Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 20
 24. 4 DAGUR MENNTUNAR í ferða- þjónustu verður haldinn á Grand Hóteli á morgun. www.ferdamalastofa.is „Þetta er alveg nýr markhópur í ferðaþjónustu á Íslandi en að skipuleggja prjónaferðir hing- að til lands hefur ekki verið gert áður svo ég viti þótt prjónaferðir séu í sjálfu sér þekkt fyrirbæri í prjónaheiminum,“ segir Ragnheið- ur Eiríksdóttir, sem á og rekur Knitting Iceland með Hélène Magnusson prjónahönnuði. Ragnheiður hafði gengið með hugmyndina um að bjóða útlend- ingum upp á slíkar ferðir í rúm- lega ár þegar hún hitti Hélène Magnusson sem hafði þá gengið með aðra hugmynd í maganum tengda prjóni; að gefa út vefrit um íslenskt prjón. „Þessar hug- myndir pössuðu svo vel saman að við ákváðum að stofna fyrir- tæki í kringum þetta tvennt. Með þessa hugmynd komumst við svo inn í verkefni sem kallast Útflutn- ingsaukning og hagvöxtur og er í gangi hjá Útflutningsráði og þar höfum við unnið með skipulag og markaðssetningu þessara ferða síðan í október.“ Fyrsta ferðin verður farin 10. júní næstkomandi og er þegar að fyllast þrátt fyrir að ferðin hafi ekki verið auglýst skipulega. „Erlendir prjónarar hafa kom- ist á snoðir um ferðina í gegnum prjónasamfélagið Ravelry á Net- inu og hópinn okkar á Facebook, en það einkennir prjónara um allan heim að þeir eru mjög virk- ir á Netinu og því auðvelt að ná til þeirra. Þannig er heimasíðan okkar sem er í smíðum, iceland- knitting.com, hugsuð sem okkar aðalmarkaðstæki í framtíðinni.“ Nokkrar gerðir af ferðum verða í boði en fyrsta ferðin er að sögn Ragnheiðar nokkurs konar lúxus- ferð, þar sem dvalið verður á hót- eli í Borgarfirði. Prjónað verður um fimm tíma á dag og svo farið í styttri ferðir eins og hestaferðir, í Landnámssetrið og víðar. „Sér- staklega verður hugað að góðum mat og gistingu og prjónakennslu blandað við upplifun af náttúru og menningu. Við fjöllum um og kennum rósalappaprjón, sjala- prjón og svo prjóna ferðalang- ar allir lopapeysu. Þrátt fyrir að fyrst og fremst sé stílað inn á fólk sem kann að prjóna bjóða ferðirn- ar líka upp á að makar komi með og geti þá til að mynda spilað golf eða haft aðra dægradvöl meðan setið er við prjónavinnuna.“ Í fyrstu ferðinni verða Banda- ríkjamenn, Kanadabúar og Ástr- ali. „Önnur lúxusferð verður farin síðar í sumar og í vetur verða ann- ars konar ferðir í boði þar sem prjónað verður úti í óbyggðum – við myrkur og vonandi norður- ljós.“ juliam@frettabladid.is Mikill áhugi erlendis á prjónaferðum til Íslands Knitting Iceland er ársgamalt fyrirtæki Ragnheiðar Eiríksdóttur og Hélène Magnusson en þær stöllur skipuleggja meðal annars ferðir hingað til lands fyrir útlendinga sem vilja prjóna í íslensku umhverfi. Fyrirtækið Knitting Iceland hefur skipulagt prjónaferðir hingað til lands síðan í október, að sögn Ragnheiðar Eiríksdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Rope Yoga www.elin.is • Bæjarhrauni 2 Hfj. • Sími: 696 4419 Námskeið hefjast 1. og 2.mars. Unglinganámskeið hefst 3.mars

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.