Fréttablaðið - 17.02.2010, Qupperneq 18
Við akstur vélsleða
í slæmu veðri hefur
reynst best að menn
raði sér upp í tvö-
falda röð og aki það
þétt saman að menn
sjái næsta mann fyrir
framan og þann sem
ekur við hliðina. Mikil-
vægt er að stilla
hraðanum í
hóf.
Saga Saab nær allt aftur til árs-
ins 1937 en þá var Svenska Aerop-
lan Aktiebolaget stofnað í Linköp-
ing með það að markmiði að smíða
herflugvélar fyrir sænska flugher-
inn. Þegar síðari heimsstyrjöldin
leið undir lok var lítill markaður
fyrir herþotur og litið var til nýrra
markaða.
Árið 1944 var sett af stað það
verkefni að útbúa fyrsta bílinn
fyrir almenning. Saab 92001 var
frumsýndur þremur árum síðar.
Bíllinn þótti draga dám af flug-
vélum fyrirtækisins enda var loft-
mótstaða bílsins með því minnsta
sem þá þekktist. Á svipuðum tíma
var húsnæði Saab í Trollhättan
breytt til að anna bílaframleiðslu
og hafa höfuðstöðvar Saab verið
þar æ síðan.
Saab hefur gengið í gegnum
ýmsar breytingar á þeim rúmu 70
árum frá því að fyrsti bíllinn leit
dagsins ljós. Árið 1969 sameinaðist
Saab sænska fyrirtækinu Scania-
Vabis AB og úr varð Saab-Scania
AB. Árið 1989 var bílahluti Saab
Scaniu breytt í sjálfstætt fyrir-
tæki Saab Automobile AB en Gen-
eral Motors keypti þá helming fyr-
irtækisins. GM eignaðist síðan allt
hlutafé í Saab árið 2000.
Bílaiðnaðurinn í öllum heim-
inum hefur orðið fyrir miklum
skakkaföllum undanfarin ár og
GM er þar engin undantekning.
Það tilkynnti í desember 2008 að
verið væri að endurskoða rekst-
ur Saab og að til greina kæmi að
selja fyrirtækið eða jafnvel leggja
það niður.
Margir sýndu því áhuga að kaupa
fyrirtækið en viðræður hófust við
þrjá aðila, Koenigsegg, Merban-
co og Renco Group. Þær viðræður
runnu út í sandinn og því var allt
útlit fyrir að Saab heyrði sögunni
til enda hafði GM sett þau tíma-
mörk að gera þyrfti kaupsamning
fyrir lok árs 2009.
Það var síðan 26. janúar 2010
sem samningar náðust milli Gen-
eral Motors og hollenska sportbíla-
framleiðandans Spyker Cars. Sölu-
verðið er talið vera 74 milljónir
dala í reiðufé og 326 milljónir dala
í hlutabréfum. Samningurinn var
háður því, að sænska ríkið ábyrgð-
ist 400 milljóna evra lán frá Evr-
ópska fjárfestingarbankanum.
Hluti samningsins hljóðar upp
á að nýtt fyrirtæki verði stofnað
í kringum reksturinn. Það mun
heita Saab Spyker Automobiles.
General Motors mun áfram fram-
leiða vélar og fleiri aukahluti í
Saab auk þess sem nýr Saab 9-4x
verður framleiddur í verksmiðju
GM í Mexíkó. solveig@frettabladid.is
Saab í öruggum höndum
Framtíð sænsku Saab-bifreiðanna var um tíma tvísýn og allt leit út fyrir að bundinn yrði endi á sögu
þessa skandinavíska risa. Til bjargar kom hollenski sportbílaframleiðandinn Spyker Cars.
Starfsmenn Saab setja saman bíla í verksmiðju í Trollhättan. Í dag starfa um 3.400
starfsmenn hjá Saab. NORDICPHOTOS /AFP
Victor R. Muller, framkvæmdastjóri Spyker Cars, stendur hér milli Saab (t.v.) og
Spyker-bifreiða. NORDICPHOTOS/AFP
www.liv.is
FERÐAMÁLASAMTÖK
höfuðborgarsvæðisins halda
aðalfund í Molanum að Hábraut
2 hinn 24. febrúar.
Skíðabox
St i l l ing hf . · S ími 520 8000
www.st i l l ing. is · s t i l l ing@sti l l ing. is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
Leyndarmál jökla og fegurð
landslags á myndakvöldi FÍ
Næsta myndakvöld Ferðafélags Íslands er í dag miðvikudaginn 17. febrúar
í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6 og hefst kl. 20.00 að vanda.
Myndakvöldið er að þessu sinni í umsjá hjónanna Helga Björnssonar jökla-
fræðings sem sýnir ljósmyndir af íslenskum jöklum og fjallar um hið sýnilega
og ósýnilega landslag sem jöklarnir búa yfi r. Bók Helga, Jöklar á Íslandi sem
kom út fyrir síðustu jól hefur hvarvetna vakið aðdáun enda um stórvirki að
ræða. Jöklar á Íslandi fékk hin íslensku bókmenntaverðlaun í fl okki fræðirita.
Eftir hlé heldur Þóra Ellen Þórhallsdóttir líffræðingur fyrirlestur um fegurð
landslags en Þóra hefur gert tilraunir til þess að meta fegurð landslags með
vísindalegum aðferðum og eru niðurstöðurnar allfróðlegar.
Aðgangseyrir kr. 600. Innifalið kaffi og meðlæti