Fréttablaðið - 24.02.2010, Qupperneq 39
MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 23
Leikhús ★★★
Ufsagrýlur
Eftir Sjón
Sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Leikarar: Aðalbjörg Árnadóttir,
Árni Pétur Guðjónsson, Hjálmar
Hjálmarsson, Erling Jóhannes-
son, Birna Hafstein, Orri Huginn
Ágústsson, Magnús Örn Sigurðs-
son, Huld Óskarsdóttir, Gísli Björn
Heimisson, Halldór Magnússon,
Júlía Hannam, Magnús Örn Sig-
urðsson, Rúnar Örn Marinósson.
Leikmynd: Móeiður Leifsdóttir.
Búningar: Myrra Leifsdóttir. Leik-
gervi: Ásta Hafþórsdóttir. Tón-
list/hljóðmynd: Stilluppsteypa.
Grímur: Þórður G. Þorgeirsson.
Kvikmynd og vinnsla mynda:
Guðbergur Davíðsson, Konráð
Gylfason. Ljósmyndun: Snorri
Gunnarsson.
Endurhæfing og tilraunaspítali.
Hrottalegar fangabúðir og hver
er ábyrgur fyrir þeim? Urðu heil-
ar þeirra, sem svindluðu og brösk-
uðu, átu gull og tróðu kókaíni í nefið
á sér, að hnoðmör? Það eru marg-
ar áleitnar spurningar sem fléttast
inn í þau ótal atriði sem fyrir augu
ber í sýningunni Ufsagrýlur.
Meðan þulið var hér upp úr guð-
spjalli græðginnar voru svo kall-
aðar leiðtogabækur vinsælar. Nú
eru þær jafn hallærislegar og legg-
hlífar leikfimiskynslóðarinnar. Við
hefur tekið nýtt listform eða ismi
í bókmenntum og leikritaskrifum,
hrunflæði. Líklega munu fræði-
menn framtíðar líta á þetta sem
einhverja hrynjandi og svar með
flottum viðskeytum. Í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu er hrunið sviðsett
með mörgum samsettum myndum
í sýningu Lab Loka-hópsins undir
styrkri stjórn Rúnars Guðbrands-
sonar. Það er texti eftir ljóðskáld-
ið Sjón sem liggur til grundvallar,
texti sem á köflum snerist gegn
sjálfum sér þannig að framganga
verksins leið fyrir það.
Leikmyndin þjónar ekki aðeins
gangi mála heldur er hún ógnvaldur
í sjálfu sér. Verur í búrum og lýsing-
ar eða skuggavarp inn í búrin í upp-
hafi lifir svo áfram í öllum leiknum.
Þessi köflótti bakgrunnur varð á
stundum eins og flísalagður veggur
í sterílu sjúkrarými. Þar voru einn-
ig alls kyns tæki og tól sem leiddu
hugann á þær slóðir. Lýsingin fyrir
ofan búraröðina tók allan tím-
ann þátt í leiknum. Það er Garðar
Ólafsson sem útfærði hana.
Fyrir svo utan að samviskan,
draugurinn eða hinn innri maður
sem birtist við hlið Veigars var
bæði töfrandi og svolítill galdur í
sjálfu sér. Það var engu líkara en
að hreyfanleg glansmynd lifði undir
skikkju verunnar. Það var bæði
heillandi og smart. Hljóðmyndin
var allan tímann ógnandi og jók á
áhrifamátt verksins.
Verkið er byggt upp af atrið-
um sem í byrjun virðast algerlega
laustengd en þegar á líður límast
saman, þó sú líming hafi nú tekið
nokkurn tíma í upphafi. Öskrandi
marbendlar, sæskrímsl eða upp-
vakningar brjótast út úr búrum
sínum með ógnarlátum og vakt-
menn tilraunaspítalans verða að
hafa grímur og hanska til þess að
verða ekki fyrir eitrun. Yfirlækn-
irinn Móra er snemma kynnt til
leiks, hún er eins og ýkt mynd af
Helgu úr Allo allo sjónvarpsþátt-
unum um frönsku andspyrnuhreyf-
inguna. Hún er látin tala með þýsk-
um hreim, sem er ofnotuð klisja en
Birna Hafstein er bísperrt og kraft-
mikil í þessu eintóna hlutverki og
á köflum nokkuð fyndin. Aðalbjörg
Árnadóttir, sem leikur Nínu eigin-
konu fórnarlambsins og frama-
gosans Veigars Mar, nær að heilla
áhorfendur upp úr skónum í eintali
sínu um það líf sem hún og eigin-
maðurinn höfðu lifað áður. Hlut-
verk hennar er líka af höfundarins
hendi þannig að auðveldast er að ljá
því kjöt á beinin.
Blásið er til mikillar veislu í Þjóð-
menningarhúsinu þar sem svín-
in koma saman. Með galtargrím-
ur birtist þar skikkjuklætt fólk og
einn af aðalgöltunum er gestgjafi
kvöldsins og kynnir söngvara sem
hann hefur flutt inn frá útlöndum.
Erling Jóhannesson bregður upp
grátbroslegri mynd af þessu útja-
skaða smámenni, leikur hans og
gervi með nösina blæðandi var frá-
bær. Eins var Árni Pétur Guðjóns-
son mjög sterkur í hlutverkinu á
grímuballinu, það var líkt og rödd-
in kæmi úr djúpum helli slíkur var
styrkurinn.
Orri Huginn Ágústsson fer með
hlutverk Veigars Mars sem sigldi
öllu í strand en hafði verið svo
smart í fylgd forseta og frama-
gosa. Hann er fangi í eigin líkama
spastískur og heilabilaður og fyrst
og fremst minnislaus. Það er alveg
greinilegt hvert höfundur vill hér
fara með þessum atriðum og Orri
skilaði þessu hlutverki vel en atriðin
voru bara allt of löng.
Hjálmar Hjálmarsson er flottur
sem Georg skipstjóri, skipstjóri á
skipi sem siglir undir fölsku flaggi.
Allur sá kafli hefði þó mátt missa
sín, en það er jú sem kunnugt er
ótrúlega erfitt að slátra góðum eigin
hugmyndum. Hverjar eru þess-
ar ufsagrýlur? Eru það afturgöng-
ur sem sitja klofvega uppi á burst-
um bæja okkar, eru það við eða þið,
hverjir eru hinir seku?
Leikhópurinn Lab Loki hefur
hér sett saman áhugaverða sýn-
ingu, gervin voru þrekvirki, bún-
ingar flottir, minnið um hænuna
sem verpir gullegginu fær sinn
sess í stólpípukaflanum þar sem
menn bíða í ofvæni eftir að geta
leitað að gulli í lortinum sem er svo
fallega um talað að hann verður að
lordi eða lávarði. Grímur Þórðar G.
Þorgeirssonar voru mjög góðar og
þjónuðu verkinu.
Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Mikið er lagt í þessa
margbreytilegu sýningu.
Óður um ástandið
UFSAGRÝLUR Í HAFNARFIRÐI „Verkið er
byggt upp af atriðum sem í byrjun virðast
algerlega laustengd en þegar á líður límast
saman,” segir í umsögn Elísabetar Brekkan.
Söngvarinn Friðrik Ómar ætlar
að halda átta Elvis-tónleika í við-
bót vegna mikillar eftirpurnar.
Friðrik hélt þrenna tónleika í
Salnum í Kópavogi í síðustu viku
og seldist upp á þá alla.
Sex af tónleikunum verða í
Salnum og hefjast þeir fyrstu 4.
mars. Einir tónleikar verða í Mið-
garði í Varmahlíð 11. mars og
kvöldið eftir verður Friðrik ásamt
föruneyti í Sjallanum á Akur-
eyri. Miðasala hefst á Midi.is á
fimmtudag. Sem fyrr verða flutt
öll helstu lög Elvis, þar á meðal
Jailhouse Rock, Love Me Tender
og Can´t Help Falling in Love.
Friðrik Ómar
með átta
Elv is-tónleika
FRIÐRIK ÓMAR Friðrik ætlar að halda
átta Elvis Presley-tónleika vegna mikillar
eftirspurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON