Fréttablaðið - 24.02.2010, Side 8
8 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
1 Hvað heitir bæjarstjórinn í
Kópavogi?
2 Hvers konar verksmiðju vilja
sveitarfélög á Norðurlandi
reisa?
3 Hvaða íslenska veitingastað
reynir erlent risafyrirtæki að
skikka til að skipta um heiti?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
Hafðu samband
sími
Verðbréfaþjónusta Arion banka
er söluaðili sjóða Stefnis.
Kynntu þér sjóðina hjá starfsfólki
verðbréfaþjónustu Arion banka
í síma 444 7000, í næsta útibúi
eða á arionbanki.is/sjodir
Enginn kostnaður
Stefnir - Samval.
Meiri möguleikar á
breytilegum markaði.
Fjárfestir í þeim eignaflokkum sem ákjósanlegastir eru hverju sinni
– eignastýring í einum sjóði
Virk stýring í skuldabréfum og hlutabréfum. Áhersla á ríkistryggð
skuldabréf undanfarin misseri
Fjárfestir að mestu í öðrum sjóðum til að auka enn frekar áhættudreifingu
Góður kostur í langtímasparnaði og hentar vel í reglubundnum sparnaði
16,0% meðalnafnávöxtun síðastliðin 5 ár*
Lágmarkskaup 5.000 kr.
Ávöxtunartölur vísa til fortíðar. Fyrri ávöxtun sjóða gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur þeirra. Vakin er sérstök athygli á að almennt fylgir áhætta fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum sjóða, t.d. getur fjárfesting
rýrnað eða tapast að öllu leyti. Stefnir - Samval er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Stefnir hf. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þ.á m. nánari upplýsingar um
áhættu við fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum hans, má finna í útboðslýsingu og útdrætti úr útboðslýsingu sjóðsins, sem nálgast má á www.arionbanki.is/sjodir.
*Upplýsingar fengnar af www.sjodir.is
fyrir tímabilið 31.01.2005–31.01.2010.
ALÞINGI Ísland hefur frá 1996 greitt
tæpan milljarð króna fyrir þátt-
töku í Schengen-samstarfinu. Um
er að ræða greiðslur til stofnana
Evrópusambandsins auk kostnað-
ar sem sérstaklega er stofnað til
hér á landi.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í svari Rögnu Árnadóttur,
dómsmála-
og mannrétt-
indaráðherra,
við fyrirspurn
Sigurðar Inga
Jóhannssonar,
þingmanns
Framsóknar-
flokksins, um
Schengen-sam-
starfið.
Sigurður
spurði meðal annars um mat ráð-
herra á ávinningi samstarfsins.
Leggur Ragna áherslu á að frjáls
för fólks grundvallist á EES-
samningnum en ekki Schengen-
samstarfinu. Bendir hún líka á að
þrátt fyrir að persónueftirlit hafi
verið afnumið á innri landamær-
um Schengen-svæðisins komi það
ekki í veg fyrir að lögregla geti
framkvæmt slíkt eftirlit. Í svar-
inu er bent á mikilvægi aðildar að
Schengen-upplýsingakerfinu sem
talið sé eitt mikilvægasta tæki til
lögreglusamvinnu innan Evrópu.
Fram kemur að afnám landa-
mæraeftirlits á innri landamær-
um geti gert afbrotamönnum
hægara um vik við undankomu til
annarra ríkja. Endurkomubann
og farbann séu haldlítil þegar í
hlut eigi brotamenn sem staddir
eru innan svæðisins og eru stað-
ráðnir í að koma aftur til landsins.
Segir dómsmála- og mannrétt-
indaráðherra að landamæraeftirlit
myndi vissulega auka möguleika
íslenskra yfirvalda til að fram-
fylgja endurkomubanni. Á hinn
bóginn myndi slíkt landamæra-
eftirlit engu breyta um að íslensk
yfirvöld stæðu berskjölduð gagn-
vart margfalt stærri hópi erlendra
glæpamanna sem hér gæti hlaup-
ið í skjól frá handtökuskipunum
sem skráðar séu í upplýsingakerfi
Schengen.
Líkt og áður sagði hefur Ísland
varið tæpum milljarði króna til
Schengen-samstarfsins. Gerir ráð-
herra ráð fyrir að eftirleiðis verði
kostnaðurinn um 150 milljónir
króna á ári, að meðaltali. Er talið
að svipaður kostnaður yrði við
upptöku landamæraeftirlits með
öllum farþegum á leið til Íslands
frá Evrópu. bjorn@frettabladid.is
Schengen-aðild betri en að
standa utan samstarfsins
Yfirvöld stæðu frammi fyrir alvarlegri vandamálum utan Schengen-samstarfsins en innan. Aðild fylgir
aðgangur að mikilvægu upplýsingakerfi. Ísland hefur greitt tæpan milljarð króna vegna aðildarinnar.
RAGNA
ÁRNADÓTTIR
LANDAMÆRAEFTIRLIT Í LEIFSSTÖÐ Nokkrum sinnum hefur verið gripið til sérstaks
landamæraeftirlits á Keflavíkurflugvelli. Á það einkum við þegar von hefur verið á
erlendum glæpagengjum sem hafa átt vingott við Íslendinga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið
(FME) hefur gert athugasemdir
við viðskipti tryggingafélagsins
Elísabet, sem er í eigu Trygginga-
miðstöðvarinnar (TM), og annars
félags, sem ekki er nefnt á nafn.
Flest bendir til að þar sé átt við
Sjóvá.
FME skoðaði iðgjöld og við-
skiptahætti vátryggingafélag-
anna. Í tilfelli Elísabetar laut
athugasemdin að framsetningu
auglýsinga og að ekki hafi komi
fram með nógu skýrum hætti að
vörumerkið Elísabet væri í eigu
TM. Brugðist var við athuga-
semdum FME innan tilskilinna
tímamarka, að því er segir í til-
kynningu. - jab
FME gagnrýnir tryggingafélög:
Viðskipti Sjóvár
og TM skoðuð
SJÓVÁ Margt bendir til að Sjóvá sé
annað tveggja tryggingafélaga sem FME
hafi skoðað og gagnrýnt.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHLEM
VIÐSKIPTI „Félagsmönnum hefur
ekki fækkað þrátt fyrir hrunið.
Í síðasta félagatali voru þeir um
fimmtán hundruð. Færri þeirra
eiga nú hlutabréf,“ segir Vilhjálm-
ur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Samtaka fjárfesta. Sam-
tökin halda almennan fund í dag
þar sem fjallað verður um nokk-
ur dómsmál sem gengið hafa að
undanförnu, svo sem gegn Glitni
og Straumi.
Vilhjálmur segir samtökin
hafa komið vel undan efnahags-
hruninu. Þau keyptu hlutabréf í
Verðbréfaþingi í kringum 1995,
höfðu arð af
fjárfestingunni
og fengu dágóða
summu þegar
sænska kaup-
hallarsamstæð-
an OMX tók þá
íslensku yfir
árið 2007. Sölu-
andvirðið var í
sænskum krón-
um. Það hefur
frá upphafi legið inni á reikningi,
nemur nú sjö hundruð milljónum
króna og lýtur bæði stjórn sam-
takanna og viðskiptaráðuneytis.
Einu tekjur sjóðsins eru vextir á
reikningnum. Fé úr sjóðnum er
nýtt til rekstrar samtakanna og
er Vilhjálmur eini launaði starfs-
maður þeirra. Eina eign samtak-
anna til viðbótar eru hlutabréf
í Kauphöllinni upp á um sextíu
milljónir króna.
Ekki eru greidd félagsgjöld í
Samtökum fjárfesta. Vilhjálmur
segir það hafa verið reynt síðast
fyrir um fjórum árum. Vilhjálm-
ur segir innheimtuna hafa verið
dýra og því ákveðið að fella hana
niður þegar söluandvirðið skilaði
sér á sínum tíma. - jab
Samtök fjárfesta komu vel undan hruninu og funda um stöðu hluthafa:
Eiga hundruð milljóna í sjóði
SCHENGEN-KOSTNAÐURINN
Ár Fjárhæð
2009 94,6
2008 137,5
2007 71,4
2006 98,3
2005 46,9
2004 42,5
2003 72,4
2002 65,4
2001 111,9
2000 105,7
1999 113,2
1998 5,8
1997 7,2
1996 4,8
Fjárhæðir eru í milljónum króna.
VILHJÁLMUR
BJARNASON
LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í
vinnubúðir við Herdísarvík sem
eru á vegum verktaka við Suð-
urstrandarveg í gærmorgun eða
fyrradag.
Auk iðnaðarvéla var mörgum
heimilistækjum stolið. Má þar
nefna uppþvottavél, frystikistur,
þvottavélar, þurrkara, gaseldavél,
gufuofn, hrærivél, örbylgjuofn,
flatskjá og fjölda búsáhalda. Til
verksins hefur þurft stóran flutn-
ingabíl. Lögreglan á Selfossi biður
þá sem veitt geta upplýsingar að
hafa samband í síma 480 1010. - jss
Brotist inn í vinnubúðir:
Vörubílsfarms
af þýfi leitað
VEISTU SVARIÐ?