Fréttablaðið - 07.01.2010, Blaðsíða 50
38 7. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Framherjinn og landsliðsmaðurinn Garðar Jóhannsson er í
leit að nýju félagi eftir að samningur hans við norska félag-
ið Fredrikstad rann út. Garðar hefur verið að æfa með KR
undanfarna viku en gerir ekki ráð fyrir því að semja við KR
eða annað íslenskt félag í bráð.
„Það er búið að vera fínt að æfa með KR og alltaf
gaman að koma í Vesturbæinn,“ sagði Garðar sem lék áður
með KR en hann fór þaðan í Val og svo út til Noregs. Hann
mun fara til reynslu hjá dönsku úrvalsdeildarfélagi á næstu
dögum.
„Ég er spenntastur fyrir því að spila í Danmörku. Þetta er
spennandi félag sem er að fara að kíkja á mig og það væri
mjög gott ef það gengi upp. Það er ekki gott að lifa í óviss-
unni og sérstaklega þar sem konan er ófrísk og á að eiga í
febrúar. Það væri skemmtilegra að vera kominn með heimili
áður en kemur að fæðingunni og ég leitast við að fá lausn
minna mála sem fyrst,“ sagði Garðar sem hefur þegar hafnað
þremur tilboðum.
„Ég hafnaði tilboði frá Hartlepool sem Ármann Smári fór
síðan til. Svo fékk ég líka tilboð frá dönsku og ítölsku félagi en
það var allt í neðri deildunum og lítt spennandi. Ég hef ekkert
reynt við Noreg en mun líklega banka á dyrnar þar ef allt annað
þrýtur,“ sagði Garðar sem er með fleiri járn í eldinum en þetta
félag í Danmörku.
„Það er C-deildarlið í Englandi og úrvalsdeildarlið í Svíþjóð
sem hafa sýnt áhuga. Þetta enska lið er reyndar ekkert sér-
staklega spennandi en ég skoða það samt að sjálfsögðu ef
ég fæ ekki samning í Danmörku. Ef allt þrýtur þá kemur
maður náttúrulega bara heim en það hafa nokkur félög
hér heima þegar haft samband við mig,“ segir Garðar
sem hefur samt ekki neinar áhyggjur af því að verða
úti og án félags enda verður leikmannamarkaðurinn í
Skandinavíu opinn lengur en í janúar.
„Ég hef alls ekkert neinar áhyggjur af þessari
stöðu þó svo að óvissan sé vissulega óþægileg. Ég
er með möguleika í stöðunni og mun finna mér
eitthvað. Þegar eitthvað gerist þá gerist það hratt,“
segir framherjinn bjartsýnn.
GARÐAR JÓHANNSSON KNATTSPYRNUMAÐUR: SAMNINGSLAUS OG Í LEIT AÐ NÝJU FÉLAGI
Erfitt að lifa í óvissu með ófríska konu
> Gunnar Heiðar ekki með gegn Liverpool
Það er ljóst að Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikur ekki
síðari leik Reading og Liverpool í þriðju umferð ensku
bikarkeppninnar. Ekki var búið að skrá hann í félagið
fyrir fyrri leikinn sem gerir hann sjálfkrafa
ólöglegan í síðari leiknum. Gunnar Heiðar
er þess utan ekki enn kominn með
leikheimild hjá Reading og ef hann ætlar
sér að spila leikinn gegn Newcastle á
sunnudag þá þarf leikheimildin að berast
fyrir helgi. Það gekk ekki þrautalaust
hjá Gunnari að komast til Reading
og þrautagöngunni er ekki enn
lokið þó svo það sé farið í glitta í
ljós í enda ganganna.
FÓTBOLTI Eiður Smári skoraði í gær
sitt fyrsta mark fyrir franska liðið
Mónakó og var markið örugglega
langþráð fyrir íslenska landsliðs-
manninn sem skoraði ekkert mark
í níu leikjum með franska liðinu á
árinu 2009. Eiður Smári skoraði
síðasta mark Mónakó-liðsins í í 3-
1 sigri á 5. deildarliðinu EFC Fréj-
us-St Raphaël í æfingaleik.
Yannick Sagbo og Nene
komu Mónakó í 2-0 í fyrri
hálfleik en EFC Fréj-
us-St Raphaël náði að
minnka muninn í upp-
hafi síðari hálfleiks.
Eiður Smári innsiglaði
hins vegar sigurinn sex-
tán mínútum fyrir leiks-
lok þegar hann fylgdi eftir
skoti félaga sinna og skor-
aði af stuttu færi.
Þegar Eiður Smári skoraði
markið sitt í gær var hann búinn
að bíða í 536 leikmínútur eftir sínu
fyrsta marki fyrir félagið. Það tók
hann hins vegar aðeins 28 mínútur
að komast á blað á nýju ári.
Leikmenn Mónakó spila fyrsta
alvöruleikinn á nýju ári á móti FC
Tours í 32 liða úrslitum frönsku
bikarkeppninnar um næstu helgi.
Franska dagblaðið L’Equipe
sagði í gær að ensku úrvals-
deildarfélögin Tottenham og
West Ham hefðu áhuga á að
fá Eið Smára í sínar raðir.
Eiður hefur verið orðaður
við fjölda félaga í Englandi,
til að mynda Blackburn, en
engar fregnir hafa borist
enn af því hvort um meira en
meintan áhuga félaganna sé
að ræða.
Þessi ágæta
byrjun á árinu
kemur Eiði
k a n nsk i í
gang á ný
en honum
hefur geng-
ið illa að
aðlagast
franska
fótbolt-
anum til
þessa.
- óój
Eiður Smári orðaður við Tottenham og West Ham:
Skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Mónakó
536 MÍNÚTNA
BIÐ Á ENDA
Eiður Smári
skoraði loks-
ins í sínum
tíunda
leik með
Mónakó.
MYND/AFP
kr./kg
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Hrogn, Lifur
og Kúttmagi
Nætursaltaður
Þorskur
og
Fersk Þorskfl ök
úr Jökuldýpi
Gellur og Kinnar
Nýjar og Nætursaltaðar
Súr Hvalur
Óbarinn
Harðfi skur
að Vestan
Opnum
klukkan 8.00
Sjáumst hress
SKÍÐI Björgvin Björgvinsson
endaði í 24. sæti á heimsbikar-
móti í svigi í Zagreb í Króatíu í
gær eftir að að hafa bætt stöðu
sína um sex sæti í seinni ferð-
inni. Þetta er besti árangur hans
á heimsbikarmóti en hann lenti í
25. sæti á sama móti fyrir ári.
Björgvin varð í 30. sæti eftir
fyrri ferð þrátt fyrir að hafa
verið með rásnúmer 58. Hann
kom þá í mark á 53,17 sekúndum,
2,69 sekúndum á eftir Austur-
ríkismanninum Mario Matt sem
náði besta tímanum.
Björgvin fór seinni ferðina á
59,97 sekúndum og var því sam-
anlagt á 1 mínútu og 53,14 sek-
úndum í báðum ferðum sínum.
Björgvin skíðaði betur í seinni
ferðinni en átta af þrjátíu mönn-
um í úrslitunum og hafnaði því í
24. sæti. - óój
Björgvin Björgvinsson í gær:
Náði 24. sæti á
heimsbikarmóti
BESTI ÁRANGURINN Björgvin Björgvins-
son hefur aldrei gert betur en í Zagreb í
gær. MYND/VERA
HANDBOLTI Framkonur unnu sann-
færandi fjögurra marka sigur á
Íslandsmeisturum Stjörnunnar
í gær, 27-31, á heimavelli meist-
aranna í Mýrinni. Framliðið hafi
mikla yfirburði í seinni hálfleik
eftir jafna byrjun í þeim fyrri og
náðu sem dæmi mest sjö marka
forskoti í seinni hálfleiknum.
Stjörnuliðið hefur undanfarin
ár haft nokkuð gott tak á Fram
en eftir tvo sigra á stuttum tíma
er ekki hægt að sjá annað en að
Stjörnugrýlan sé dauð í Safamýr-
inni. Framliðið lagði grunninn að
sigrinum með því að skora 7 af
fyrstu 9 mörkum seinni hálfleiks.
„Þetta var hrikalega flottur leik-
ur hjá okkur og hann var það nán-
ast allan leikinn. Fyrstu tíu mínút-
urnar einkenndust af smá stressi
en eftir það var þetta frábært og
þá sérstaklega sóknarlega. Ég held
að þetta sé með betri sóknarleikj-
um sem ég hef séð hjá mínu liði í
langan tíma. Þetta var óaðfinnan-
legur leikur hjá okkur sóknarlega.
Þetta var frábært kvöld og frábær
sigur. Ég er gríðarlega stoltur af
liðinu,“ sagði Einar Jónsson eftir
leikinn.
Stella Sigurðardóttir og Karen
Knútsdóttir áttu báðar stjörnuleik
í gær, Stella tók ítrekað af skarið
í sóknarleiknum og Karen nýtti
sér klókindi sín vel, bæði í að stela
boltanum hvað eftir annað í vörn-
inni sem og að stjórna sóknarleikn-
um með miklum glæsibrag. Hildur
Þorgeirsdóttir átti líka örugglega
einn sinn besta leik í Frampeys-
unni til þessa.
Stjörnuliðið náði aldrei takti
í gær og margir leikmenn voru
langt frá sínu besta. Alina Tamas-
an hélt uppi sóknarleik Stjörnunn-
ar og var langmarkahæst.
„Þetta var mjög sanngjarn sigur
hjá Fram í kvöld og hann var síst
of stór. Þær voru betri á öllum
sviðum. Það var lítið sem féll með
okkur. Varnarleikurinn sem er
okkar aðall var ekki að virka nógu
vel og það er bara of mikið fyrir
okkar lið að fá á okkur 31 mark,“
sagði Atli Hilmarsson, þjálfari
Stjörnunnar. ooj@frettabladid.is
Stjarnan-Fram 27-31 (14-15)
Mörk Stjörnunnar (skot): Alina Tamason 13/4
(21/4), Elísabet Gunnarsdóttir 4 (5/1), Jón Sigríð
ur Halldórsdóttir 4 (5), Þorgerður Anna Atladóttir
4 (8), Ester Viktoría Ragnarsdóttir 1 (5), Harpa Sif
Eyjólfsdóttir 1 (9), Þórhildur Gunnarsdóttir (2),
Indíana Jóhannsdóttir (1).
Varin skot: Florentina Stanciu 18 (48/6, 38%),
Sólveig Björk Ásmundardóttir (1/1).
Mörk Fram (skot): Stella Sigurðardóttir 10/4
(18/7), Karen Knútsdóttir 6/3 (11/3), Hildur
Þorgeirsdóttir 6 (11), Guðrún Þóra Hálfdánardóttir
3 (4), Pavla Nevarilova 2 (2), Marthe Sördal
2 (3), Ásta Birna Gunnarsdóttir 2 (5), Hafdís
Hinriksdóttir (1).
Besti sóknarleikurinn í langan tíma
Framkonur unnu öruggan og síst of stóran sigur á Íslandsmeisturum Stjörnunnar í gær og eru nú aðeins
stigi á eftir toppliði Vals. Stella Sigurðardóttir og Karen Knútsdóttir áttu báðar stjörnuleik í Mýrinni.
ALLT Í ÖLLU Framarinn Karen Knútsdóttir sést hér vera búin að stela einum af sex
boltum sínum í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM