Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010 7vetrarlíf ● fréttablaðið ● Ævintýrakastalar, risastórar styttur af Búdda og jafnvel egypskur sfinx eru meðal þess sem er að sjá á alþjóðlegri ís- og snjóhöggmyndahátíð í Harbin í Kína. Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 1963 en féll niður í nokk- ur ár vegna menningarbyltingar- innar í Kína. Hún hefur þó verið haldin árlega frá 1985. Harbin er höfuðborg Heilong- jiang-héraðsins í Kína. Borgin er í norðausturhluta Kína þar sem gætir vetrarvinda sem blása frá Síberíu. Meðalhitinn á veturna er 16,8 gráðu frost en kuldinn getur farið allt niður í mínus 38 gráður. Hátíðin hefst opinberlega í janúar og stendur í mánuð. Ís- og snjó- skúlptúrar eru af fjölbreyttum toga og nota listamennirnir bæði hefðbundnar aðferðir við gerð þeirra en einnig nýstárlegar á borð við leisertækni. Hátíðin í Harbin er ein af fjór- um stærstu íshátíðum heims. Hinar eru Sapporo-hátíðin í Japan, Quebec-vetrarkarnival í Kanada og skíðahátíð í Noregi. - sg Heil borg úr ís og snjó Heil borg úr ís og snjó hefur risið í Harbin í Kína þar sem fjórða stærsta ís- og snjóhátíð heims er haldin árlega. Kuldar eru miklir í borginni enda meðalhiti yfir vetrartímann um 16,8 gráður í mínus. Stærðir skúlptúranna eru magnaðar. Gestur hátíðarinnar skoðar mikilfenglega snjóstyttu á hátíðinni. NORDICPHOTOS/AFP ● REIKNAÐ MEÐ HARÐRI KEPPNI Vetrar- hlaup á vegum UFA fer fram á Akureyri næstkomandi laugar- dag. Rannveig Oddsdóttir, for- maður langhlauparadeildar UFA, segir hlaupið það fimmta af sex sem UFA stendur fyrir í vetur. „Hvert hlaup er sjálfstætt en það eykur vitanlega líkurn- ar á sigri í stigakeppni að taka þátt í öllum sex,“ segir hún og lýsir fyrirkomulaginu. „Hlaupið hefst við líkamsræktarstöðina Bjargey á laugardag klukkan 11. Hlauparar geta haft fata- skipti á Bjargi og farið í sturtu og heita potta eftir hlaup. Vegalengdin er tíu kílómetr- ar og tekur yfirleitt á bilinu 35-60 mínútur að klára hana. Keppt er í stigakeppni í flokki karla og kvenna og einnig í tveimur aldursflokkum. Eitt stig fæst fyrir þátttöku í hverju hlaupi. Fjögur efstu sætin í hverjum flokki gefa síðan tvö til fimm stig, þannig að fyrsti maður fær fimm stig, annar fjögur stig, þriðji þrjú stig og fjórði tvö stig.“ Rannveig bætir við að skráning fari fram hálf- tíma fyrir keppni en þátttöku- gjald er 500 krónur. Frítt er fyrir börn og unglinga sem æfa frjálsar íþróttir hjá UFA. Nánar á www.ufa.is. Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 arctictrucks.is Allt fyrir vetrarsportið Komdu á Kletthálsinn og skoðaðu úrvalið!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.