Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 22
 24. FEBRÚAR 2010 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● vetrarlíf Kristín Jóhannsdóttir hefur umsjón með túlkastarfsemi á Vetrarólympíuleikunum sem haldnir eru í Kanada um þessar mundir. Hún segir starfið fjöl- breytt og skemmtilegt. Kristín Jóhannsdóttir er borinn og barnfæddur Akureyringur en hefur verið búsett í Kanada í rúm tíu ár. Kristín flutti til Kan- ada til að kenna íslensku við Man- itoba-háskóla en flutti síðar til Vancouver til að stunda nám við Háskólann í Bresku-Kólumbíu og er um það bil að ljúka doktors- gráðu í málvísindum þaðan. Kristín segist hafa haft augun opin fyrir auglýsingu um tungu- málastarf í kringum Ólympíuleik- ana og sótti svo einfaldlega um vinnu. „Ég er ekki túlkur sjálf, en ég sé um túlkaþjónustu fyrir leik- ana, bæði sjálfboðaliðana og at- vinnumennina. Við höfum þrjátíu atvinnutúlka og um 200 sjálfboða- liða sem sjá um tungumálaþjón- ustu á öllum keppnisstöðum, sem og í blaðamannahöllinni og í Ólympíuþorpunum,“ segir hún. Kristín eyddi æskuárunum í Hlíðarfjalli þar sem hún æfði skíði af krafti og varð meðal annars nokkrum sinnum Akureyrarmeist- ari, bikarmeistari unglinga og var einnig í unglingalandsliði Íslands þegar hún var fjórtán ára. „Ég held að ég hafi fengið túlkastarfið vegna þess að ég er þessi blanda af málfræðingi og íþróttamanneskju. Þetta var auðvitað óskastarf fyrir mig þar sem það sameinar áhuga minn á tungumálum og íþróttum,“ útskýrir Kristín. Hún segir vinn- una í kringum leikana búna að vera skemmtilega, fjölbreytta og gjör- ólíka þeim akademíska heimi sem hún hafi lifað og hrærst í síðastliðin fjórtán ár. Þegar Fréttablaðið náði tali af Kristínu höfðu íslensku keppend- urnir aðeins keppt tvisvar og seg- ist hún fylgjast spennt með gengi þeirra á leikunum. Sjálf fer hún reglulega á skíði, gönguskíði og skauta og segist jafnframt vera mikill hokkíaðdáandi. „Ég fór reglulega á skíði og skauta þegar ég bjó í Manitoba en það er erf- iðara hér í Vancouver því hér er ekki mikið vetrarríki nema maður fari upp í fjöllin. Ég er líka forfall- inn hokkíaðdáandi en hef ekki enn tekið upp á því að spila hokkí sjálf því ég er ekki nógu góð á skautum til þess.“ Aðspurð segist Kristín ekki vita hvað taki við að Ólympíuleikunum loknum en segist ætla að byrja á því að klára doktorsritgerðina sína og útskrifast. „Eftir það er ekkert ákveðið. Kannski fer ég til Lond- on og vinn við Sumarleikana árið 2012. Kannski geri ég eitthvað allt annað. Lífið hefur einhvern veginn alltaf tekið sína eigin stefnu og ég fylgi með.“ - sm Orðin forfallinn hokkí- aðdáandi í Vancouver ● HÚÐIN MEIKUÐ GEGN KULDA Húðin getur ekki síður verið viðkvæm gagnvart kulda en hita og því mikilvægt að verja hana gegn versta frostinu, einkum ef fólk stundar útivist. Háræðar í andliti þenjast út í kulda og geta slitnað auk þess sem húðin getur orðið mjög þurr og jafn- vel þurrkblettir myndast þannig að hún verður flekkótt. Margir eru duglegir að nota feit krem og varasalva til að koma í veg fyrir slíkt en ekki er síður gott að farða andlitið vel yfir kremið og fá þannig enn betri vörn. Gott er að kaupa þá farða með sólvarnarstuðli því sólin er oft sterk á veturna og snjórinn endurvarpar geislum sólar. Kristín Jóhannsdóttir starfar við Vetrarólympíuleikana í Kanada. Hún segir starfið bæði skemmtilegt og fjölbreytt. MYND/ÚR EINKASAFNI ● BLÓÐ, SVITI OG TÁR Íslandsmót barna og unglinga í listhlaupi fyrir A- og B-keppendur fer fram í Skautahöllinni á Akureyri um næstu helgi. Hilda Jana Gísladóttir, formaður listhlaupadeildar Skautafélags- ins á Akureyri, reiknar með spennandi keppni. „Þetta eru 74 þátttak- endur frá Skautafélagi Reykjavíkur, Skautafélagi Akureyrar, sem stend- ur fyrir mótinu og Birninum sem munu berjast um efstu sætin,“ segir hún. „Í elstu A-flokkunum, sem kallast Novice (stúlknaflokkur), Junior (unglingaflokkur) og Senior (kvennaflokkur), er keppt bæði á laugardag og sunnudag. Niðurstaða þeirra flokka ræðst því ekki fyrr en seinni daginn, eftir seinni dansinn. Allir B-flokkar og yngri A- flokkar keppa bara einu sinni, þannig að eftir blóð, svita og tár eru það bara tvær til þrjár mínútur sem ráða úrslitum.“ Keppni hefst á laugardag klukkan 8 og stendur til 16. Hún heldur svo áfram á sunnudag milli klukk- an 8.30 til 12. Frítt er inn og selur foreldrafélag deildarinnar kaffi og með því á vægu verði til styrktar iðkendum. Nánar á www.skautasamband.is. Fyrsti erlendi ferðahópurinn sem von er á í Hlíðarfjall við Akureyri kemur frá Færeyjum 10. mars. Hann flýgur beint frá Vogum á Akureyrarvöll. „Þetta er 90 manna hópur sem kemur hingað með leiguflugi og stoppar í fjóra daga,“ segir Guð- mundur Karl Jónsson, forstöðu- maður í Hlíðarfjalli, glaðlega. Ekki er bara um skólafólk að ræða heldur blandaðan hóp en býst hann við að fólkið sé vant á skíðum? „Já, Færeyingar fara alveg þokkalega mikið á skíði en hafa alltaf hald- ið suður á bóginn þar til núna að þeir horfa hingað norður. Við erum mjög ánægð með það. Það er trúlega ódýrara fyrir þá að koma hingað og við bjóðum ekki upp á síðri aðstöðu. Þeir verða hér á hót- elum í bænum og svo alla daga í fjallinu,“ segir hann. „Þetta er ekta pakkaferð,“ bætir hann við og kveðst vonast til að enn fleiri hópar komi á næsta ári. Guðmundur Karl segir Færey- ingana koma gegnum Ferðaskrif- stofu Akureyrar sem er líka að selja flugsæti út, þannig að Íslend- ingum gefst kostur á að skreppa til Færeyja og dvelja þar í fjóra daga, meðan skíðafólkið þaðan er fyrir norðan. „Reykvíkingar þurfa bara að millilenda á Akureyri,“ segir Guðmundur Karl hlæjandi. - gun Færeyingar í fyrsta hópnum Snjóað hefur jafnt og þétt í Hlíðarfjalli undanfarið og þar er jafnan mikið fjör. Þetta langar Færeyinga að fá að upplifa. FRÉTTABLAÐIÐ/INDÍANA Arna Guðmunds dóttir, lyfl æknir, sérfræðingur í innkirtla- og efna- skiptasjúkdómum Axel F. Sigurðsson, hjartalæknir Kristjana Jónasdóttir, sjúkraþjálfari Fræðslunámskeið í Heilsuborg Hefur þú greinst með háþrýsting, hækkaðan blóðsykur, sykursýki eða hjartasjúkdóm? Vilt þú bæta lífsstílinn og vita hvað þú getur gert til að ná betri tökum á heilsunni? Laugardaginn 27. febrúar á milli kl. 9 og 13 Erla Gerður Sveinsdóttir, læknir Bertha María Ársælsdóttir, matvæla- og næringar fræðingur Skráning í síma 560 1010 eða á heilsuborg@heilsuborg.is Tilboðsverð kr. 8.900,- Frjáls aðgangur að heilsurækt Heilsuborgar í eina viku ● SKÍÐAPARADÍS AUSTURLANDS Troðinn, þurr snjór og frábært færi er á skíðasvæðinu í Oddsskarði, milli Eskifjarðar og Norðfjarð- ar, að sögn Aðalheiðar Bjark- ar Arnarsdóttur í afgreiðslu skíðaskálans þar. „Hér hefur snjóað helling síðustu daga og fólk sækir í brekkurnar,“ segir hún. Opið er daglega í Oddsskarði frá klukkan 14 til 20 alltaf þegar veður leyfir en í gær var topplyftan lokuð vegna ísingar. Neðri lyftan var hins vegar opin og byrjendalyftan einnig. Aðalheiður segir síðustu vikur hafa verið hagstæðar skíðaáhugamönnum fyrir austan.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.