Samtíðin - 01.02.1961, Side 10
6
SAMTÍÐIN
KVENNAÞÆTTIR-------3^»
ÉG ÓSKA ykkur öllum gleðilcgs árs og
þakka jóla- og nýárskveðj ur, sem mér
haí'a borizl frá lesendum þáttanna. Ég
ætla að byrja árið með nokkrum orðum
um nýjustu fatatízkuna.
Svartir síðdegiskjólar
VETRARKÁPURNAR eru nú einfaldar
í sniði og úr hlýjum, voðfelldum efnum,
t. d. mohair og velour. Sama máli gegnir
um hinn ómissandi svarta síðdegiskjól,
sem raunar er notaður við öll tækifæri,
m. a. í leikhúsum og kvöldboðum. Til
hans er mikið vandað, bvað efni snertir,
og má þar ekkert til spara. Iiins vegar á
hann að vera einfaldur, en mjög vel snið-
inn. Þá er konan vel ldædd. Og eitt er víst:
að persónuleiki hennar dylst ekki, er hún
klæðist svörtum, vel sniðnum kjól.
Hörundið kringum augun
EF ÞÚ leggur ekki rækl við hörundið
kringum augun, vill það verða hrukkólt,
og hvergi segir aldurinn fyrr til sín en
þar.
Pokar og dökkir hringir neðan við aug-
un bera vitni um óliolla lifnaðarhætti og
mótlæti. Fyrst og fremst þarftu að iiéyta
hollrar fæðu til að lækna þessi hvimleiðu
andlitslýti. Þú þarfnast fjörefna í ríkari
mæli. Þau færðu í góðu lúðu- og þorska-
lýsi, lifur, gulrótum, grænkáli og öðru
grænmeti.
Veikt hjarta og nýru geta valdið því, aö
umgerð augnanna lætur á sjá. Þá ber að
BUTTERICK-sniS nr. 9594 í stærðunum l0-~
lb. Litla myndin sýnir kjólinn aS aftan. Sni'Sin
eru seld í SÍS, Austurstræti 10 og kaupfélög-
unum.
Framleiðum kápur og dragtir úr tízkuefnum eftir sniðum
frá þekktustu tízkuhúsum heims. — Sendunt gegn póstkröfu.
KÁPAN H.F. LAUGAVEGI 35. — SlMI 14278.