Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 10
10 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
KUÐUNGURINN 2009
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
4
92
84
0
2/
10
Otrivin
tveir í einum
- fjölskyldupakki
8% ódýrari
1.234 kr.
Nicotinell Mint
2 mg, 300 stk.
19% ódýrara
en 204 stk. pakkning
með myntubragði miðað
við hvert tyggjó.
8.127 kr.
TYRKLAND, AP Handtökur og yfir-
heyrslur yfirmanna í tyrkneska
hernum þykja til marks um dvín-
andi áhrif hersins þar í landi og
sterka stöðu núverandi stjórn-
valda.
Á mánudag var 51 fyrrverandi
og núverandi yfirmaður í hernum
tekinn höndum. Í gær hófust síðan
yfirheyrslur yfir þeim. Mennirnir
eru sakaðir um að hafa ætlað sér
að steypa stjórn landsins á árun-
um 2003 til 2005.
Bæði skjölum og upptökum með
samræðum herforingjanna hefur
verið lekið á Netið, en ágreining-
ur er um hvort upptökurnar séu
falsaðar. Þar heyrist einn þeirra
segja stjórnina ætla sér „að rífa
niður landið og breyta því í annað
íslamskt ríki“. Sama rödd seg-
ist ætla að hleypa liði sínu lausu
á Istanbúl: „Það er skylda okkar
að grípa til miskunnarlausra
aðgerða.“
Herinn hefur áratugum saman
haft mikil ítök í stjórn landsins og
gripið til þess að steypa stjórninni,
hafi yfirmönnum hersins ekki
litist á stefnu hennar og störf.
Recep Tayyip Erdogan forsætis-
ráðherra hefur verið við völd síðan
2003.
Flokkur hans, Réttlætis- og þró-
unarflokkurinn, hefur yfirgnæf-
andi meirihluta á þingi, þannig að
stjórnin getur í reynd farið sínu
fram að vild.
Erdogan á rætur að rekja til
hreyfingar harðra íslamista
og stjórnarflokkur hans hefur
á stefnuskrá sinni að efla veg
íslamskrar trúar, en segist þó
eingöngu gera það á forsendum
lýðræðis, líkt og til dæmis kristi-
legir demókrataflokkar í Evrópu-
ríkjum sem hafa kristileg gildi í
hávegum.
Herinn hefur á hinn bóginn
jafnan haft í hávegum hinn ver-
aldlega grundvöll tyrkneska ríkis-
ins, þar sem þess er vandlega gætt
að blanda ekki saman trúmálum
og stjórnmálum.
Erdogan segir stjórn sína nú
vera að undirbúa stjórnarskrár-
breytingu, til að draga úr áhrif-
um stjórnarbyltingar hersins árið
1980 á stjórnskipan landsins.
gudsteinn@frettabladid.is
Herforingjar
í yfirheyrslu
Tugir yfirmanna í tyrkneska hernum yfirheyrðir
vegna gruns um að þeir hafi viljað gera stjórnarbylt-
ingu. Þykir til marks um dvínandi áhrif hersins.
STRÖNG GÆSLA Lögregla og her fyrir utan dómshúsið í Istanbúl meðan yfirheyrslur
fóru fram. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GUÐI MERKTUR Bandarískur hermað-
ur, sem hefur krotað „Guð“ aftan á
hjálminn sinn, horfir yfir valmúaakur í
Helmand-héraði í Afganistan.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL „Skilyrði til
að halda manni í gæslu-
varðhaldi er, samkvæmt
gildandi lögum, að ljóst
sé að háttsemi hans varði
óskilorðsbundnu fangelsi.
Það er ekki hægt að full-
yrða um það þegar aldrei
hefur verið dæmt um
þetta efni hér á landi.“
Þetta segir Sveinn
Andri Sveinsson hæsta-
réttarlögmaður, verjandi
Íslendings sem tekinn var með 3,7
kíló af svokölluðu 4-flúoróamfet-
amíni. Sveinn Andri telur algjör-
lega óljóst hvort eða til hvaða refs-
ingar maðurinn verði dæmdur þar
sem innflutningur á 4-flúoroamf-
etamíni hafi aldrei komið til kasta
dómstóla hér.
Maðurinn var handtekinn
við komuna í Leifsstöð
frá Berlín um miðjan
desember. Héraðsdómur
úrskurðaði hann í áfram-
haldandi gæsluvarðhald
fyrr í þessum mánuði, en
Hæstiréttur felldi þann
úrskurð úr gildi. Hann
benti á að þetta efni væri
ekki á skrá yfir ávana-
og fíkniefni sem bönnuð
væri á íslensku yfirráða-
svæði.
Heilbrigðisráðuneytið sendi í
gær frá sér athugasemd vegna
dóms Hæstaréttar, þar sem segir
að 4-flúoróamfetamín flokkist
sem ávana- og fíkniefni. Bann-
listinn taki til hvers konar afleiða
bannaðra fíkniefna, þótt þær séu
ekki taldar upp á fylgiskjali reglu-
gerðarinnar.
SVEINN ANDRI
SVEINSSON
Deilt um hvort 4-flúoróamfetamín sé á bannskrá:
Algjörlega óljóst hvort
smyglara verður refsað
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hafði afskipti af
allmörgum piltum vegna fíkni-
efnamála um síðustu helgi.
Í miðborginni voru höfð
afskipti af þremur piltum um
sínum. Þrír piltar á svipuðu reki
voru staðnir að verki í Garðabæ
þar sem þeir voru að nota fíkni-
efni og í Laugardal voru tveir
jafnaldrar þeirra teknir fyrir
fíkniefnamisferli. Þá fundust
fíkniefni í bíl í Árbæ en í bílnum
voru sex ungmenni á aldrinum 15
til 20 ára. - jss
Höfuðborgarsvæðið:
Hópar pilta
með fíkniefni
SJÁVARÚTVEGUR Alþjóðahvalveiði-
ráðið hefur kynnt drög að tillögum
sem gera ráð fyrir því að í lok árs-
ins verði hvalveiðibanni sem verið
hefur í gildi í 24 ár aflétt. Hval-
veiðiþjóðir geti þá veitt takmark-
aðan fjölda hvala í atvinnuskyni.
Er ætlunin með þessu að draga
úr þeim heildarfjölda hvala sem
veiddur er, meðal annars í vísinda-
veiðum.
Samkvæmt fréttum erlendra
miðla er ætlunin með þessu sú
að miðla málum á milli hvalveiði-
þjóða og annarra þjóða sem aðild
eiga að hvalveiðiráðinu. Í hópi hval-
veiðiþjóða eru Íslendingar, Japan-
ar og Norðmenn. Veiðarnar yrðu
þá háðar reglum sem Alþjóðahval-
veiðiráðið setur.
Í uppkasti að tillögunni, sem
verður til umræðu á næsta fundi
ráðsins í byrjun mars, er gert ráð
fyrir að kvóti á hvaltegundum
yrði ákveðinn af ráðinu til tíu ára
í senn og að vísindaveiðar nemi að
hámarki þúsund hvölum á ári.
Vonast er til þess að með þess-
ari málamiðlunartillögu sé hægt
að koma í veg fyrir að ráðið liðist í
sundur vegna langvarandi deilna.
- sh
Alþjóðahvalveiðiráðið vill sætta langvinnan ágreining innan sinna raða:
Í skoðun að leyfa hvalveiðar
UMDEILT Hvalveiðimenn flensa lang-
reyði í Hvalstöðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Dekkjum stolið undan bílum
Dekkjum var stolið undan tveimur
bílum á höfuðborgarsvæðinu um
nýliðna helgi. Karlmaður á þrítugs-
aldri var handtekinn í tengslum við
rannsókn annars málsins. Lögregla
vinnur að rannsókn málanna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
MYNDLIST Listasafn Íslands fær
forgang að þeim 193 verkum í
listaverkasafni Arion banka,
sem talin eru hafa mikla þýðingu
fyrir íslenska listasögu.
Finnur Sveinbjörnsson, for-
stjóri Arion banka, Katrín Jak-
obsdóttir menntamaálaráðherra
og Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra undirrituðu samn-
ing þessa efnis í gær. Þá verður
söfnum og menningarstofnunum
tryggður aðgangur að 199 öðrum
verkum í eigu bankans. - pg
Listaverkasafn Arion banka:
Listasafn Íslands
hefur forgang