Samtíðin - 01.10.1965, Page 13
SAMTIÐIN
9
hverju heldurðu, að ég verði þá fyrir?
Að þessi nýja tengdadóttir mín lýgur
að mér í tíma og ótíma til að breiða vfir
ófullkomleika sinn. Hvað á ég að gera,
Freyja min?
SVAR: Ég mundi í þinum sporum
reyna að umbera þetta með þögn og þol-
inmæði. Vonandi lagast þetta með hana
tengdadóttur þína. Ef þið eruð góð og
nærgætin við hana, þarf hún miklu síð-
ur að vera að reyna til að skreyta sig
með fölskum fjöðrum, eins og hún hef-
ur sjálfsagt gert í háa herrans tið. Það
ei', eins og þú sjálfsagt veizt, til lítils að
reyna að siða fullorðið fólk. En hlýlegt
viðmót og gott fordæmi gera oft krafta-
verk í sambúð fólks.
★ Bíðið þið bara
TVEIR fermingardrengir skrifa: Við
erum mikið með tveimur stelpum, sem
eru jafnöldrur okkai', en þær fást alls
ekki til að kyssa okkur, og það þvkir
okkur nú skrambi hart. Hvað eigum við
að gera?
SVAR: Ríðið þið bara, drengir góðir.
14 ára telpur eru vanar að skipta um
skoðun, i seinasta lagi eftir 2—3 ár. Hver
veit, nenxa ykkur hafi þá líka snúizt
hugur?
★Kjörréttur mánaðarins
Hrátt grænmeti með matarolíu.
Lambakótelettur með soðnum kartöfl-
um og belgbaunum. — Hvítkál, gulræt-
Ur og gulrófur eru rifnar livert i sinu
lagi. Síðan er jxessu raðað á fat ásamt
niðursneiddum tómötum og agúrku. 3—
4 msk. af matarolíu og 1—2 msk. af
ávaxtaediki, allt eftir magni grænmetis-
ins, er hrært vel saman ásamt örlitlu
salti og hellt yfir grænmetið á fatinu.
Heilliveitibrauð borðist með.
Lambakóteletturnar eru þurrkaðar og
Nýjasta Parísargreiðslan
þynntar út með hnefanum. Síðan eru
þær saltaðar og steiktar annaðhvort í
smjöri eða olíu. Því næst eru þær settar
á fat ásamt soðnum kartöflum. Belg-
baunirnar eru látnar vera í bleyti 1 klst.,
áður en þær eru soðnar i 5—10 mín., allt
eftir stærð þeirra. Þá er soðinu hellt af
þeim og þær látnar aftur yfir hita, og
smjöi’hiti látinn bráðna ofan á þeim.
Bei'ist fram í skál.
EFTIRMATUR: Bláber með rjóma og
súrmjólk. — 1 peli af í'jóma er þeyttur
með 5 msk. af syki'i (ekki stífþeyttur) og
honum blandað saman við 1 pela af súr-
mjólk. I þetta eru síðan látin bláber eft-
ir vild. Berist fram í glösum, skreytt
berjum.
Höfum ávallt fyrirliggjandi:
Peysur úr góðri ull.
PEYSAN s.f.
Belholti 6, — Sími 37713.