Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 13 Ryksugur - fyrsta flokks. Stór orð sem reynslan réttlætir. Hátúni 6a . 105 Reykjavík Sími 552 4420 . www.fonix.is Auglýsingasími Allt sem þú þarft… HAPPDRÆTTI Vinningshafar síð- asta útdráttar í Lottóinu hafa allir skilað sér til að vitja vinn- inga sinna. Fjórir voru með allar tölur réttar og fékk hver 10,8 milljónir króna í sinn hlut. Einn var fjölskyldufaðir í Reykjavík með tvö lítil börn, annar hjón utan af landi með fjögur börn, þriðji eldri maður sem keypti miða í Skalla við Vesturlandsveg á útdráttardag- inn, og fjórði hjón af Suðurlandi sem eiga tvö börn. Í tilkynningu Íslenskrar get- spár kemur fram að enn hafi ekki gefið sig fram miðaeigandi sem vann rúmar fjórar milljónir í Víkingalottói 10. febrúar. Sá miði var keyptur í Ríkinu við Snorra- braut í Reykjavík. - óká Lottóútdráttur laugardagsins: Vinningshaf- arnir fjórir hafa gefið sig fram UTANRÍKISMÁL Forseti Íslands fundaði í gær með tveimur nýjum sendiherrum. Annars vegar frú Manizha Bakhtari, sendiherra Afganistans, og hins vegar herra Ladislav Pivcevic, sendiherra Króatíu. Bæði afhentu trúnaðar- bréf sín í gær. Forsetinn ræddi meðal annars stöðuna í Afganistan við sendi- herra Afganistans. Við sendiherra Króatíu ræddi hann samskipti við ESB, svo og möguleika á aukinni samvinnu Íslands og Króatíu á sviði menningarmála. - óká Ólafur Ragnar Grímsson: Forsetinn hitti nýja sendiherra MOSFELLSBÆR Valdimar Leó Frið- riksson, sem lenti í öðru sæti í próf- kjöri Samfylkingar vegna komandi sveitarstjórnarkosninga í Mosfells- bæ, leggur til að sá sem náði efsta sætinu í prófkjörinu, Jónas Bjarna- son, verði færður í þriðja sæti, eða heiðurssæti, en Hanna Bjartmars Arnardóttir, sem lenti í þriðja sæti, fari í það fyrsta. Kjörnefnd fer nú yfir niðurstöð- ur prófkjörsins, sem var ekki bind- andi. Í blaðinu í gær lýsti Hanna Bjartmars þeirri skoðun sinni að það væri „ekki smart að vera með tvo miðaldra karla í tveimur efstu sætunum“. Vilji mun vera til þess innan flokksins í Mosfellsbæ að færa annan karl- frambjóðandann niður, og hefur nafn Valdimars verið nefnt í því samhengi. Sam- kvæmt próf- kjöri lentu karl- ar í tveimur efstu sætunum og konur í þriðja og fjórða sæti. List- inn verður ákveðinn á félagsfundi á morgun. „Ég er einn af sigurvegurunum í prófkjörinu og finnst því hæpin hugmynd gagnvart mér og kjós- endum að færa mig niður,“ segir Valdimar. „En vilji menn allt í senn tefla fram breyttum sterkum lista og gera konum hærra undir höfði er hægt að gera þetta. Odd- vitinn hefur setið þarna í sextán ár og fékk bara 38 prósents stuðning í fyrsta sætið, einu atkvæði meira en ég,“ segir Valdimar. Hann bætir við í gamni að Hanna sé nú samt eldri en hann, miðaldra karlinn. - kóþ Valdimar Leó segir hæpið gagnvart kjósendum að færa sigurvegara neðar á lista: Hanna verði færð í fyrsta sætið VALDIMAR LEÓ FRIÐRIKSSON EFNAHAGSMÁL Útgjöld hins opinbera á hvern íbúa landsins hafa nærri tvöfaldast milli áranna 1980 og 2008. Útgjöldin voru á föstu verðlagi 1.087 krónur á hvern íbúa árið 1980 en voru komin í 2.071 krónu árið 2008, að því er fram kemur í úttekt Hagstofu Íslands. Á þessu árabili hafa útgjöld hins opinbera vaxið frá því að vera 34,1 prósent af landsframleiðslu í 44,8 prósent. Útgjöld ríkissjóðs jukust um 4,7 prósentu- stig, úr 27,5 prósentum af landsframleiðslu í 32,7 pró- sent. Útgjöld sveitarfélaga sem hlutfall af landsfram- leiðslu tvöfölduðust, úr 7,1 prósenti í 14 prósent. Þrír stærstu málaflokkarnir, velferðarmál, fræðslumál og heilbrigðismál tóku til sín 25,3 pró- sent af landsframleiðslu árið 2008. Tíu árum fyrr, árið 1998, tóku þessir málaflokkar 22,6 prósent af landsframleiðslunni. Framlög til ýmissa málaflokka hafa aukist mikið á áratugnum milli 1998 og 2008. Þannig hafa útgjöld til efnahags- og atvinnumála nærri þrefaldast, úr 6,7 prósentum af landsframleiðslu í 19,5 prósent. Útgjöld til menntamála hafa aukist um 15,7 prósent, og útgjöld til menningar- og íþróttamála um 31,2 prósent. Aðrir flokkar hafa setið eftir. Aukning til lög- gæslu og dómsmála hefur aukist um 4,1 prósent, og útgjöld til umhverfismála dregist saman um 5,6 prósent. - bj Mikil aukning útgjalda hjá ríki og sveitarfélögum á síðustu áratugum: Útgjöld fyrir hvern íbúa tvöfaldast UMHVERFIÐ Útgjöld til sumra þátta hafa dregist saman, til dæmis til umhverfismála. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.