Fréttablaðið - 24.02.2010, Side 26
24. FEBRÚAR 2010 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● vetrarlíf
Skíðafæri og aðstæður eru
afar misjafnar milli landshluta
þessa dagana. Nægur snjór er
á Norðurlandi en ekkert hefur
verið opnað í Bláfjöllum og
Skálafelli í vetur.
„Það er rosalega skemmtilegt að
standa í þessu þegar svona vel
gengur,“ segir Alfreð Almars-
son, skrifstofustjóri skíðasvæðis-
ins í Hlíðarfjalli á Akureyri. Að-
spurður segir hann hafa gengið á
með éljum í gærdag en aðstæður
væru fínar í fjallinu og nokkuð um
skíðandi fólk.
Alfreð segir of mikinn snjó
aldrei verða að vandamáli, en
stóra spurningin sé hvenær snjó-
ar. „Þegar það snjóar svona meðan
opið er þá þyngist að sjálfsögðu
færið, en það er ekkert vandamál.
Hingað mæta þrír menn á þrem-
ur troðurum á miðnætti og troða
til klukkan tíu á morgnana, þannig
að þetta er hörkuvinna. Ég myndi
giska á að þeir troði í kringum
fjörutíu til fimmtíu hektara.“
Alfreð segist búa við góðri að-
sókn á skíðasvæðið um helgina,
þótt ólíklegt sé að hún verði jafn
góð og um síðustu helgi. „Sú helgi
var svakaleg. Vetrarfríið í skól-
unum hefur sitt að segja og menn
eru að tala um að laugardagurinn,
þegar tæplega 2.700 gestir renndu
sér á skíðum í fjallinu, sé næst
stærsti dagurinn í sögu svæðisins.
Ég myndi telja að um 2.500 hafi
verið aðkomufólk, enda bærinn
fullur af fólki og flest gistirými
upppöntuð. Fólk gisti á Illugastöð-
um í Fnjóskadal og lengst inni í
Eyjafirði.“
DANSA SNJÓDANSINN Í BLÁFJÖLLUM
Magnús Árnason, framkvæmda-
stjóri skíðasvæðanna á höfuðborg-
arsvæðinu, var staddur á Ísafirði
að kynna sér snjóframleiðslu þegar
Fréttablaðið náði tali af honum í
gær. Spurður um skíðafærið í Blá-
fjöllum og Skálafelli segir hann
slíkt færi ekki vera til staðar. „Við
fylgjumst grannt með spánni og í
dag hefur hún breyst úr töluverðri
snjókomu í smá snjókomu og gæti
verið að breytast aftur, en við þurf-
um tvo heila daga í almennilegri
snjókomu til að geta farið að gera
eithvað. Ég vona að það gerist fljót-
lega. Við höfum reynst ýmislegt til
að kalla snjóinn fram, dansað snjó-
dansinn og fleira.“ Hann segir það
aldrei hafa gerst í sögu Bláfjalla
að ekkert hafi verið opnað yfir
veturinn. „Einhvern tímann er allt
fyrst, en við vonum að það verði
ekki núna.“
FÁ MARGA HÓPA AÐ SUNNAN
Aðstæður voru góðar á skíðasvæði
Dalvíkur í Böggvisstaðafjalli í gær,
þótt heldur snjóþungt væri. Björg-
vin Hjörleifsson, þjálfari á skíða-
svæðinu, segir mikinn fjölda af
skíðafólki úr Reykjavík hafa sótt
svæðið heim að undanförnu. „Við
fáum hingað marga þrjátíu til fjöru-
tíu manna æfingahópa. Um helgina
eigum við til að mynda von á 200
til 300 manna hópi úr félagsmiðstöð
og annað eins um þarnæstu helgi.
Hér verður allt í fínum gangi þar til
snjóinn þrýtur,“ segir Björgvin. - kg
Snjódansinn stiginn
Æfingahópar frá Reykjavík streyma á
skíði til Dalvíkur þessa dagana.
Tæp 2.700 manns renndu sér á skíðum í Hlíðarfjalli á laugardaginn var sem er met.
Það hefur aldrei gerst í sögu Bláfjalla að lokað hafi verið allan veturinn og framkvæmdastjóri svæðisins vonar að engin breyting
verði á nú. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Við þurfum tvo heila daga í almennilegri snjókomu til að geta farið að gera eithvað,“
segir framkvæmdastjóri skíðasvæðisins í Bláfjöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Öryggi í fjallaferðum!
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi | S: 577 6000 | www.garmin.is
Arva EVO3 snjófl óðaýlar eru með þeim einföldustu á markaðnum án þess
að öryggi sé fórna. EVO3 er 100% stafrænn, þriggja loftneta og sýnir
vegalengd og stefnu í rauntíma á LCD-skjá. 5 ára verksmiðjuábyrgð.
TM
Einnig skóflur
og snjóflóðastangir í miklu úrvali.
GARMIN BÚÐIN
● DALVÍKURSLEÐINN TIL DANMERKUR
Dalvíkursleðinn er meðal margra eigulegra
muna á sýningunni Ís-
lensk samtímahönnun -
húsgögn, vöruhönnun og
arkitektúr sem verður opnuð
í Dansk Design Center nú á föstudag-
inn, 26. febrúar. Þessi virta, danska hönn-
unarmiðstöð er á HC Andersens Boulevard
og þetta mun vera í fyrsta sinn sem íslensk sýning er sett þar upp. Hún
skapar einstakt tækifæri fyrir íslenska hönnun og arkitektúr og er liður í
markvissri kynningu og markaðssetningu Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Dalvíkursleðinn er hannaður af Dalvíkingnum Degi Óskarssyni vöru-
hönnuði og framleiddur af Promens á Dalvík. Sleðinn er upphafning
á gömlum arfi, jafnt hugsaður til hagnýtra nota og gamans að því er
segir á heimasíðu Dags.
● FLJÓTANDI HÓTEL
Fjallaleiðsögumaðurinn
Jökull Bergmann býður
upp á ýmsar skemmti-
legar nýjungar í vor. Þar
ber hæst fjallaskíðaferð-
ir á skútu þar sem siglt
verður vestur frá Húsavík
og um Náttfaravíkur, Flat-
eyjarsund og Hvalvatns-
fjörð. „Farið verður á skútu
frá Norðursiglingu á Húsa-
vík og viðkoma höfð á þessum stöðum þar sem farþegum gefst færi
á skíðaiðkun,“ útskýrir Jökull og bætir við að gist verði um borð í skút-
unni. „Segja má að hún gegni hlutverki eins konar hótels, þar sem far-
þegar borða og hafa náttstað.“
Þá segist Jökull ætla að keyra af stað með annað verkefni sem hann
prófaði síðasta sumar. „Ég mun bjóða upp á nýjar ferðir á Tröllaskaga
sem kallast Haute Route tröllanna. Þar verður farið yfir Tröllaskaga þver-
an frá norðri til suðurs, það er að segja frá Siglufirði og til Akureyrar.“