Fréttablaðið - 02.02.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 02.02.2010, Blaðsíða 36
20 2. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR BAKÞANKAR Hólmfríður Helga Sigurðardóttir Mér hefur alltaf þótt áhugavert og afhjúpandi að heyra hvaða gælu- nafn aðrir velja sínum betri helmingi. Vinkona mín ein kallar eiginmann sinn til dæmis ástarblóm. „Ástarblóm! Ást- arblóm!“ hrópar hún blíðlega þegar hún þarf á honum að halda og hann svarar án þess að blikka auga eða líta flóttalega í kringum sig: „Já, elskan?“ Þetta heyrði ég hana fyrst segja fyrir mörgum árum, þegar við vorum enn á unglingsaldri. Strax þá fylltist ég djúpri aðdáun á þessum góða manni sem síðan hefur ekki borið minnsta skugga á. Þvílíkt karlmenni, að geta borið þetta gælunafn með svo mikilli reisn. ÖNNUR góð vinkona nefnir mann sinn til tíu ára aldrei á nafn öðru- vísi en að kalla hann ástmann sinn eða elskhuga. Þeir sem eru löngu búnir að gleyma skírnarnafni maka síns og kalla hann aldrei annað en karl eða kerlingu myndu vafalaust segja þetta yfirmáta yfirborðs- kennt. Mér finnst þetta hins vegar afbragðs ávani sem fleiri mættu taka sér til fyrirmyndar. Hér verður að taka það fram að parið sem um ræðir er ekki af þeirri tegundinni sem er í stöðugum sleik og faðmlögum á almannafæri. Slíka hegðun má skilgreina sem and- legt og sjónrænt ofbeldi og á ekkert skylt við fallega elsku vinkonu minnar á ástmanni sínum. ELSKHUGI minn og ástarblóm – eða sko þarna maðurinn sem ég bý með – gerði mér það ljóst í fyrsta mánuði okkar saman að hann kynni ekki við gælunöfn sem fælu í sér vísan í ást eða aðra tilburði við væmni. Þar sem ég er eins og fílarnir og gleymi engu hef ég farið eftir þessu. Ég kalla hann nöfn- um eins og spjátrungur, svitafýla og þúþarna, allt eftir stemningunni og lík- amsklukkunni. Aldrei karl samt, þar dreg ég mörkin. EN ég fer ekki ofan af því að það hljóti að vera afbragðs aðferð að takast á við blákaldan hvunndaginn að gefa maka sínum fallegt viðurnefni. Því má líkja við heimatilbúna dáleiðslu. Í því felst lausn fyrir konur og karla sem deila rekkju með blásandi hvölum eða mannlegum slyttum tengdum við hrotu- grímu allar nætur. Og öll hin sem eiga við svipaðar síendurteknar martraðir að stríða. Þau geta þá hjúfrað sig upp að maka sínum þegar kvölda tekur og kallað hann ástarblóm, gengið svo út, lokað hurðinni á eftir sér og lagst sátt til svefns í stofusófanum. Ástarblóm og elskhugar ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman ...og svo rek ég plötubúð með pabba mínum. Hvað gerir þú? Ég er fyrir- sæta Ég get svarið fyrir það; hef ég séð þig einhvers staðar? Ég er mikið notuð í bæk- lingnum fyrir Stórar stelpur og Stórir strákar. Já, fötin fyrir mjög feitt fólk? Mamma mín er sko áskrifandi. Róleg- ur. Gott að sjá að þú ert með það í dag. Þegar þú finnur fyrir púlsinum í tannholdinu þá veistu að þú lifir. Palli skildi aftur gsm-símann eftir í sófanum í gærkvöldi. Hann er svo hirðu- laus. Það er kominn tími til að kenna honum smá ábyrgðartilfinningu. Hvar sett- uð þið gemsann minn? Ég er búinn að hlaða batteríið og hreinsa skjáinn og setti hann við hliðina á i-podin- um þínum á skrifborð- inu. Takk. Og láttu þér þetta að kenningu verða. Þú ert nú meiri bréfdúfan, eða hitt þó heldur! Mér leiðist að viðurkenna þetta, en ég kann ekki við að eyða svona miklum tíma í heimalærdóminn með Sollu. Ættum við að hætta því? HAAA! Kannski ættum við bara að láta hana sjálfa sjá um heima- lærdóminn? Eitthvað til að hugsa um. Hvers konar foreldri lætur stelpu í öðrum bekk sjá um heimalærdóminn sjálf?! Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.