Fréttablaðið - 07.01.2010, Side 54
42 7. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
Fegurðardrottningin Rachel Kum,
ungfrú Singapore, var væntanleg til
landsins um jólin, eins og Frétta-
blaðið greindi frá í desember.
Vinur hennar sem ætlaði
að koma með forfallað-
ist hins vegar á síðustu
stundu og Rachel
hætti við ferðina. Hana
dreymir þó enn
um að heimsækja
Ísland og hyggst
samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðs-
ins halda upp á
afmælið sitt hér á
landi í apríl.
Félagarnir Simmi og Jói undirbúa
nú opnun Hamborgarafabrikkunnar
að miklu kappi. Fram kom í Frétta-
blaðinu á dögunum að staðurinn
ætti að opna í mars og verði á jarð-
hæð Höfðatorgs. Fjóra mánuði tók
að þróa kjötið í borgarana og nú
standa bragðprófanir yfir í sérstöku
tilraunaeldhúsi. Nokkrum
hefur verið boðið að
smakka borgarana, sem
eiga lítið sameiginlegt
með þeim sem fást
í næstu sjoppu
– raunar segja
kunnugir að
borgararnir séu
svo ólíkir að
lögunin sé meira
að segja önnur
en gengur og
gerist.
Breska tónlistartímaritið NME fer nú
yfir áratuginn og birtir niðurstöðurn-
ar á vefsíðu sinni. Jónsi í Sigur Rós
hafnaði í áttunda sæti yfir verstu
rokkstjörnur áratugarins og deilir
heiðrinum með listamönnum
á borð við Chris Martin
úr Coldplay, Marilyn
Manson og finnska
skrímslinu Lordi.
Blaðamaður NME við-
urkennir að það sé
eitthvað skemmtilega
klikkað við að finna upp
sitt eigið tungumál,
en hann kunni
einfaldlega ekki
að meta það. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT 2. skjótur, 6. í röð, 8. erta,
9. háttur, 11. fyrirtæki, 12. toga, 14.
ráðagerð, 16. tveir eins, 17. gerast, 18.
pota, 20. rykkorn, 21. góla.
LÓÐRÉTT 1. mylsna, 3. ung, 4. skil-
greina, 5. flan, 7. barningur, 10. gifti,
13. sódi, 15. hryssa, 16. kaðall, 19.
járnstein.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. snar, 6. áb, 8. ýfa, 9. lag,
11. ms, 12. draga, 14. áform, 16. tt,
17. ske, 18. ota, 20. ar, 21. gala.
LÓÐRÉTT: 1. sáld, 3. ný, 4. afmarka,
5. ras, 7. barátta, 10. gaf, 13. gos, 15.
meri, 16. tog, 19. al.
„Ég var að leita að gítar og komst í samband við
eigandann. Hann bauð mér gítar á góðum afslætti
út af hljómsveitinni,“ segir Dave Dunn úr hljóm-
sveitinni Dust.
Dave Dunn hefur skrifað undir sérstakan lista-
mannasamning við bandaríska gítarframleið-
andann Gadow Guitars. Dave er hálfíslenskur og
spilar á gítar í hljómsveitinni Dust, en margir
kannast við söngvarann, Arnar Már Friðriksson,
sem lenti í öðru sæti í raunveruleikaþættinum
Bandið hans Bubba árið 2008.
„Ég er ekki búinn að prófa gítarinn enn þá,
hann verður handsmíðaður í Bandaríkjunum
– þannig að hann ætti að vera góður,“ segir Dave.
„Það gæti tekið einhverja mánuði að smíða hann.
Það er spes háls og rafkerfi fyrir mig.“
Ryan Gadow, framkvæmdastjóri Gadow Guit-
ars, staðfestir þetta. „Já, það er rétt. Dave hefur
skrifað undir listamannasamning við Gadow Guit-
ars,“ segir hann, Gadow er lítill framleiðandi, en
fyrirtækið var stofnað árið 1999.
Dave segist hafa notað Gibson gítara í gegn-
um tíðina, en sé nú tilbúinn að skipta um lið. „Ég
kunni ekki að meta hitt og þetta á öðrum gítur-
um, þannig að ég fór að leita að einhverju öðru,“
segir Dave, sem er þögull sem gröfin þegar hann
er spurður nánar út í samninginn. „En ég fæ gít-
arinn á mun lægra verði en gengur og gerist úti í
búð.“ - afb
Gerir amerískan gítarsamning
FÆR SÉRHANNAÐAN GÍTAR Dave Dunn, lengst til vinstri, er gít-
arleikari í hljómsveitinni Dust og hefur skrifað undir samning
við Gadow Guitars.
„Það er Kínahúsið. Ég stoppa
yfirleitt alltaf þar þegar ég er
í bænum. Þeir hafa verið með
þriggja rétta hádegisverðartil-
boð. Mér finnst þetta vera besti
kínverski maturinn sem maður
fær á Íslandi.“
Þorsteinn Bergsson, bóndi og keppandi
í Útsvari.
Hinn árlegi Hátíðarkvöldverður
klúbbsins fer fram laugardags-
kvöldið næstkomandi í Turnin-
um í Kópavogi. Kvöldverðurinn
hefur verið haldinn óslitinn síð-
astliðin tuttugu og þrjú ár og er
gríðarlega vinsæll viðburður ár
hvert. Steinn Óskar Sigurðsson,
formaður nefndar um Hátíðar-
kvöldverðinn, segir að uppselt sé
á kvöldverðinn, en seldir eru 220
miðar og hafa fastagestir forgang
í þeim efnum. „Þetta er gríðar-
lega vinsælt og mikil eftirspurn
miðað við miðafjöldann ár hvert.
Miðinn kostar tuttugu og átta þús-
und og innifalið í því verði er tólf
rétta matseðill með vínum og eru
það okkar færustu matreiðslu-
menn sem sjá um matreiðsluna,“
segir Steinn Óskar. Ábyrgðarmað-
ur kvöldsins er Sigurður Gíslason,
framkvæmdastjóri Veisluturnsins,
og meðal þeirra matreiðslumanna
sem munu leggja fram krafta sína
þetta kvöld eru Jóhannes Steinn
Jóhannesson, matreiðslumeistari
ársins 2009, Hrefna Rósa Jóhanns-
dóttir Sætran, yfirkokkur á Fisk-
markaðnum, Friðgeir Eiríksson,
yfirkokkur á Hótel Holti, Gunnar
Karl Gíslason, kokkur á Dilli, auk
annarra matreiðslumeistara.
Steinn Óskar segir að sérstakt
þema sé valið fyrir hvert ár og
í ár er þemað flóra Íslands. „Við
göngum út frá þessu þema í mat-
reiðslunni og notum auðvitað
íslenskt hráefni og annað sem við
fáum á þessum árstíma. Við feng-
um einnig Eggert Pétursson til að
hanna undirdiskinn sem gestir fá
með sér heim að kvöldverði lokn-
um.“
Aðspurður segir Steinn Óskar
mikið stress fylgja kvöldverðinum
en að aldrei hafi komið til ósættis í
eldhúsinu. „Ísland er svo lítið land
og hér vinna og standa kokkarnir
saman. Hingað til hefur þetta allt-
af gengið rosalega vel fyrir sig,“
segir hann að lokum. - sm
Hátíðarkvöldverður kokkanna
VEL SÓTTUR VIÐBURÐUR
Steinn Óskar Sigurðsson matreiðslu-
maður segir uppselt á kvöldverðinn.
Allir bestu matreiðslumenn ársins
leggja til krafta sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég hef alltaf haft áhuga á góðu og
heilbrigðu lífi. Þrátt fyrir að vera
í bisness þá hef ég reynt að passa
að vera í ágætisformi og hugsa um
hvað ég borða,“ segir Þórdís Jóna
Sigurðardóttir.
Þórdís starfar nú sem cross fit-
þjálfari í Sporthúsinu ásamt því að
veita heilsuráðgjöf. Nýja starfið
er talsvert frábrugðið því gamla,
en hún var áberandi í íslensku
viðskiptalífi þegar góðærið stóð
sem hæst. Hún var meðal ann-
ars yfirmaður fjölmiðlafjárfest-
inga Baugs, forstjóri Stoða Invest
og stjórnarformaður Dagsbrún-
ar, ásamt því að vera hluthafi í
félaginu. Dagsbrún réðist í nokk-
ur útrásarverkefni, svo sem dag-
blaðið Nyhedsavisen í Danmörku
og kaup á bresku prentsmiðjunni
Windham.
„Ég er að útskrifast sem heilsu-
ráðgjafi. Ég er búin að vera í námi
í New York og er bæði að æfa og
þjálfa cross fit ásamt því að veita
heilsuráðgjöf,“ segir Þórdís, en
hún neyddist til að skipta um starf
í kjölfar hrunsins. „Þá fór ég að
æfa af meiri krafti, byrjaði að
þjálfa og fór í nám. Ég tók level 1-
réttindi til að kenna cross fit. Þetta
er rosalega skemmtilegt og upp-
byggilegt og ég nýt mín bara vel.“
Spurð hvort hún stefni á útrás
í líkamsræktarbransanum segist
hún ekki stefna á það.
En ertu alveg hætt að skipta þér
af viðskiptum?
„Algjörlega, nema mínum eigin
rekstri í kringum þetta. Ég bý að
mikilli og góðri reynslu – þrátt
fyrir að hún sé öðruvísi en ég hafði
vonað. Ég reyni að nýta hana til
góðs. Læra af henni.“
Þórdís er systir Hreiðars
Más Sigurðssonar, fyrrverandi
forstjóra Kaupþings. Hann var
grennri forstjóri bankans og
virðist vera í fínu líkamlegu
formi. En ætli Þórdís sé búin
að plata hann í cross fit?
„Já, hann er crossfittari,“
segir hún og hlær. Hún bætir
við að hann hafi þó ekki
komið í tíma til hennar
þar sem hann býr í Lúx-
emborg í dag og stund-
ar æfingarnar þar.
atlifannar@frettabladid.is
ÞÓRDÍS JÓNA SIGURÐARDÓTTIR: VENDIR KVÆÐI SÍNU Í CROSS
Úr útrás í heilsuráðgjöf
NÝTT STARF Þórdís tók þátt í útrásinni, en starfar
nú sem cross fit-þjálfari og heilsuráðgjafi.
Hreiðar Már, bróðir Þórdísar, er einnig
crossfittari, að hennar sögn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON