Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 38
22 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR folk@frettabladid.is > VAR VONGÓÐUR Þegar leikarinn Johnny Depp var nýverið spurður hvort hann hefði ávallt haft trú á leik- listarferli sínum svaraði hann því neit- andi. „Nei, alls ekki. Ég hafði enga hugmynd um hvert þetta stefndi. Það er ógjörningur að ætla sér að vita það. Ég vissi ekki hvað mundi gerast, en ég hélt alltaf í vonina.“ Spaugstofan verður í sviðs- ljósinu í Sjálfstæðu fólki hjá Jóni Ársæli Þórðar- syni næsta sunnudag. Pálmi Gestsson brá sér í gervi Jóns í gær og mátti ekki á milli sjá hvor væri hvað. „Það var gaman að hitta Jón. Hann kom og spjallaði við okkur hvern í sínu lagi. Svo brá ég mér bara í hans gervi og hann hitti klónið af sér,“ segir Pálmi Gestsson. „Hann hafði mjög gaman af þessari uppákomu. Ég held hann hafi það yfirleitt enda engir alvöru menn nema það sé hægt að herma eftir þeim eitthvað.“ Pálmi hefur túlkað Jón Ársæl með reglulegu millibili í gegn- um árin og gert það með miklum sóma eins og honum einum er lagið. Spurður hvort ekki hafi verið löngu kominn tími á að Spaugstofan væri tekin fyrir í Sjálfstæðu fólki kemur hik á Pálma: „Er það ekki að ofgera hlutunum ef við erum að þvælast á öðrum stöðvum.“ Fregnir um að Spaugstofan ætli að hætta í vor eru orðum auknar að sögn Pálma. „Þetta er ekkert öðruvísi en það hefur alltaf verið. Það hefur alltaf komið í ljós seint bæði af okkar hálfu og Útvarpsins hvort það væri tilefni til að halda áfram. Það hefur verið þannig í 21 ár,“ segir hann. Spurður hvort þeir félagar hafi ekki áhuga á að halda áfram segir Pálmi: „Við höfum verið að kasta því á milli okkar. Á meðan ástandið er svona og fólk vill horfa á okkur og við höfum gaman af þessu erum við alltaf til í að skoða það. En það er engin sáluhjálp fyrir okkur í sjálfu sér. Auðvitað skilur maður að Útvarpið er í kröggum eins og önnur fyrirtæki og það verður að skoða sín mál til að vita hvað það getur tekist á við.“ Nokkrir þættir eru eftir af Spaugstofunni á þessu vori. Síðasti þátturinn verður að öllum líkindum sýndur í lok apríl. freyr@frettabladid.is JÓN ÁRSÆLL HITTI KLÓNIÐ SITT FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA ALVEG EINS Vel fór á með sjónvarpsmanninum Jóni Ársæli Þórðarsyni og klóninu hans fyrir utan Útvarpshúsið í gær. Svo gott er gervi Pálma Gestssonar að varla má á milli sjá hver hinn raunverulegi Jón Ársæll er. Sjónvarpsmaðurinn góðkunni hafði mjög gaman af uppákomunni og hló að tilburðum Pálma. Framleiðsla á fimmtu Die Hard- myndinni er fyrirhuguð á næsta ári er haft eftir aðalleikaranum Bruce Willis. Hann telur mögu- legt að sögu- sviðið verði ekki í Banda- ríkjunum. „Við verðum að fara með þessa mynd vítt um heiminn,“ sagði Willis. Aðdá- endur löggunn- ar og harðjaxlsins Johns McClane geta því farið að spenna beltin fyrir enn eina rússíbanareiðina. Þrjú ár eru liðin síðan fjórða myndin í seríunni, Live Free or Die Hard, kom út við góðar undirtektir. Þá voru tólf ár liðin frá gerð þriðju myndarinnar, Die Hard: With A Vengeance. Die Hard í fimmta sinn Leik- og söngkonan Jennifer Lopez hefur sagt skilið við útgáfufyrir- tæki sitt, Epic Records, sem er í eigu Sony. Ekki er víst hvort hún var látin fjúka eða hvort samn- ingurinn var ein- faldlega útrunninn. „Jennifer og Sony Music Group hafa átt gott samstarf,“ sagði umboðsmaður Lopez. „Þau hafa átt góðar stundir saman en kominn var tími á breyt- ingar sem henta ferli hennar betur sem leikkonu og tónlistar- manni.“ Hún mun á næstunni undirrita samning við annað útgáfufyrirtæki og er sjö- unda hljóðversplata hennar vænt- anleg á vegum þess í apríl. Segir skilið við Epic Söngkonan Cheryl Cole gaf frá sér fréttatilkynningu stuttu eftir að hún lenti í London eftir að hafa flúið heimili sitt í kjölfar frétta af framhjáhaldi eiginmanns síns, fótboltakappans Ashley Cole. Upp komst um framhjá- hald Ashley Cole í fyrsta sinn árið 2008 en Cheryl ákvað að fyrirgefa eiginmanni sínum það hliðarspor. Í síðustu viku flutti tímaritið The Sun fréttir af því að Ashley hafi verið samur við sig og átt vingott við þrjár aðrar stúlkur. Í fréttatilkynningunni frá Cheryl segir að hún hafi ákveðið að skilja við Ashley og að hún biðji fjölmiðla um að sýna henni skilning á þessum erfiðu tímum. Ashley hafði kvöld- inu áður flutt út af heimili þeirra að beiðni Cheryl. Cheryl er í miklu uppáhaldi hjá breskum fjölmiðlum og var meðal annars valin best klædda kona ársins 2009. Cheryl sparkar Ashley Cole SKILIN Cheryl Cole hefur ákveðið að skilja við eiginmann sinn, fótboltakappann Ashley Cole. MYND/NORDICPHOTO Leikkonan Lindsay Lohan veitti breska götutíma- ritinu The Sun viðtal fyrir stuttu. Viðtalið var birt í tveimur hlutum og ræddi leikkonan meðal annars um fíkniefnavanda sinn, erfiða æsku og um sam- band sitt við plötusnúðinn Samönthu Ronson. „Ég hafði aldrei laðast að konum áður en ég kynntist Sam. Þetta gerðist bara og það kom mér á óvart. Við erum enn í sambandi, við búum í sömu byggingu í Los Angeles og rekumst því oft á hvor aðra. Hún hefur alltaf verið ein af mínum nánustu vinkonum og ef hún væri ekki inni í myndinni þá væri ég líklega með karlmanni. Hún er eina konan sem ég hef getað hugsað mér að vera með. Við elsk- um hvor aðra og það eru líkur á að við munum ein- hvern tímann ná aftur saman,“ sagði Lohan. Leikkonan telur að fjölskylda Ronson hafi aldrei tekið sig í sátt og hafi það haft slæm áhrif á sam- bandið. Hún segir jafnfram að þær hafi átt saman fleiri góðar stundir en slæmar, en að fjölmiðlar hafi aðeins flutt fréttir af því sem miður fór. „Góðu stundirnar voru fleiri en þær slæmu. Það skiptast á skin og skúrir, það er eðlilegt. En þegar maður er opinber persóna þá hafa fjölmiðlar meira gaman af því að einblína á það sem er slæmt og blása það upp og láta líta svo út að hlutirnir séu verri en þeir eru.“ Elskaði aðeins Sam ELSKAÐI RONSON Leikkonan Lindsay Lohan veitti bresku tíma- riti viðtal þar sem hún spjallaði meðal annars um samband sitt og Samönthu Ronson. MYND/NORDICPHOTO Nýtt 4 vikna byrjendanámskeið Innifalið í kortum eru allir opnir tímar ásamt þeirri þjónustu sem boðið er upp á í Veggsport. Stórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport) Sími: 695 8464 og 772 1025 www.jogastudio.org Ný og persónuleg jógastöð hefst 1. mars. Skráning hafi n í síma 695 8464 / 772 1025 eða á jogastudio.org • Hot jóga • Hatha jóga • Byrjendanámskeið • Krakkajóganámskeið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.