnla-t eins lengi á
þessu og hann. Heppna-t hefur að
endurheimta frelsi þjóöarinnar. Þið
breyti-t, ef þiÖ hami-t svona allan
daginn. Hve margt fólk getur 7-úma-t
í þessum húsakynnum? Skip-t var á
símskeytum viö þetta tækifæri. Þeir
ætla-t til mikils af börnunum, en þiö
ætli-t ekki til neins. Hann hríf-t oft,
en þér hrífi-t sjaildan. Brauðið hefur
klesst-t. Sjúklingurinn hefur hresst-t
upp á síökastið. Se-tu niöur og hvíldu
lúin bein. Þeir óttuöu-t heyleysi al-
mennt. Hami-t þér ekki svona. Berj-
i-t þið ekki. Svipi-t um eftir hestun-
um. Biægöi-t þeir, ve^'öum við aÖ
leysa verkiö af hendi.
2. IVIálfræðiæfing
LESIÐ bls. 12—14 í Kennslubók í ís-
Ienzku og skrifið upp þessi nafnorð í öll-
um föllum eintölu og fleirtölu: HÖND,
KETILL, KJÖLUR, MÆNIR, SYSTIR,
VALTÝR.
ll(iiif/i(, aö ....
• SANNUR VINUR þinn er sá,
sem veit allt um þig, en hefur samt
mætur á þér.
• SÁ, sem er orðinn nógu gam-
all til að gera rangt, ætti að vera
orðinn nægilega þroskaður til að
gera það ekki.
• FARSÆLIR menn liugsa, j afn-
vel þegar það er óþarft.
• HÆTTA aldrei við neina til-
raun; það er nefnilega alltaf sein-
asti lykillinn, sem gengur að skránni.
• NÁM er það, sem lcennir mönn-
um smátt og smátt, hve nauðafá-
fróðir þeir eru.
MUNIÐ að tilkynna Samtíðinni tafar-
laust bústaðaskipti til að forðast vauskil.