Samtíðin - 01.04.1958, Page 17
SAMTÍÐIN
13
Og svo var hún komin i gröfina,
áður en nokkurn varði.
Hann er ekki sem óviðkunnanleg-
astur, legstaðurinn hennar. Það er
grátviður nálægt leiðinu hennar, og
mér finnst hann oft fallegur, bara
af því að hún hvílir þarna. Of mikil
viðkvæmni, býst ég við, en ....
s, Bíddu við! 0, Guð minn góður!
Nei! Ég var einmitt að gera mér
grein fyrir — en, nei. Þeir geta það
ekki. Það er svo ægilegt, að ég má
ekki til þess hugsa. Það er leiðið
hennar — hennar. Þeir mega ekki
saurga það með viðbjóðslegum
skrokknum á honum! Segðu mér, að
þeir ætli ekki að gera það, að þeir
geri það ekki. Ég heitstrengi, ef þeir
gera það, að ég skal fara þangað
út eftir og draga hann upp úr gröf-
inni með mínum eigin liöndum —
með þessum tveim höndum. Það skal
gert ....
Jæja, þá er nú svona komið. Þeir
eru að koma til að yfirheyra mig.
Nei, farðu ekki. Það vildi ég þú vild-
lr vera kyrr. Þér er ekki um þessa
menn gefið. Já, lögregluþjónn.
Þér takið mig fastan fyrir morð á
Johnston nokkrum Quaile! Gott og
vel, ég skal koma. Leyfið mér að
jafna. mig eitt andartak. Þetta kem-
ur yfir mig eins og reiðarslag. Segið
þér mér, hvernig vissuð þér þetta?
En þetta er bara hnífur eins og
notaður er í skrifstofum. Það hljóta
að vera einir sex hér í stofnuninni.
Hvernig vissuð þér, að þetta var
minn?
Jú, ég býst við, að í smásjá myndu
sjást tóbaksblettir. En — hvernig viss-
uð þér, að það var ég, sem kastaði
honum ?
Það eru vissulega hnífaför á
innri hurðinni í íbúðinni minni. Þau
skipta áreiðanlega milljónum. Ég
eyddi þrem árurn í þetta — þrem
löngum árum — og eftir allt þetta gat
ég klofið eldspýtu, þegar ég kastaði
hnifnum yfir þvera stofuna. Ég var
alveg öruggur um, að ég mundi hitta
piltinn.
Við getum alveg eins farið strax,
býst ég við. Vertu sæll, vinur. Við
sjáumst víst varla framar.
SANNAÐV TIL:
að það er býsna góður mælikvarði
á fólk, livað það mundi gera, ef
það héldi, að aldrei kæmist upp
um það. *
♦
að erfiðleikar eru ekki böl, fyrr en
þú hefur látið bugast af þeim.
♦
að þú eignast aldrei það, sem hjarta
þitt girnist, fyrr en þú lærir að
meta það, sem þú átt.
♦
að bros þitt gerir heimili þitt bjart-
ara en nokkurt rafmagnsljós fær
gert.
♦
að eftir allt, sem sagt og gjört liefur
verið, hefur venjulega fleira ver-
ið sagt en gjört.
ÞÚSUNDIIt kvenna og karla lesa
kvennaþætti Samtíðarinnar með vaxandi
athygli. — Sendið okkur áskriftarpöntun-
ina neðst á bls. 32 strax í dag, og við póst-
sendum yður blaðið tafarlaust ásarnt ein-
um eldri árgangi í kaupbæti.