Samtíðin - 01.11.1957, Page 32
28
SAMTÍÐIN
lesendum, innan tveggja spjalda, sýn-
ishorn af ritlist nokkurra liöfunda,
sem eiga það einkum sameiginlegt
að skrifa betur en aðrir. Auk þess
eru þeir samtíðarmenn, og það er
ekki ófróðlegt að heyra í einni bók
ávæning af fjölbreytni hinnar beztu
nútíma ritbstar i óbundnu máli.“
Sýni bókarinnar eru þessi: Inn til
fjalla (Or „Sólon Islandus“) eftir
Davíð, Drengurinn, eftir Gunnar, Na-
póleon Bónaparti eftir Laxness, Hel
ef tir Nordal, Æskuminningar Ásgríms
málara eftir Tómas og Vatnadagur-
inn mikli eftir Þórberg. Bækur af
þessu tagi eiga sér þarft hlutverk
með þjóðinni. Þeim ber að fagna.
S. Sk.
MUNIÐ að tilkynna Samtíðinni tafar-
laust bústaðaskipti til að forðast vanskil.
„Jæja, elskan, í dag lét ég loksins
verða af því, sem þú hefur alltaf verið
að skipa mér að gera. Eg dreif mig
inn til forstjórans, sló í borði'ð hjá
honum og sagði, að nú yrði hann að
gjöra svo vel að hækka við mig
kauyið.“
„Og kom það að tilætluðum not-
um ?“
„Nei, því miður. Hann var nefnv-
lega nýfarinn út að borða.“
„Fríkkaði hún móðursystir þín
nokkuð við fegrunargrímuna, sem
hún klessti framan í sig?“
„Já, meðan hún tolldi á henni.“
„Vinnukonan fór nú frá okkur
bara alveg fyrirvaralaust
„En ósvífin! Mín lofaði þó að
vera, þangað til hún hefði náð sér í
annan stað.“
VÉLATRYGGING
islenzka verzlunarfélagið h.f.
SÍMI 19943. — Laugaveg 23.
Viljið þér tryggja hreyfilinn í bif-
reið yðar, gegn úrbræðslu og óhóf-
legu sliti. Við getum boðið yður
slíka tryggingu fyrir ca. 100 kr.
á ári miðað við 20.000 km. akstur.
Tryggingin er, að nota LIQUI-
MOLY reglulega á hreyfilinn. —
Reynsla ótal manna hefur sannað
að LIQUI-MOLY hefur bjargað
hreyflinum frá algerri eyðilegg-
ingu. Viðgerð á úrbræddum
hreyfli kostar nú þúsundir króna,
en ein dós af LIQUI-MOLY, sem
dugar fyrir ca. 5000 km. akstur,
kostar aðeins kr. 25,50. Heildsölu-
birgðir af LIQUI-MOLY fyrir
bifreiða- og bátamótora fyrir-
liggjandi.