Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 18
 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAG-2 VINNAN við fermingarveisluna verður auðveldari ef valdir eru réttir sem hægt er að búa til fyrirfram eins og köld skinka, grafinn lax og sörur. „Ég fór í bakpokaferðalag með pabba mínum og systur þvert yfir Marokkó síðasta sumar og það var skemmtileg upplifun – að sjá marga mismunandi staði á stuttum tíma og ferðast á milli með rútum, lestum og fótgangandi. Pabbi gefur mér stærstan hluta af ferð- inni í fermingargjöf en ferðaplan- ið er ekki alveg komið á hreint,“ segir Alexander en þó gera þeir feðgar ráð fyrir því að ferðast um Kólumbíu og Perú. Alexander Þór segir að í bekkn- um hans fermist allir nema tveir, og þeir sem fermist, fermist í kirkju. Hann segist trúa sumu í kristinni trú en ekki öllu en segir að þegar komi að því að taka ákvörðun um hvort hann vilji fermast eða ekki skipti gjafirnar miklu máli. „Mér finnst þetta svolítil tíma- mót og ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig er að fermast, sér- staklega þar sem ég hef aldrei farið sjálfur í fermingarveislu. Mín eigin veisla er því fyrsta veislan sem ég kem í. Veislan verður haldin í Golfskála Golfklúbbs Garðabæj- ar og við verðum með kökuveislu, sem við fáum frá veisluþjónustu,“ segir Alexander og bætir við að borðskraut veislunnar verði í lopapeysuþema. Fermingarfræðslan hefur verið skemmtileg að sögn Alexanders en tveir prestar kenna krökkunum. „Þar sem að ég hef aldrei farið í fermingar- veislu geri ég mér ekki alveg grein fyrir því hvernig þetta verður eða fer fram, en ég hlakka mikið til.“ Safnar fyrir bakpoka- ferð um Suður-Ameríku Alexander Þór Sigmarsson fermist hinn 20. mars í Lindarkirkju. Hann hefur óskað þess að fá peninga í fermingargjöf en þá ætlar hann að nota í bakpokaferðalag með föður sínum um Suður-Ameríku. Alexander Þór Sigmarsson hefur aldrei áður verið í fermingarveislu og hans eigin veisla því hans fyrsta. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /PJETU R Vandræðalegar þagnir virðast loða við fermingarveislur enda eru þar saman komnir ættingjar og vinir úr ýmsum áttum sem þekkjast misvel. Þá er gott að vera með umræðuefni á reiðum höndum. Ein hugmynd er að spyrja sessunautinn út í fermingu hans og lýsa síðan eigin en með því er alloft hægt að brjóta ísinn og jafnvel koma af stað góðri hláturroku. Páskahretið er svo klassískt enda er veðrið eftirlætis- umræðuefni Íslendinga. Veður- umræður geta þó aukið á vand- ræðaganginn enda vita flestir að oftast er gripið til þess þegar annað umtalsefni kemur ekki upp í hugann. Því er gott að luma á góðri óveðursögu eða einhverju sem gerir veðurumræðuna bitastæðari. Sumarfríið getur verið góður kostur en allir vilja tala um sum- arið og hvað þeir ætla að gera í fríinu. Ef plönin eru ekki komin á hreint má svo alltaf tala um ævintýri sumarsins sem leið. Gott er að fylgjast vel með frétt- um dagana fyrir veisluna til að geta velt þeim fram og aftur með gestum og ekki verra að glugga í ættfræði- bók og vera með ættar- tengsl sem flestra á hreinu. Slíkar upplýsing- ar geta ekki klikkað og þá sérstak- lega ekki hjá eldri kynslóð- inni. - ve Umræðuefnin á reiðum höndum Legg þú á djúpið, þú, sem enn ert ungur,/ og æðrast ei, þótt straumur lífs sé þungur,/ en set þér snemma háleitt mark og mið,/ haf Guðs orð fyrir leiðarstein í stafni/ og stýrðu síðan beint í Jesú nafni/ á himins hlið. Sálmur 182 M. Joch.Kringlan - Smáralind - skor.is Kringlunni - Reykjanesbæ Ermar 2.600 kr Hvítur kjóll 7.500 kr Fjólublár kjóll 7.900 kr teg. 84009 - mjög fl ottur og haldgóður í CDE skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,- teg. 1102 - fl ottur blúnduhaldari í CD skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,- ATH – NÝJA VARAN STREYMIR INN – SAMA GÓÐA VERÐIÐ Laugavegi 178 - Sími: 551 2070 Sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, laugard. 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Erum einnig á Facebook teg. 3341 - haldgóður og yndislegur í CD skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.