Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 42
26 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
Meistaradeild Evrópu:
Stuttgart-Barcelona 1-1
1-0 Cacau (25.), 1-1 Zlatan Ibrahimovic (52.)
Olympiakos-Bordeaux 0-1
0-1 Michael Ciani (45.)
Enska úrvalsdeildin:
Man. Utd-West Ham 3-0
1-0 Wayne Rooney (38.), 2-0 Wayne Rooney
(55.), 3-0 Michael Owen (80.)
STAÐAN:
Chelsea 27 19 4 4 63-22 61
Man. United 28 19 3 6 66-24 60
Arsenal 27 17 4 6 63-30 55
Tottenham 27 13 7 7 48-26 46
Man. City 26 12 10 4 48-33 46
Liverpool 27 13 6 8 43-27 45
Aston Villa 26 12 9 5 37-21 45
Everton 26 10 8 8 38-37 38
Fulham 27 10 7 10 32-29 37
Birmingham 26 10 7 9 25-28 37
Stoke City 26 8 10 8 26-29 34
Blackburn 27 9 7 11 29-43 34
West Ham 27 6 9 12 35-43 27
Sunderland 26 6 8 12 32-44 26
Wigan 26 6 7 13 26-52 25
Wolves 26 6 6 14 21-44 24
Hull City 27 5 9 13 25-54 24
Bolton 26 5 8 13 29-49 23
Burnley 26 6 5 15 27-55 23
Portsmouth 26 4 4 18 21-44 16
ÚRSLIT
> Kristinn dæmir í Þýskalandi
Milliríkjadómarinn Kristinn Jakobsson hefur fengið
verðugt verkefni í Evrópudeild UEFA en hann mun dæma
seinni leik Werder Bremen og Twente sem
fram fer í Þýskalandi annað kvöld. Kristni til
aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þórleifsson
og Ólafur Ingvar Guðfinnsson og fjórði
dómari verður Jóhannes Valgeirsson. Þá
verða aukaaðstoðardómarar á leiknum,
þeir Magnús Þórisson og Þorvaldur
Árnason, sem verða hvor fyrir aftan sitt
markið.
FÓTBOLTI Tveir leikir fara fram í 16 liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu í kvöld þar sem flestra
augu munu beinast að leik Inter og Chelsea en CSKA
Moskva mætir Sevilla í hinum leik kvöldsins.
Sálfræðistríðið á milli knattspyrnustjórans José
Mourinho hjá Inter og Carlo Ancelotti hjá Chelsea
hefur eflaust ekki farið framhjá neinum en Mourin-
ho stýrði Chelsea sem kunnugt er á árunum 2004-
2007 við góðan orðstír. Mourinho lét hafa eftir
sér í viðtölum á dögunum að hann vissi allt
um sitt gamla félag og að ekkert væri breytt
í leikskipulagi liðsins frá tíma hans á Brúnni.
Hann stóðst enn fremur ekki freistinguna að
lýsa því yfir hversu heimskulegt það hafi verið
hjá forráðamönnum Chelsea að láta sig
fara enda hefði enginn titill komið í hús
síðan hann fór. Það verður því fróðlegt
að sjá hvort Mourinho nái að standa
við stóru orðin og slá Lundúnafélagið úr
keppni.
Carlo Ancelotti svaraði Mourinho hins
vegar í gær með því að segja að Portúgal-
inn hafi skapað sér svo miklar óvinsældir á
Ítalíu með alls kyns leiðindum að flestir Ítal-
ir myndu standa með Chelsea gegn Inter.
„Það er alveg rétt hjá Mourinho að Chelsea
hefur ekki unnið neina titla eftir að hann fór
en mig rámar nú í að maður að nafni Avram
Grant hafi gert ágætis hluti með liðið og
verið nálægt því að vinna sjálfa Meist-
aradeildina með félaginu. Annars veit ég alveg
hvað Mourinho er að reyna að gera og hann kann
vel að æsa menn upp fyrir leiki og stundum skil-
ar það árangri en ég myndi persónulega ekki vilja
spila sama leik og hann. Ég held reyndar að hann
sé búinn að gera menn svo brjálaða á Ítalíu að allir
Ítalir, fyrir utan stuðningsmenn Inter, muni styðja
Chelsea í viðureign liðanna,“ sagði Ancelotti í við-
tali við ítalska dagblaðið Il Giornale í gær.
Chelsea endurheimtir Frank Lampard,
Alex og Juliano Belletti úr meiðsl-
um fyrir leikinn í kvöld en Anc-
elotti þarf hins vegar að ákveða
hver leysir vinstri bakvarðastöð-
una hjá Lundúnafélaginu. Ashley
Cole verður frá næstu mánuðina
vegna ökklameiðsla og átti Yuri
Zhirkov að leysa hann af hólmi en
meiddist sjálfur í leiknum gegn Wol-
ves um helgina.
Útlit er fyrir að markvörðurinn Julio
Cesar hjá Inter verði leikfær í kvöld en
hann lenti í umferðaróhappi á sunnu-
dagskvöld þegar hann klessukeyrði
Lamborghini bifreið sína skammt frá
San Siro-leikvanginum og gat í kjöl-
farið lítið sem ekkert æft á mánu-
dag og í gær. Gazzetta dello Sport
greindi frá því í gær að Brasilíu-
maðurinn hefði sloppið með skrá-
mur og mar á andliti og ætti því
að geta spilað leikinn mikilvæga.
- óþ
José Mourinho stórorður í garð fyrrum vinnuveitenda sinna í Chelsea:
Stund sannleikans runnin upp
MOURINHO Hefur farið mikinn í aðdraganda
leiks Inter og Chelsea. NORDIC PHOTOS/AFP
Aðalfundur 2009
Aðalfundur Íþróttafélagsins Fylkis og allra deilda þess
verður haldinn í Fylkishöll fi mmtudaginn 11. mars
2010 kl. 20.30.
Dagskrá;
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórn Íþróttafélagsins Fylkis.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Handknattleikskempan Sigfús Sigurðsson tók mjög óvænt þátt í
leik Vals og HK á mánudag. Honum var kastað inn á völlinn þegar
allt var að fara til fjandans hjá Val í leiknum. Sigfús átti ekki að
spila leikinn enda sama og ekkert æft. Hann kom þó inn og
stóð sig með miklum sóma.
„Ef þú bara vissir hvað þetta var gaman. Ég brosti alveg
út að eyrum eftir leikinn því ég gat þetta,“ segir Sigfús kátur
en fyrir rúmlega hálfu ári var honum tjáð að hann myndi
aldrei spila handbolta aftur en hann var þá nýkominn úr
hnéaðgerð. Hann neitaði að sætta sig við það svar.
„Ég læt ekki mann í sloppi segja mér hvað ég get og get
ekki. Ég gaf ekki upp vonina þó svo ég hefði fengið þennan
dóm. Ég vil hætta í handbolta á mínum forsendum og þetta
voru ekki þær forsendur,“ sagði Sigfús en þetta er í annað sinn
sem hann byrjar aftur í handbolta eftir að hafa verið tjáð að hann
myndi aldrei spila aftur handbolta.
„Ég fór í bakinu á sínum tíma og þá var ég líka afskrifaður. Ég
hlustaði heldur ekki þá og spilaði aftur tveim mánuðum seinna.
Það liggur við að þetta sé í annað sinn sem ég rís upp frá dauð-
um en þetta hefur ekki verið þrautalaus ganga.“
Fram undan hjá Val er bikarúrslitaleikur í Höllinni gegn
Haukum. Sigfús segist vera klár í að spila en veit ekki hvort
hann muni fá að taka þátt í leiknum.
„Það er Óskars þjálfara að meta það. Mig dauðlangar
auðvitað að spila og skrokkurinn er í góðu skapi og gefur
grænt ljós,“ sagði Sigfús en hann segir hnéð hafa verið fínt
í leiknum sem og í gær.
„Það eru smá harðsperrur svona daginn eftir en ekkert
alvarlegt. Ég sýndi það svo í þessum leik að ég á fullt
erindi í þetta enn þá þó svo ég sé í lítilli æfingu. Það mun
taka tíma og sérstaklega fyrir mann sem er að verða 35 ára
gamall. Prufukeyrslan lofaði samt góðu.“
SIGFÚS SIGURÐSSON: MÆTTUR AFTUR Á VÖLLINN SEX MÁNUÐUM EFTIR AÐ HANN VAR AFSKRIFAÐUR
Læt ekki mann í sloppi segja mér hvað ég get gert
FÓTBOLTI Barcelona og Bordeaux
standa vel að vígi í sextán liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu
eftir leiki gærkvöldsins. Barca
nældi í jafntefli á útivelli en Bor-
deaux gerði betur með því að vinna
á útivelli.
Leikurinn á Gottlieb-Daimler
Stadium fór rólega af stað og bæði
lið þreifuðu fyrir sér. Börsungar
voru þó ívið sterkari. Eftir því sem
leið á hálfleikinn jókst sjálfstraust-
ið hjá leikmönnum Stuttgart sem
fóru að sækja. Timo Gebhart átti
stórkostlega sendingu á fjærstöng
á 25. mínútu sem Cacau skallaði af
öryggi í netið. 1-0 fyrir Stuttgart
og Evrópumeisturunum brugðið.
Stuttgart gekk aftur á móti á
lagið og upphófst nú mikil stórsókn
að marki Börsunga. Aðeins þrem
mínútum eftir markið vildu leik-
menn Stuttgart fá víti er boltinn
fór augljóslega í höndina á Ger-
ard Pique. Dómarinn ákvað þó að
sleppa Pique.
Leikmenn Stuttgart voru ekk-
ert hættir og Cacau komst einn á
auðan sjó á 33. mínútu en ákvað að
gefa boltann í stað þess að skjóta.
Sendingin misheppnaðist og þar
var illa farið með gott tækifæri.
Cacau komst aftur einn í gegn
skömmu síðar og að þessu sinni
skaut hann að marki en Valdes
varði.
Á þessum kafla stóð ekki steinn
yfir steini í leik Barcelona og Evr-
ópumeistararnir voru stálheppnir
að vera ekki að allt að þrem
mörkum undir í hálfleik. Besta
færi Barca í hálfleiknum fékk
Lionel Messi fimm mínútum fyrir
leikhlé. Gamla brýnið Jens Leh-
mann sá aftur á móti við honum
og varði boltann í stöng.
Leikmenn Stuttgart nöguðu
sig eflaust í handarbökin í leik-
hléi yfir að hafa ekki skorað fleiri
mörk í hálfleiknum og það kom
því eins og köld vatnsgusa fram-
an í þá er Zlatan Ibrahimovic jafn-
aði leikinn fljótlega í síðari hálf-
leik. Zlatan fékk boltann einn á
teignum en skot hans var slakt og
Lehmann varði. Zlatan náði aftur
á móti frákastinu og skoraði í ann-
arri tilraun. 1-1 og Barca búið að
skora dýrmætt útivallarmark.
Börsungar voru þá komnir í
fína stöðu og spiluðu skynsam-
lega það sem eftir lifði leiks. Þeir
vörðu markið vel og reyndu síðan
að sækja hratt. Jafntefli var nið-
urstaða sem liðið sætti sig vel við
enda er liðið afar erfitt heim að
sækja og Stuttgart á erfitt verkefni
fyrir höndum. henry@frettabladid.is
Mikið basl á Barcelona
Evrópumeistarar Barcelona lentu í kröppum dansi gegn Stuttgart í gær en
klaufaskapur leikmanna Stuttgart varð þess valdandi að Börsungar hafa alla
ása á hendi fyrir seinni leikinn. Zlatan skoraði mikilvægt útivallarmark.
MARKIÐ DUGÐI EKKI TIL Cacau kom
Stuttgart yfir en það var ekki nóg.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
MIKILVÆGT MARK Zlatan Ibrahimovic fagnar markinu mikilvæga í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Englandsmeistarar
Man. Utd tóku á móti West Ham
í eina leik gærkvöldsins í enska
boltanum. Leikurinn endaði 3-0
fyrir United.
Fyrir leikinn var United fjór-
um stigum á eftir Chelsea og
mátti því alls ekki við því að tapa
leiknum í gær.
Leikmenn United tóku öll völd
á vellinum strax í upphafi og
sóttu nær linnulaust allan hálf-
leikinn, eitthvað hlaut undan að
láta.
Það gerðist á 38. mínútu er
Wayne Rooney stangaði knöttinn
í netið af stuttu færi eftir send-
ingu frá Antonio Valencia.
Rooney og Valencia endurtóku
leikinn þegar tíu mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik og það
mark kláraði leikinn.
Michael Owen afgreiddi síðan
leikinn tíu mínútum fyrir leiks-
lok er hann skoraði eftir send-
ingu Paul Scholes. Hann var þá
nýkominn inn á sem varamaður.
Munurinn á toppnum er því
aðeins eitt stig en Chelsea á leik
til góða.
- hbg
Enska úrvalsdeildin:
United heldur
áfram að elta
MAGNAÐIR Wayne Rooney og Antonio
Valencia afgreiddu West Ham í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES