Samtíðin - 01.04.1958, Síða 10
6
SAMTÍÐIN
Kvennaþættir Samtíðarinnar — Kfuttjón %ajja
-£■ Herratízkan í ár
NEW YORK tilkynnir: Jakkaföt
úr köflóttu efni, ekki of litsterku. —
Nælon-regnfrakkar í sterkum lit meö
ljósum uppbrotum. — Frammjóir
skór. — Þykk prjónavesti í staðinn
fyrir peysur með liöfuðsmátt. — Upp-
brot á frakkaermum. — Hvítar næ-
lonskyrtur með bláum eða rauðum
borðum. —- Leðurbattar með skinn-
kanti. — Flauelisuppbrot á smóking-
um.
Um hárþvott
VIÐ IIÖFUM fengið fyrirspurnir
um, bvernig bezt sé að þvo hárið, og
viljum í stuttu máli gefa reglur um
það.
Ef þú berð olíu í hárið og nuddar
henni vandlega inn í hársvörðinn
kvöldið áður en þú ætlar að þvo það,
verður hárþvotturinn miklu auðveld-
ari og áhrifaríkari, og þú getur jafn-
vel hreinsað burt flösu, sem er hvim-
leið og örðug viðfangs. Þess hátlar
olíubað er alveg nauðsynlegt fyrir
litað hár eða hár, sem litur hefur
verið tekinn af, og maður á að taka
það a. m. k. einu sinni, milli þess
að maður litar á sér hárið. Það er
auðvelt. Eklti er annað en nudda
olífuoliu og venjulegri salatolíu,
blönduðum til helminga, inn í hár-
svörðinn.
Hér koma svo reglur um hárþvott:
1. Burstaðu hárið vandlega.
2. Nuddaðu hársvörðinn með fing-
urgómunum, en gættu þess, að negl-
urnar rekist ekki fast í hann.
3. Vættu bárið vel úr heitu vatni.
(Ef þú hefur borið olíu i það, áttu
að byrja á að þvo það úr volgu sápu-
vatni. Þó má vatnið ekki vera of
heitt, því að það „sýður“ olíuna).
4. Helltu svo fljótlega hárþvotta-
efni (shampooing) í hárið.
5. Láttu það freyða vel og nudd-
aðu liárið vandlega með fingurgóm-
unum í rúmlega minútu.
6. Skolaðu hárið síðan úr heitu
vatni.
7. Berðu sápu i það að nýju og
nuddaðu það með fingurgómunum.
8. Skolaðu það.
9. Skolaðu það aftur.
10. Skolaðu það enn einu sinni.
11. Kreistu vatnið úr hárinu og
nuddaðu það með hreinu og mjúku
liandldæði, þangað til það er orðið
þurrt.
Maðurinn minn á ekki barnið
S. G. skrifar: Kæra Freyja. Eg er
í ægilegum vanda stödd. Ég er ófrísk,
og maðurinn minn á ekki barnið,
sem ég geng með. Við eigum þrjú
börn áður. Nú er ég svo hrædd um,
að þetta barn kunni að verða ólíkt
Framleiðum kápur og dragtir úr tízkuefnum eftir sniðum frá
þekktustu tízkuhúsum heims. — Sendum gegn póstkröfu.
14 A P A N H. F. Laugavegi 35, — Sími 14278.