Fréttablaðið - 17.02.2010, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 17. febrúar 2010 13
EFNAHAGSMÁL Ríflega fjórðungi færri eigenda-
skipti urðu á ökutækjum fyrstu 45 daga ársins
en á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsing-
um Umferðarstofu. Í ár urðu eigendaskipti á
6.861 ökutæki, samanborið við 9.247 í fyrra.
Munurinn er 25,8 prósent.
Þá kemur fram í tilkynningu Umferðarstofu
að mikill samdráttur í nýskráningu ökutækja
haldi áfram það sem af er þessu ári. Þegar töl-
urnar eru skoðaðar kemur í ljós að í janúar
2008 voru nýskráð ökutæki 2.575 talsins, árið
2009 voru þau 325 og í janúar í ár voru þau 212.
„Frá 1. janúar til 15. febrúar hafa 316 öku-
tæki verið nýskráð en þau voru 444 eftir jafn
langt tímabil á síðasta ári. Þetta eru rétt tæp-
lega 29 prósentum færri ökutæki milli ára,“
segir Umferðarstofa, en áréttar um leið að um
sé að ræða allar tegundir skráðra ökutækja.
„Ef þessar tölur eru bornar saman við fyrstu
46 daga ársins 2005, en það ár var mesti fjöldi
nýskráninga, kemur í ljós að þá voru skráð
2.937 ökutæki, um það bil níu sinnum fleiri en
það sem af er árinu 2010.“ Bent er á að fjöldi
nýskráninga ökutækja sé nú í byrjun árs aðeins
tæp 11 prósent þess fjölda sem skráður var í
upphafi árs 2005. - óká
BÍLAR Sumir segja efnahagshorfur endurspeglast í bíla-
viðskiptum. Fjórðungi færri bílar hafa skipt um eigendur
það sem af er ári en í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nýskráning ökutækja bara rúmur tíundi partur af því sem var þegar mest lét:
Fjórðungi færri skipta um bíl
EIGENDASKIPTI Í JANÚAR
Tímabil Fjöldi eigendaskipta
Janúar 2006 9.943
Janúar 2007 9.414
Janúar 2008 10.610
Janúar 2009 6.076
Janúar 2010 4.947
Heimild: Fréttabréf Umferðarstofu
FERÐALÖG Golfiðkun ferðafólks
skiptir golfklúbba miklu máli um
allt land. Ný könnun Ferðamála-
stofu bendir til að klúbbarnir hafi
tugmilljónir í tekjur af þeim sem
stunda golf á ferðalagi.
Niðurstöður úr könnun Ferða-
málastofu um ferðalög Íslend-
inga um eigið land árið 2009 voru
kynntar í vikunni. Samkvæmt
niðurstöðunum ferðuðust um 90
prósent Íslendinga um landið á
árinu.
Sund er eins og fyrr vinsælasta
afþreying ferðalanga en 12,4 pró-
sent spila golf. Þetta þýðir að 35
þúsund manns keyptu golfhring
á ferð um Ísland árið 2009 og
meirihlutinn fleiri en einn. - shá
Afþreying Íslendinga:
Þúsundir fara í
golf á ferðalagi
FEÐGAR Í GOLFI Golf er fjölskylduíþrótt
fyrst og síðast, eins og þessi mynd frá
Neskaupstað sýnir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SLYS Báðir mennirnir sem misstu
meðvitund um borð í fjölveiði-
skipinu Hoffelli á Fáskrúðsfirði
á sunnudagsmorgun eru á bata-
vegi.
Annar þeirra var útskrifaður
af gjörgæsludeild Landspítalans
í gær. Hinn er þar enn, hann er
kominn úr öndunarvél.
Slysið varð þegar mennirnir
voru að landa gulldeplu úr skip-
inu og talið er líklegt að súrefnis-
skortur í lest skipsins hafi orðið
til þess að mennirnir misstu með-
vitund. Þegar magainnihald fiska
byrjar að rotna eyðist súrefni.
Þetta ferli er sérstaklega hratt
þegar um minni fiska er að ræða
líkt og með gulldeplu og loðnu.
- lvp
Slysið um borð í Hoffelli:
Báðir mennirn-
ir á batavegi
SLYS Fimm stúlkur voru fluttar til
aðhlynningar á Heilbrigðisstofn-
un Vestmannaeyja eftir að bifreið
þeirra lenti út af veginum á Fella-
vegi rétt fyrir ofan byggðina í
Vestmannaeyjum um ellefuleytið
í fyrrakvöld.
Ein stúlknanna var undir eftir-
liti hjá heilbrigðisstofnuninni yfir
nótt, en hún fann til verkja í höfði
og baki, að sögn lögreglumanna.
Slysið varð með þeim hætti að
ökumaður missti stjórn á bílnum
og fór hann út af veginum og valt.
Bíllinn eyðilagðist. - jhh
Umferðarslys á Fellavegi:
Ein slasaðist í
bílveltu í Eyjum
FRÆÐI Tímaritið Icelandic
Agri cultural Sciences, sem Veiði-
málastofnun ásamt fleiri íslensk-
um stofnunum stendur að, er
komið á ISI- gagnagrunninn sem
er sá viðurkenndasti í heimi vís-
indanna. Þar með er ritið staðfest
sem fyrsta flokks alþjóðlegt vís-
indarit.
Vísindaritið er sent á margar
fræðastofnanir víða um heim-
inn og hafa greinar þess verið
skráðar í CAB Abstracts, BIOS-
IS-gagnagrunninn og leitar-
vélina Google-Scholar. Þannig
hafa greinar ritsins náð athygli
erlendra fræðimanna.
- shá
Icelandic Agricultural Sciences:
Nú viðurkennt
vísindatímarit
2010