Fréttablaðið - 08.02.2010, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Aðalbjörg Árnadóttir leikkona
segir uppáhaldshlut sinn á heim-
ilinu vera gamla innrammaða ljós-
mynd sem hún fékk að gjöf frá
fjölskylduvini þegar hún útskrif-
aðist úr leiklistanámi. „Þetta
er mynd af mér og Orra Hugin
Ágústssyni, vini mínum, þegar
við vorum sex ára gömul að leika
í einhverju leikriti á Seyðisfirði.
Mamma Orra Hugins gaf mér
þessa mynd þegar við útskrifuð-
umst úr leiklistinni fyrir fimm
árum síðan. Foreldrar okkar eru
gamlir vinir og við Orri Hug-
inn virðumst alltaf lenda aftur
og aftur í því að leika í saman í
sýningum,“ útskýrir Aðalbjörg.
„Ég flutti inn í íbúðina mína
fyrir tveimur árum og myndin fór
beint upp á vegg. Það er erfitt að
negla í veggina vegna þess að þeir
eru úr gipsi en það voru nokkrir
naglar hér og þar frá fyrri eig-
anda íbúðarinnar og mér fannst
tilvalið að fela þá með svona fínni
mynd.“
Aðalbjörg leikur í uppsetningu
Hafnarfjarðarleikhússins á leik-
verkinu Ufsagrýlur eftir Sjón og
þar leikur hún einmitt á móti Orra
Hugin. Aðalbjörg og Orri Huginn
leika útrásarvíkingahjónin Jón-
ínu Katrínu Árnadóttur Briem og
Veigar Már Sigurjónsson, forstjóra
Bankans hf. Rúnar Guðbrandsson
leikstýrir verkinu og hljómsveit-
in Stilluppsteypa semur tónlistina.
„Skáldið lýsti verkinu sem gaman-
leik í nýlegu blaðaviðtali. Þetta er
mjög svartur gamanleikur og það
mætti kannski segja að þetta sé
óhugnanlega fyndið leikverk. Per-
sónan sem ég leik er mikil pæja
og þetta er í fyrsta sinn sem ég
fæ að leika þannig hlutverk. Hing-
að til hef ég oft leikið hjartastór-
ar, alvöru manneskjur sem mundu
kannski frekar teljast til lúða en
Jónína Katrín er aftur á móti svaka-
leg silíkonpæja. Mér finnst mjög
gaman að leika hana og fá að vera
með þessi brjóst,“ segir Aðalbjörg
og hlær. sara@frettabladid.is
Faldi ljótu naglana með
fallegum ljósmyndum
Aðalbjörg Árnadóttir leikkona heldur mikið upp á gamla ljósmynd af sér og æskuvini sínum. Ljósmyndin
var útskriftargjöf frá gömlum fjölskylduvini og hangir nú uppi á vegg á heimili Aðalbjargar.
Aðalbjörg Árnadóttir leikkona heldur mikið upp á gamla innrammaða ljósmynd sem hún fékk að gjöf. Myndin er af henni og vini
hennar, Orra Hugin Ágústssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LITLIR LYGARAR er heitið á þessum sérstæðu og forn-
fálegu útvörpum eftir Bik Van der Pol. Nafnið er dregið út frá
útvörpum sem notuð voru í Sovétríkjunum á sínum tíma og
námu aðeins eina tíðni. Þau útvörp voru til á öllum heimilum
og varð að hafa kveikt á þeim allan daginn.
vaxtalausar gr
10.000 kr. vöruúttekt
fylgir hverju heilsurúmi
Allt að70%afslátturaf völdum vörum
ÚTSÖLULOK
ENN MEIRI AFSLÁTTUR
PENINGA
ÍSLANDS
SAMKVÆMT SVE
FN & HEILSU
JANÚAR
E20052006
E20052006
TTT
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447