Fréttablaðið - 24.02.2010, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 5
„Þetta er útivistar- og skemmtiferð
með léttum göngum og sagan er við
hvert fótmál. Þarna verður innlend-
ur, fróður fararstjóri aðalmaður-
inn. Ég verð honum svo til halds og
trausts,“ segir Magnús brosandi
þegar hann er spurður út í væntan-
lega Tyrklandsferð Göngu-Hrólfs.
Magnús er margreyndur farar-
stjóri, meðal annars um Grikkland
og Pýreneafjöllin og um söguslóðir
Íslendinga því hann hefur tekið við
af Jóni Böðvarssyni að fræða fólk
um Íslendingasögurnar hjá Endur-
menntun HÍ.
Magnús segir ferðina til Tyrk-
lands einmitt sniðna fyrir þá sem
vilji frekar ganga um fornar borg-
ir og minjar en fjöll og firnindi.
„Hápunktur ferðarinnar verður
skoðunarferð um hina einstöku
borg Efesus sem er eitt mikilvæg-
asta fornminjasvæði heims. Þar
eru marmaragötur, hringleikahús
og baðhús,“ lýsir Magnús og minn-
ist á margt áhugavert svo sem ferð
til Afrodisias, borgar ástargyðjunn-
ar, en þangað segir hann fólk hafa
komið til að baða sig úr heilsusam-
legu vatni allt frá því um 2000 fyrir
Krist. Sigling milli hinna tólf eyja
Fethye-flóans er á dagskrá og farið
verður í skoðunarferð um grískan
draugabæ að sögn Magnúsar auk
þess sem siglt verður um undur-
fagra árósa að Iztuzu-ströndinni.
„Ströndin er friðuð vegna sæskjald-
bakanna sem verpa þar,“ upplýsir
hann og bendir á greinargóðar upp-
lýsingar á síðunum www.vita.is og
www.gonguhrolfur.is auk þess sem
kynning sé á ferðum Göngu-Hrólfs
í kvöld klukkan 20 í húsakynnum
Vitaferða í Skútuvogi 13.
gun@frettabladid.is
Sagan við hvert fótmál
Tíu daga göngu- og söguferð um suðvesturhluta Tyrklands er fram undan hjá Göngu-Hrólfi og Ferðaskrif-
stofunni Vita. Lagt verður upp í lok maí og fararstjóri verður Magnús Jónsson, gönguhrólfur og sögumaður.
Gengið á land í eyju í Fethye-flóanum.
Í Efesus eru geysilega mikilvægar fornminjar. MYND/GÖNGU-HRÓLFUR
Ég verð tyrkneska fararstjóranum til halds og trausts,“ segir Magnús hógvær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Langar flugferðir geta verið erf-
iðar. Einkum getur flug til fjar-
lægra staða, sem tekur kannski
sex klukkutíma eða meira, verið
slæmt fyrir blóðrásina. Hefur
jafnvel mátt rekja blóðtappa til
kyrrsetu á löngum flugleiðum.
Hér eru nokkur heilræði sem
bætt geta líðan ferðalanga.
■ Þeir sem haldnir eru sjúkdóm-
um eða taka lyf reglulega ættu
að ráðfæra sig við lækni sinn
áður en haldið er af stað.
■ Forðast streitu með því að fara
tímanlega út á flugvöll.
■ Nota kerrur og önnur hjálpar-
tæki við að flytja farangur.
■ Vera í þægilegum ferðafötum
og skóm.
■Fara í létta göngu í flugstöðinni
meðan beðið er eftir brottför.
■ Forðast þungar máltíðir.
■ Drekka vatn, helst lítið í einu
en oft.
■ Drekka áfengi, kaffi og te í hófi
eða alls ekki.
■ Hreyfa sig öðru hverju meðan
á flugi stendur.
■ Gera léttar æfingar í sætinu. Til
dæmis fyrir háls, herðar, ökkla,
kálfa, bak og mjaðmir bæði
með því að liðka liðamót og
teygja úr vöðvum.
■ Reyna að sofa eða hvílast.
■ Nota tækifærið og teygja úr
sér og ganga um meðan beðið
er eftir farangri.
■ Ef börn eru með í för þarf að
gæta sérstaklega vel að líðan
þeirra og tryggja þeim hæfi-
lega blöndu af hreyfingu,
skemmtun og ró.
Heimild: www.landlaeknir.is
Heilræði á flugi
LANGAR FLUGFERÐIR GETA
VALDIÐ ÁLAGI Á LÍKAMANN.
GOTT ER AÐ HREYFA SIG SEM
MEST, DREKKA VATN OG FORÐAST
STREITU.