Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 4
4 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR ALÞINGI Margt í minnisblaði stað- gengils sendiherra Bandaríkj- anna á Íslandi af fundi hans með íslenskum embættismönnum er rangt. Þetta sagði Össur Skarp- héðinsson utanríkisráðherra í umræðum um málið á Alþingi í gær. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að í minnisblaðinu kæmu fram athygl- isverðar og alvarlegar upplýs- ingar með hliðsjón af hagsmun- um Íslands. Það beri með sér að ríkisstjórnin hefði lagt sig fram um að koma í veg fyrir þjóðar- atkvæðagreiðslu um Icesave- lögin, ekki hafi verið efst á baugi að tala fyrir málstað Íslands og að reynt hafi verið að velta Icesave- vandamálinu yfir á Norðmenn. Bjarni sagði alvarlegast að full- trúar stjórnvalda skyldu á fundin- um í bandaríska sendiráðinu tala um þjóðargjaldþrot og greiðslu- fall Íslands á næsta ári. Sú óþægi- lega tilfinning læddist að sér að hagsmunir ríkisstjórnarinnar fari ekki saman með hagsmunum þjóðarinnar. Össur varaði menn við að taka of mikið mark á fundargerðinni, margt í henni væri ekki rétt. Sjálfur kannaðist hann ekki við ýmislegt og annað virtist tekið upp úr fréttum. Sagði hann frá- leitt að starfsmenn utanríkis- þjónustunnar hefðu lýst yfir greiðslufalli á næsta ári yrði Icesave-lögunum hafnað í þjóð- aratkvæðagreiðslu en benti á að ríkisstjórnin hefði sent forsetanum gögn þar sem talað væri um auknar líkur á ætluðu greiðslufalli. Sagði hann að end- ingu að fundurinn í sendiráð- inu hefði verið partur af funda- lotu með sendimönnum erlendra ríkja á Íslandi og íslenskra sendi- manna erlendis með þarlendum stjórnvöldum. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknar- flokksins, átaldi málflutning rík- isstjórnarinnar erlendis og beindi sjónum sérstaklega að efnahags- og viðskiptaráðherranum. Gunn- ar Bragi Sveinsson, þingflokks- formaður Framsóknar, sagði að ef lýsing sendiráðsmannsins væri röng þyrftu réttar upplýsingar að koma fram. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG, sagði mikilvægast að áfram yrði mál- staður Íslands kynntur erlendis. Hafnaði hún kenningum um að stjórnvöld reyndu að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Þór Saari, Hreyfingunni, sagði framgöngu sendiherra Íslands í Washington á fundinum hneyksl- anlega. Hann ætti að kalla heim og sjálfsagt væri að hann bæði forseta Íslands og þjóðina alla afsökunar á orðum sínum. bjorn@frettabladid.is Margt rangt í skýrslu Bandaríkjamannsins Utanríkisráðherra segir að ekki megi taka of mikið mark á minnisblaði æðstráð- anda í sendiráði Bandaríkjanna. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir upplýsingar í því alvarlegar. Það beri með sér að ríkisstjórnin tali ekki fyrir málstað Íslands. SENDIRÁÐ BANDARÍKJANNA Í REYKJAVÍK Utanríkisráðherra segir staðgengil banda- ríska sendiherrans hafa í mörgu farið rangt með það sem fram kom á fundi hans með starfsmönnum íslensku utanríkisþjónustunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 17° 10° 6° -1° 8° 11° 9° -1° -1° 21° 10° 15° 7° 21° -5° 12° 16° -3° Á MORGUN Strekkingur NV- og V-til, annars hægari. FÖSTUDAGUR 5-10 m/s en hvasst við S-ströndina. -4 -4 -5 -3 -6 -4 -4 1 -3 1 -10 10 8 12 15 10 6 8 6 10 8 7 -5 -4 -7 -10 -8 -4 -3 -5 -9 -10 VÍÐA SNJÓKOMA Síðdegis er útlit fyrir snjókomu við suðurströndina og seint í dag má bú- ast við snjókomu suðvestan til og þar á meðal í höfuð- borginni. Næstu daga verður víða ofankoma og ekki útilokað að hún verði talsverð sums staðar sunnan heiða. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður VIÐSKIPTI „Þegar menn í skila- nefndum eru með milljarðalán í annarri lánastofnun þarf að vera mjög öflugt eftirlit með þeim. Menn geta fallið í freistni,“ segir Stefán Einar Stefánsson við- skiptasiðfræðingur og kennari við Háskólann í Reykjavík. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að félög í eigu Heimis V. Haralds- sonar endurskoðanda, sem situr í skilanefnd Glitnis, hafi í lok árs 2008 skuldað 1,2 milljarða króna, að mestu í Landsbankanum. Þá greindi DV frá því um miðjan mánuðinn að félag, sem lögmað- urinn Ólafur Garðarsson á rúmlega 22 prósenta hlut í, skuldaði Ice- bank 3,5 millj- arða króna í lok sama árs. Ólaf- ur situr í slita- stjórn Kaup- þings. Haft var eftir Gunnari Andersen, forstjóra Fjár- málaeftirlitsins (FME), í Frétta- blaðinu í gær að almennt væri ekki viðeigandi að félög fólks í skilanefndum glímdu við mikla skuldabyrði. Skilanefndir voru skipaðar í óðagoti við fall bank- anna haustið 2008 og fjárhags- legir hagsmunir skilanefnda ekki kannaðir í þaula. Sem dæmi átti Heimir frumkvæðið að því að gera grein fyrir hagsmunum sínum gagnvart Landsbankanum. Stefán segir geta verið flókið mál að skipa í skilanefndir. Bæði verði að hafa í huga að viðkom- andi geti staðið í skuld við bank- ann, verið í hópi kröfuhafa eða unnið hjá fyrirtækjum, sem eigi kröfu á hann. - jab STEFÁN EINAR STEFÁNSSON Eftirlit með skilanefndum þarf að vera mjög öflugt, segir viðskiptasiðfræðingur: Tveir skulduðu 4,7 milljarða ÞÝSKALAND, AP Flugmenn þýska flugfélagsins Lufthansa eru hætt- ir í bili við verkfall sitt, sem hófst á mánudag og átti að standa í fjóra daga. Tafir verða engu síður áfram á ýmsum flugleiðum í Þýskalandi næstu daga. Þeir héldu aðeins út í einn dag, en samningaviðræð- um verður haldið áfram. Kröfur flugmannanna snerust ekki síst um að áhafnir flugfélaga í eigu Lufthansa í öðrum löndum fengju sömu laun og áhafnir Lufthansa í Þýskalandi. Þannig hugðust þeir tryggja að lægra launaðar áhafnir yrðu ekki ráðnar í störf þeirra. - gb Flugmenn hjá Lufthansa: Verkfalli frestað en tafir áfram DÚBAÍ, AP Niðursveifla á fast- eignamarkaði í borgarríkinu Dúbaí er að ná botni og mun fast- eignaverð leita upp á við í byrjun næsta árs. Þetta er mat Markus Giebel, forstjóra Deyaar Devel- opment, eins af umsvifamestu verktakafyrirtækjum ríkisins. Fasteignaverð í Dúbaí náði hæstu hæðum síðla árs 2008 en hrundi um helming á tæpu ári þegar erlendir fjárfestar, sem dælt höfðu fjármagni inn í land- ið, hurfu þegar alþjóðlegir láns- fjármarkaðir lokuðust. - jab Botninn nálgast í Dúbaí: Fasteignaverð upp á næsta ári FRÁ DÚBAÍ Fasteignaverð hrundi um fimmtíu prósent í Dúbaí í fyrra. LÖGREGLUMÁL Starfsmaður Odd- eyrarskóla á Akureyri er til rann- sóknar hjá lögreglu vegna gruns um að hann hafi verið með barna- klám í vörslu sinni. Að auki eru önnur samskipti hans á netinu til athugunar hjá lögreglu. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er um eldri mann að ræða, sem tilheyrir starfsliði skólans. Maðurinn var handtek- inn í skólanum í fyrradag og hald lagt á tölvubúnað sem hann hafði aðgang að. Málið er ekki talið umfangsmikið. - jss Starfsmaður Oddeyrarskóla: Grunur um barnanetklám EFNAHAGSMÁL Veðbönd upp á rúman milljarð króna hvíla á 101 hóteli Jóns Ásgeirs Jóhannesson- ar og Ingibjargar Pálmadóttur. Hótelið var áður skráð á IP Stu- dium, en hefur verið fært yfir á nöfn Jóns Ásgeirs og Ingibjargar. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöld. Skilanefnd Landsbanka, sem á stærstu áhvílandi kröfuna á fast- eigninni, tjáði Stöð tvö í gær að nefndinni væri ekki kunnugt um eignarhaldsbreytinguna, en Ingi- björg vildi ekki tala við stöðina í gær. - þþ Færðu eign yfir á eigin nöfn: Einn milljarður hvílir á hóteli HEILBRIGÐISMÁL Ríkið leggur hundrað milljónir í að endur- byggja gamla hersjúkrahúsið á hersvæðinu í Keflavík. Iceland Healthcare, félag Róberts Wess- man, mun síðan leigja sjúkrahús- ið af ríkinu, til að reka þar einka- spítala. Stöð tvö greindi frá þessu í gærkvöldi. Framlagið fer í gegnum félag- ið Seltún, undir Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar, sem er í ríkiseigu. Ögmundur Jónasson, þingmað- ur VG, spyr hvort rétt sé að láta skattfé í einkarekið heilbrigðis- kerfi um leið og skorið er niður í almannaþjónustu. - kóþ Sjúkrahús Róberts Wessman: Ríkið leggur til 100 milljónir Verðmætum stolið úr bílum Brotist var inn í nokkra bíla á ýmsum stöðum á höfuborgarsvæðinu um helgina, meðal annars á bílastæðum við útivistarsvæði. Úr þeim var til dæmis stolið GPS-tækjum, veskjum með greiðslukortum í, radarvara og Ipod. LÖGREGLUFRÉTTIR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 23.02.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 230,2902 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,94 128,56 197,33 198,29 174,04 175,02 23,380 23,516 21,675 21,803 17,784 17,888 1,4059 1,4141 195,84 197,00 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR SGS krefst... ... þess að öryggi fjölskyldna í efnahagsvanda sé tryggt. Rétturinn er fólksins, ekki rukkaranna. Nánari upplýsingar á www.asi.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.