Samtíðin - 01.11.1964, Blaðsíða 33
SAMTÍÐIN
29
Leitum leiðsögu stjarnanna á næsta æviári okkar
Stjörnnspá allra daga í nóvember ^
1. Hristu aí' þér steinrunnar venjur. Ný við-
l'orf færa þér framfarir.
2. Þú mætir ef til vill andspyrnu. Vertu stað-
fastur(föst) og óháð(ur) öðrum. Þá mun vel
fara.
3. Örvænlu ekki. Sjálfstraust þitt mun leiða
ti! farsældar, þótt á móti blási.
4. A þessu ári muntu hagnast af dugnaði þin-
l>m, en forðastu hvers konar fjárhagslega á-
hættu.
5. Viðburðaríkt ár og ekki alls kostar auð-
velt. Þú munt þurfa að verjast fleipri og fánýt-
um hleypidómum.
ö. Ýmsar breytingar eru í vændum. Þú átt
'•öl á frábærlega heillaríkum tækifærum. Hik-
aðu ekki við að breyta venjum þinum.
7. Dálitið viðsjárvert ár. Varastu ráðlegg-
lngar og fordæmi annarra, en haltu þínu striki.
8. Fyrri helmingur ársins verður góður, ef
þu ferð eftir áformum þínum. Siðan skaltu var-
ast bakmælgi og óráðvendni annarra. Farðu var-
h‘ga i fjármálum.
‘J. Árstímarnir apríl—júni og sept.—okl. 19G5
'’erða beztu hlutar ársins. Þú átt allmargra kosta
völ.
10. Fyrstu 7 mánuðir ársins verða að mörgu
leyti liagstæðir, en 5 siðustu mánuðir þess eru
úráðnir.
11- Flest mun ganga að óskum lijá þér l'rá
l)vi i nóv. og fram í marz. Siðan skaltu gæta
þess að særa ekki vini þína.
12. Útlit er fyrir talsverða örðugleika. Vera
lna, að einliverjir vinir þínir bregðist þér. Forð-
nstu allt, sem skapar fjárhættu.
13. Gættu heilsunnar vel, og ljáðu ekki öðr-
um péninga. Vera má, að heilsuleysi annarra
'’aldi þér áliyggjum.
11- Vera má, að þú verðir fyrir rógi og and-
sPyrnu. Varastu óheiðarlega samkeppni ann-
arra i störfum og viðskiptum.
15. Fyrstu 9 mánuðir ársins verða yfirleitt
míög góðir, en siðan skaltu varast freistingar.
10. Nokkrir örðugleikar kunna að mæta þér
'egna skorts á velvild og stuðningi. Árstiminn
uiaí-—júlí verður að mörgu leyti beztur.
17. Vertu hagsýn(n) og framtakssamur(söm).
Aiið verður viðburðaríkt og breytilegt. Vcl-
genSni og örðugleikar munu haldast í liendur.
18. Útlit er fyrir allgóðan fjárliag, en varastu
skriflegar skuldbindingar.
19. Útlitið er gott á árstímanum jan.—april
’65, síðan kann að verða nokkur kyrrstaða og
jafnvel inótspyrnu að vænta.
20. Útlit er fyrir nokkur óþægindi af völd-
um ættingja og nágranna. Þú ættir ekki að fara
i ferðalag.
21. Útlit er fyrir einhverja örðugleika í byrj-
un ársins, en úr þvi að kominn er febrúar ’65,
fer allt að ganga mjög vel.
22. Vera má, að einhverjir örðugleikar mæli
þér, livað heimilismál þín snertir. í viðskipt-
um mun þér þörf á varkárni og þagmælsku.
23. Beztu árstimarnir verða nóv.—febr. og
sept.—okt. Hina mánuðina máttu búast við
nokkrum truflunum.
24. Haltu andlegu jafnvægi og forðastu þótta
og stærilæti, þá mun þér vel farnast, einkum
á miðju árinu.
25. Árstíminn júni—ágúst verður beztur til
starfs. Vera má, að börn og unglingar valdi þér
örðugleikum.
26. Ágætt ár til starfs og viðskipta, en var-
astu að móðga eldra fólkið í maí og október.
Gættu heilsunnar vel í árslokin.
27. Breytingar á daglegum störfum geta orð-
ið á árstimanum frá því í nóv. og fram i rnarz.
Úr því að kemur fram i apríl, er útlitið golt.
28. Seinni helmingur ársins verður þér heilla-
vænlegri. Á fyrri hluta ársins geta orðið nokkr-
ir árekstrar í samstarfi og ástamálum.
29. Gott ár til ásta og lijúskapar nema í febr.
og marz. Þá er útlit fyrir nokkra tregðu i þcim
efnum.
30. Með aðgætni og forsjálni i orðum og
gjörðum má vænta góðs árangurs á þessu ári,
en gættu þín fyrir utanaðkomandi áhrifum i
des., apríl og okt.
Höfum í miklu úrvali:
Jakkaföf — Drengjafrakka — Fermingarföt.
Dömu- og Telpnabuxur.
Drengjafatastofan
Ingólfsstræti 6. — Sími 16238.