Fréttablaðið - 24.02.2010, Side 17

Fréttablaðið - 24.02.2010, Side 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 KUÐUNGURINN, umhverfisviðurkenning umhverfisráðuneytisins, verður afhentur 25. apríl. Umhverfisráðuneytið óskar eftir tilnefning- um um fyrirtæki eða stofnanir sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta Kuðunginn. www. umhverfisraduneyti.is „Þetta var mjög skemmtileg og ævintýraleg ferð,“ segir Sigurgeir Finnsson, bókasafns- og upplýs- ingafræðingur á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, um tónlistarferðalag sem hann fór í til Frakklands í ágúst 2005. Tildrögin að ferðinni voru sú að Einar Melax, sem þá var tónlistar- kennari á Grundarfirði, fékk þá hugmynd að setja saman hljómsveit með það að markmiði að komast á sjómannalaga- og þjóðlagahátíðina Fête du chant de marin, sem hald- in hefur verið í bænum Paimpol í Frakklandi annað hvert ár í ára- tugi. Hljómsveitin átti að spila gömul og nýrri íslensk sjómanna- lög. „Einar hafði dvalið í Paimpol í nokkra mánuði árið áður og þannig haft veður af þessari hátíð,“ segir Sigurgeir. „Ég á vini sem eru ætt- aðir frá Grundarfirði og þannig kynntumst við Einari. Mér var boðið að vera með í þessari hljóm- sveit sem trommuleikari. Við gerð- um demó, sendum út og fengum inni á hátíðinni, hugsanlega einn- ig fyrir tengsl Grundarfjarðar og Paimpol sem eru vinabæir.“ Hljómsveitin hlaut nafnið Rauð- ir fiskar og alls flugu tíu manns til Parísar í byrjun ágúst, hljóm- sveitarmeðlimir og fylgifiskar. Tveir bílaleigubílar voru fylltir af farangri og hljóðfærum og svo hélt hópurinn af stað þvert yfir Frakkland, alla leið til Paimpol, sem er lítill sjómannabær á Breta- gne-skaganum. „Bærinn er mjög fallegur og notalegur með stórri höfn. Hann hefur mikla Íslands- tengingu og bæði götur og veit- ingastaðir í Paimpol heita eftir Íslandi. Fête du chant de marin er frek- ar stór tónlistarhátíð og sækja hana mörg þúsund gestir. Stærsta númerið á þessari hátíð var Goran Bregovic og við fórum að sjálfsögðu að sjá hann, sem var algjörlega óleymanlegt,“ segir Sigurgeir. Hann segir tónleikasvæðið á hátíðinni vera einkar skemmtilegt. Öll sviðin eru við höfnina sem er U- laga, eitt sviðið er um borð í gam- alli seglskútu og standa þá áhorf- endur á bakkanum og flytjendur eru um borð í bátnum. Rauðir fisk- ar komu þrisvar sinnum fram, þar af eitt skipti í bátnum. Eftir að hátíðinni lauk dvaldi hópurinn í nokkra daga áfram í Paimpol. „Okkur var boðið í sigl- ingu á vegum Íslendingafélags- ins í bænum á gamalli seglskútu sem var nánast algjörlega gam- aldags. Það eina nútímalega við hana var lítill mótor sem eingöngu var notaður til að komast inn og út úr höfnum,“ segir Sigurgeir og bætir við að hápunktar ferðarinnar hafi verið tónleikar Rauðra fiska, tónleikar Bregovic og siglingin í seglskútunni. kjartan@frettabladid.is Spilaði um borð í bát Sigurgeir Finnsson sótti sjómannalaga- og þjóðlagahátíðina Fête du chant de marin í bænum Paimpol á Bretagne-skaga og tróð þar upp ásamt hljómsveitinni Rauðum fiskum frá Grundarfirði sumarið 2005. Sigurgeir segir bæinn Paimpol á Bretagne-skaga vera lítinn og notalegan og hafa mikla tengingu við Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Slys og veikindi barna Námskeiðsgjald: 6.500 kr. á mann en 5.000 krónur ef maki eða eldra systkini tekur líka þátt. Leiðbeinandi er Sigrún Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur. Innifalin eru námskeiðsgögn og þátttökuskírteini. Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 www.redcross.is/kopavogur opið virka daga kl. 10-16 Skráning er til 14.mars Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið Slys og veikindi barna 8. og 10 mars kl. 18-21 í Hamraborg 11, 2 hæð. Á námskeiðinu er fjallað um varnir gegn slysum á börnum og orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri. Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu tagi, endurlífgun barna, andlegum undirbúningi við komu barna á sjúkrahús o.fl. Frekari upplýsingar fást í síma 554 6626 eða með tölvupósti á kopavogur@redcross.is. Skráning er til 4. mars. Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildar fá ókeypis á námskeiðið og félagsmenn sem greitt hafa félagsgjaldið fá 10% afslátt. Gistiheimili í Kaupmannahöfn Herbergi og studioíbúðir í miðbænum sími 0045-2848 8905La Villa

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.