Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 2
2 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR ORKUMÁL Mikil sókn er í þá umfram orku sem til er í raforku- kerfi Landsvirkjunar. Að minnsta kosti þrjú stóriðjufyrirtæki sækj- ast eftir umframorkunni. „Fyrst- ur kemur, fyrstur fær,“ segir Agnar Olsen, staðgengill for- stjóra Landsvirkjunar. Gagnaver Verne Holding á Keflavíkurflugvelli hefur þegar tryggt sér 25 megavött úr þeim potti, sem Landsvirkjun hefur til ráðstöfunar án þess að ráðast í nýjar virkjan- ir. Eftir standa þá um 40 mega- vött. Gagnaver, sem fyrirtæk- ið Greenstone hyggst reisa við Blönduós, og kísilmálmverk- smiðja , sem Tomahawk er með á prjónun- um í Helguvík, ásælast bæði þá orku. A ð a u k i nefndi Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð- herra nýlega að hún sæi ekk- ert því til fyrirstöðu að Lands- virkjun ráðstafaði þessari sömu umframorku til álvers Norðuráls í Helguvík en raforkuþörf þess hefur ekki enn verið leyst. Stjórn Landsvirkjunar sam- þykkti sumarið 2007 að gera ekki nýja samninga um sölu raf- orku til álvera á Suðvesturlandi. Í samræmi við það hefur Lands- virkjun engar viðræður átt um að leggja Norðuráli til raforku vegna Helguvíkurverkefnisins. Katrín Júlíusdóttir sagði við Fréttablaðið að hún telji koma til greina að Landsvirkjun kanni möguleika á að útvega álverinu í Helguvík tímabundið orku af umframorku sinni: „Mín grund- vallarafstaða er sú að Lands- virkjun eigi að reka með því sjónarmiði að hún fái sem mest fyrir sína orku,“ sagði Katrín. Ef stjórn fyrirtækisins telji þjóna því markmiði gæti fyrirtækið ákveðið að brúa bil fyrir álverið í Helguvík, meðan unnið er að því að byggja upp afkastagetu jarð- varmavirkjana á Hengilssvæðinu og Reykjanesi. „Auðvitað er alltaf hægt að endurskoða svona samþykktir,“ segir Agnar Olsen. „Það er ekki komið í neina alvöruumræðu; það á alveg eftir að skoða það betur.“ Landsvirkjun hefði enga aðkomu haft að orkuöflun álvers- ins í Helguvík. Umframafl Landsvirkjunar nemur nú um 40 megavöttum af 1.860 megavatta uppsettu afli sem framleitt er með 37 vélum í virkjunum Landsvirkjunar. peturg@frettabladid.is Umframorka Lands- virkjunar eftirsótt Þrjú stóriðjufyrirtæki sækjast eftir 40 megavatta umframorku í raforkukerfi Landsvirkjunar. Fyrstur kemur, fyrstur fær, segir talsmaður Landsvirkjunar. STÓRIÐJA Landsvirkjun á 40 MW til ráðstöfunar án þess að ráðast í nýjar virkjanir. Iðnaðarráðherra hefur nefnt þann möguleika að álver í Helguvík fái þá orku til bráðabirgða. Gagnaver á Norðurlandi og kísilmálmverksmiðja í Helguvík sækjast eftir þessum sömu megavöttum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM María, eru þeir að reyna að salsa undir sig markaðinn? „Já, þeir eru endalaust að krukka í minni máttar.“ Eigendur veitingastaðarins Santa María við Laugaveg standa nú í stappi við alþjóðlega tex-mex-sósukeðju sem ber sama nafn og selur ótal sósukrukkur um heim allan á dag. María Hjálmtýsdóttir er annar eigendanna. KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR AGNAR OLSEN Mín grundvallarafstaða er sú að Landsvirkjun eigi að reka með því sjónarmiði að hún fái sem mest fyrir sína orku. KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR IÐNAÐARRÁÐHERRA BANKAHRUNIÐ Frestur til að gera athugasemdir við efnisatriði í skýrslu rannsóknarnefnd- ar Alþingis um bankahrunið rennur út í dag. Tólf manns úr stjórnsýslunni var gefinn kost- ur á að skila slíkum athuga- semdum og hefur fresturinn til þess einu sinni verið fram- lengdur. Ekki liggur fyrir hvenær skýrslunni verður skilað, en til stóð að gera það fyrir lok febrúar. Síðasti dagur mánaðar- ins er á sunnudag. Þegar haft var samband við skrifstofu nefndarinnar í gær fengust þau svör að nefndar- menn væru ekki til viðtals. - sh Rannsóknarnefnd Alþingis: Svarfresturinn rennur út í dag DANMÖRK, AP Lars Løkke Ras mus- sen, forsætisráðherra Danmerk- ur, gerði mikla endurnýjun á rík- isstjórn sinni í gær. Skipt var um stjórnendur í sextán af alls nítján ráðuneytum ríkisstjórnarinnar. Einna mestum tíðindum þótti sæta að Lene Espersen, leiðtogi Íhaldsflokksins, er orðin utan- ríkisráðherra, en Per Stig Møller er farinn úr því ráðuneyti yfir í umhverfisráðuneytið. Þá tekur Gitte Lillelund Bech við utanríkisráðuneytinu af Søren Gade, sem hættir í ríkisstjórninni. Hann hefur undanfarna mánuði sætt mikilli gagnrýni eftir að áformum um að senda danska sér- sveitarmenn til Íraks árið 2007 var lekið í fjölmiðla áður en þinginu var greint frá þeim áformum. Grunur leikur á að lekinn hafi komið frá utanríkisráðuneytinu. Þær Espersen og Lillelund Bach eru fyrstu konurnar sem gegna embættum utanríkis- og varnar- málaráðherra í Danmörku. Uppstokkunin er ekki óvænt, því reiknað hafði verið með henni allt frá því Lars Løkke Rasmussen tók við forsætisráðherraembætt- inu fyrir tæpu ári af, þegar sá síð- arnefndi varð framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. - gb Mikil uppstokkun í ríkisstjórn Danmerkur: Nýr ráðherra í flest ráðuneyti GLATT Á HJALLA Lars Løkke Rasmussen í hópi nýrra ráðherra. Lene Espersen, sem tók við embætti utanríkismálaráðherra, er vinstra megin við forsætisráðherrann á myndinni. NORDICPHOTOS/AFP KJARAMÁL Félagsmenn í Félagi íslenskra flugumferð- arstjóra (FÍF) samþykktu á aðalfundi félagsins á mánudagskvöld að fela stjórn og trúnaðarráði félags- ins að hefja undirbúning atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls. Í gærkvöldi útfærði svo trúnaðarráð félags- ins atkvæðagreiðsluna nánar, það er hvers konar verkfallsaðgerðir félagsmenn fá um að velja. Nokkra daga tekur að undirbúa atkvæðagreiðslu og greiða atkvæði, auk þess sem gefa verður lög- bundinn fyrirvara, segir Ottó Garðar Eiríksson, for- maður félagsins. Hann telur líklegt að lagt verði til að verkfall verði boðað fyrri hluta marsmánaðar. Spurður hvort um fleiri en eitt tímabundið verk- fall verði að ræða, eins og oft hefur verið hjá flugumferðarstjórum, segir Ottó það líklegt. Samningur FÍF við Samtök atvinnulífsins og Flug- stoðir rann út í lok október síðastliðnum. Loftur Jóhannsson, formaður samninganefndar félagsins, segir að markmið flugumferðarstjóra sé að ná fram launahækkun í takt við aðrar stéttir í fluggeiranum. Byrjunarlaun flugumferðarstjóra eru nú rúmlega 300 þúsund krónur á mánuði. Með vaktaálagi fara byrjunarlaunin nærri 400 þúsund krónum á mánuði. Launin hækka með starfsaldri og lífaldri. Þannig gæti 59 ára flugumferðarstjóri verið með um 570 þús- und krónur í laun fyrir dagvinnu, segir Loftur. Hann bendir á að laun flugumferðarstjóra í nágrannalönd- unum séu á bilinu 70 til 160 prósentum hærri en hér á landi. - bj Flugumferðarstjórar með samninga lausa í fjóra mánuði og ræða verkfallsboðun: Reikna með verkföllum í mars VERKFALL Atkvæðagreiðsla um boðun verkfalls flugumferðar- stjóra kemur í kjölfar skammvinns verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA DÓMSTÓLAR Héraðsdómur Reykja- ness framlengdi í gær gæsluvarð- hald yfir fimm litháískum karl- mönnum til 8. mars. Tveir þeirra kærðu úrskurðinn til Hæstaréttar. Mennirnir sem um ræðir eru ákærðir, auk eins Íslendings, fyrir mansal gagnvart nítján ára litháískri stúlku. Þá eru sumir úr hópnum ákærðir fyrir hylmingu, líkamsárásir, hótanir og fjárkúg- un. Fyrir liggur rökstuddur grunur um að þeir tengist allir glæpa- samtökum í Litháen. - jss Héraðsdómur Reykjaness: Framlengt á fimm Litháa LÖGREGLUMÁL Embætti sérstaks saksóknara rannsakar enn hvort niðurfelling persónulegra ábyrgða starfs- manna Kaup- þings vegna hlutabréfa- kaupa í bankan- um samræmist lögum. Ólafur Þór Hauksson segir málið hafa marga fleti en sé þó ekki í sérstökum forgangi enda liggi embættinu ekki á að tryggja sér aðgang að gögnum vegna þess eins og í öðrum málum. Stjórn Nýja Kaupþings, nú Arion, ákvað á sínum tíma að bíða með að taka endanlega ákvörðun um niðurfellingarnar þar til sak- sóknari hefði lokið rannsókninni. Lánin, alls 47,3 milljarðar, voru þó færð yfir í Nýja Kaupþing á núlli, að því er Viðskiptablaðið fullyrti í síðustu viku. - sh Sérstakur saksóknari: Niðurfellingar Kaupþings enn til rannsóknar ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON VIÐSKIPTI Stjórnendur Eik banka í Færeyjum segja útlit fyrir að tap bankans muni nema frá 310 til 329 milljónum danskra króna, jafnvirði allt að 7,7 milljarða íslenskra, í fyrra. Þetta kemur fram í afkomuvið- vörun bankans í gær. Í október í fyrra var gert ráð fyrir helmingi minna tapi. Verri afkoma skrif- ast á niðurfærslu á dönskum fast- eignalánum. Haft er eftir Marner Jacobsen, bankastjóra Eik banka, í afkomu- viðvöruninni að afar leitt sé að greina frá svo slæmri afkomu og sé hún langt í frá viðunandi. - jab Afkomuviðvörun Eik banka: Tvöfalt meira tap en spáð var BANDARÍKIN, AP Andúð Evrópu- búa á hernaði kemur í veg fyrir að Atlantshafsbandalag- ið geti sinnt stríðsrekstri sínum svo vel sé. Þetta segir Robert Gates, varnar- málaráðherra Bandaríkj- anna, á fundi í Washington með yfirmönn- um úr herjum Evrópuríkja. „Afvopnun Evrópu,“ segir hann, „hefur þróast úr því að vera bless- un á 20. öldinni yfir í að hamla því að raunveru- legt öryggi og varanlegur friður náist á 21. öld.“ Hættan er sú, að mati ráð- herrans, að hugsanlegir and- stæðingar í framtíðinni hætti að taka mark á NATO. - gb Ráðherra varnarmála vestra: Ósáttur við af- vopnun Evrópu ROBERT GATES SPURNING DAGSINS RSÍ krefst ... Nánari upplýsingar á www.asi.is E N N E M M / S ÍA / N M 40 92 4 ... þess að rekstur fyrirtækja sé reistur á ábyrgð og siðferði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.