Fréttablaðið - 17.02.2010, Blaðsíða 12
12 17. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
SAMFÉLAGSMÁL Þrjátíu börn á aldr-
inum sex til átján ára frá efnalitl-
um fjölskyldum hafa undanfarið
fengið ókeypis tannviðgerðir hjá
tíu tannlæknum, sem buðu börnun-
um þessa þjónustu í gegnum Fjöl-
skylduhjálp Íslands.
Ásgerður Jóna Flosadóttir,
framkvæmdastjóri Fjölskyldu-
hjálpar Íslands, segist í tilkynn-
ingu vera þakklát fyrir aðstoðina.
„Þetta er mjög brýnt verkefni,
enda tók aðeins um tvær klukku-
stundir að fylla kvótann, sem tann-
læknarnir buðu upp á. Þeir eiga
þakkir skildar,“ segir Ásgerður
Jóna í tilkynningunni.
Fjölskylduhjálp Íslands:
Sendi þrjátíu til
tannlæknis
REYKJAVÍK Niðurstaða forvals VG í Reykjavík, sem
kynnt var á dögunum, hefur verið staðfest, eftir að
utankjörfundaratkvæði voru endurtalin.
Sóley Tómasdóttir er í efsta sæti fyrir borgar-
stjórnarkosningar með 439 atkvæði, en
Þorleifur Gunnlaugsson fékk 395.
Sóley hlaut 46 bréflögð atkvæði í
fyrsta sæti en Þorleifur tíu. Séu öll
slík atkvæði dregin frá munar átta
atkvæðum á efstu sætunum. Sóley er
þá með 393 atkvæði en Þorleifur 385.
Stjórn VG í Reykjavík vill í tilkynn-
ingu í gær árétta að frambjóðendur
og forvalsstjórn hafi farið að sam-
þykktum reglum um framkvæmd
forvalsins.
Áður hafði stjórnin þó lýst því
yfir að frambjóðendur hefðu feng-
ið misvísandi upplýsingar og því unnið í góðri trú, en
þeir fóru eftir mismunandi reglum.
Samkvæmt reglunum áttu félagar í VG kost á að
fá atkvæðaseðil sendan í tölvupósti og skila honum í
löturpósti.
Sumir frambjóðendur og stuðningsmenn
þeirra fóru hins vegar heim til félagsmanna
og skiluðu atkvæðaseðli fyrir þá.
Þorleifur Gunnlaugsson kærði kosning-
una. Síðan mátti kjörstjórn víkja og nefnd
var skipuð til að fara yfir aðferðafræði VG,
þar á meðal forvalsreglur. - kóþ
Átta atkvæðum munaði á efstu sætum, að bréflögðum atkvæðum frádregnum:
Niðurstaða forvals VG staðfest
SÓLEY TÓMASDÓTTIR OG ÞORLEIFUR
GUNNLAUGSSON Þau Sóley og Þor-
leifur sóttust bæði eftir fyrsta sætinu,
en Þorleifur hafnaði í öðru sæti. Í
þriðja sæti lenti Líf Magneudóttir.
Hafðu samband
sími
Verðbréfaþjónusta Arion banka
er söluaðili sjóða Stefnis.
Kynntu þér sjóðina hjá starfsfólki
verðbréfaþjónustu Arion banka
í síma 444 7000, í næsta útibúi
eða á arionbanki.is/sjodir
Enginn kostnaður
Stefnir - Samval.
Meiri möguleikar á
breytilegum markaði.
Fjárfestir í þeim eignaflokkum sem ákjósanlegastir eru hverju sinni
– eignastýring í einum sjóði
Virk stýring í skuldabréfum og hlutabréfum. Áhersla á ríkistryggð
skuldabréf undanfarin misseri
Fjárfestir að mestu í öðrum sjóðum til að auka enn frekar áhættudreifingu
Góður kostur í langtímasparnaði og hentar vel í reglubundnum sparnaði
16,0% meðalnafnávöxtun síðastliðin 5 ár*
Lágmarkskaup 5.000 kr.
Ávöxtunartölur vísa til fortíðar. Fyrri ávöxtun sjóða gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur þeirra. Vakin er sérstök athygli á að almennt fylgir áhætta fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum sjóða, t.d. getur fjárfesting
rýrnað eða tapast að öllu leyti. Stefnir - Samval er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Stefnir hf. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þ.á m. nánari upplýsingar um
áhættu við fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum hans, má finna í útboðslýsingu og útdrætti úr útboðslýsingu sjóðsins, sem nálgast má á www.arionbanki.is/sjodir.
*Upplýsingar fengnar af www.sjodir.is
fyrir tímabilið 31.01.2005–31.01.2010.
DÓMSMÁL „Þótt maður vonaði að
borgin myndi ekki halda áfram að
níðast á fyrirtækjum og einstakl-
ingum sýnist mér að það sé enn
stefnan,“ segir Egill Jóhannsson,
forstjóri Brimborgar.
Egill vísar hér til orða Krist-
bjargar Stephensen borgarlög-
manns í Fréttablaðinu í gær um að
borgin þyrfti ekki og myndi ekki
fara eftir úrskurði samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytisins og
taka aftur við og endurgreiða lóð
sem Brimborg fékk á Esjumelum
fyrir hrun fjármálakerfisins.
„Ummæli borgarlögmanns stað-
festa að borgin sé að nýta öll göt
í kerfinu til að tefja málið jafn-
vel þótt hún telji sig á endanum
þurfa að borga. Það er náttúrlega
óþolandi stjórnsýsla. Sérstaklega
er áhugavert að það heyrist ekki
múkk í kjörnum fulltrúum sem
þurfa væntanlega að staðfesta
þessar hugmyndir borgarlög-
mannsins,“ segir Egill og bend-
ir á að upphaflega hafi það verið
Hanna Birna Kristjánsdóttir borg-
arstjóri sem hafi ákveðið að breyta
út af áratuga hefð hjá borginni og
hætta að taka við óbyggðum lóðum
og endurgreiða þær lóðarréttar-
höfum sem þess óskuðu.
„Í samtalinu við Fréttablaðið
minnist borgarlögmaður aldrei
á þá niðurstöðu ráðuneytisins að
þarna var í gangi léleg stjórnsýsla
með því að jafnræðisregla var
brotin,“ segir Egill. „Í svari borg-
arinnar til ráðuneytisins segir
að borgarstjóri hafi ákveðið um
mánaðamótin september og okt-
óber 2008 „að hætta að taka við
lóðum og endurgreiða lóðir vegna
atvinnuhúsalóða“ sem staðfestir að
um var að ræða viðtekna venju.“
Borgarráð staðfesti ákvörðun
borgarstjóra 20. nóvember 2008.
Þá bendir Egill á að í úrskurði
sínum vitni ráðuneytið til álits
umboðsmanns Alþingis í öðru máli
um að stjórnvöld eigi að tilkynna
fyrirfram um breytta stjórnsýslu-
framkvæmd til að þeir sem málið
snerti geti gætt hagsmuna sinna.
„Stjórnsýslan getur ekki bara
hagað sér eins og henni sýnist,“
segir Egill sem kveður Brimborg
þegar hafa ítrekað kröfu sína um
endurgreiðslu lóðarinnar á Esju-
melum. Í dag standi krafan í um
205 milljónum króna.
Fyrirtækið Vídd keypti lóð við
Vesturlandsveg á árinu 2007 og
hefur ekki fengið hana endur-
greidda. Árni Yngvason hjá Vídd
segir það áleitna spurningu hvort
yfirlýsingar borgarlögmanns séu
í nafni og þökk borgarstjórnar
eða borgarráðs. „Eru yfirlýsingar
borgarlögmannsins í samræmi við
formlega ákvörðun kjörinna full-
trúa eða ákvað hann sjálfur, upp
á eigin spýtur, að virða úrskurði
ráðuneytisins að vettugi?“ spyr
Árni.
Óskar Bergsson, formaður borg-
arráðs, segir úrskurð ráðuneytis-
ins væntanlega verða á dagskrá
hjá borgarráði á morgun. Þangað
til sé ótímabært að ræða málið.
gar@frettabladid.is
Segir Reykjavíkurborg
aðeins vera að tefja lóðaskil
Forstjóri Brimborgar segir borgarlögmann hunsa að sveitarstjórnarráðuneytið segi borgina hafa sýnt slæma
stjórnsýslu í lóðaskilamáli. Borgin sé að fresta því sem lengst að endurgreiða lóðir, líkt og áður hafi tíðkast.
EGILL JÓHANNSSON Forstjóri Brimborgar á lóðinni í Lækjamel 1 sem fyrirtækið vildi
skila borginni eftir hrunið og fá hana endurgreidda en fær ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Á KJÖTKVEÐJUHÁTÍÐ Í RÍÓ Einn
þátttakenda kjötkveðjuhátíðarinnar
í Rio de Janeiro mætti til leiks með
fyrirferðarmikið höfuðskraut.
NORDICPHOTOS/AFP
DANMÖRK Rafmagnsverð hefur
tvöfaldast í Danmörku frá því
að verslun með rafmagn var
gefin frjáls árið 1998.
Þetta kemur fram í svari
danska umhverfis- og orkumála-
ráðuneytisins við spurningu
þingmannsins Per Clausen, að
því er skýrt er frá í dönskum
fjölmiðlum í gær.
Stórnotendur rafmagns hafa
reyndar aðeins mátt þola 67 pró-
senta hækkun, en smærri not-
endur, einkum einstaklingar
og fjölskyldur, þurfa að greiða
107 prósentum hærra fyrir raf-
magnið nú en fyrir tólf árum.
- gb
Rafmagnsverð í Danmörku:
Tvöfaldaðist frá
einkavæðingu
LÖGREGLUMÁL Þrettán ökumenn
voru teknir fyrir ölvunarakstur
í umdæmi lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu um helgina. Þetta
voru tólf karlar, sá yngsti sextán
ára og ein kona. Pilturinn, sem
var réttindalaus eðli málsins sam-
kvæmt, reyndi hvað hann gat að
komast undan lögreglu, fyrst í bíl,
svo á fæti. Lögreglan hljóp hann
uppi.
Þá voru fjórir teknir í Reykjavík
fyrir að aka undir áhrifum fíkni-
efna en tveir þeirra voru jafnframt
próflausir. Í öðrum bílnum fundust
fíkniefni auk þess sem ökumaður
laug til nafns. - jss
Umferðin um helgina:
Sautján öku-
menn í vímu