Fréttablaðið - 03.04.2010, Side 11
LAUGARDAGUR 3. apríl 2010 11
Ryksugur
- fyrsta flokks. Stór orð sem reynslan réttlætir.
Hátúni 6a . 105 Reykjavík
Sími 552 4420 . www.fonix.is
Þau tóku skrefið!
Hvað með þig?
MBA útskriftarhópur 2010
PI
PA
R\
TB
W
A
\
SÍ
A
1
00
87
Næstu kynningarfundir um MBA-námið í Háskóla Íslands:
Fimmtudaginn 8. apríl kl. 17.00–18.00
Miðvikudaginn 21. apríl kl. 11.40–12.30
Mánudaginn 3. maí kl. 11.40–12.30
Fundirnir verða haldnir á Háskólatorgi, stofu 101. Allir velkomnir.
Nýr kynningarbæklingur um MBA-námið er kominn út. Hægt er að nálgast
hann á mba.is ásamt öðrum upplýsingum.
www.mba.is
Gleðilega páska!
HEILBRIGÐISMÁL Félagsmenn í Læknafélagi
Reykjavíkur hafa samþykkt að fresta umsam-
inni hækkun á einingaverði í gjaldskrám sjálf-
stætt starfandi lækna. Hækkunin átti að taka
gildi 1. apríl, en var frestað til 1. júní næstkom-
andi.
„Við viljum reyna að nota tímann þangað til
í júní til að ræða við heilbrigðisráðherra um
framhaldið á þessari þjónustu,“ segir Sigurður
Böðvarsson, formaður Læknafélags Reykjavík-
ur.
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hafði
lagt að sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum að
fresta 1,9 prósenta hækkun á einingaverðinu, og
samþykktu félagsmenn í Læknafélagi Reykja-
víkur það á fundi á mánudag. Sigurður segir
boðaðan niðurskurð ráðuneytisins þýða á bil-
inu 30 til 40 prósenta niðurskurð hjá sjálfstætt
starfandi læknum. Gangi það eftir muni þessi
rekstur líða undir lok.
Það er mikið áhyggjuefni fyrir sjúklinga sem
treysta á þá þjónustu sem læknarnir veita, segir
Sigurður. Um 400 þúsund heimsóknir eru skráð-
ar hjá sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum á
ári, um 100 þúsund fleiri en hjá heilsugæslu-
stöðvum.
Læknar eru tilbúnir til að taka á sig sinn skerf
af þeim niðurskurði sem fara þarf í, segir Sig-
urður. Um ár er síðan sérfræðilæknar gáfu eftir
um tíu prósenta hækkun á einingarverði. - bj
Sjálfstætt starfandi sérfræðilæknar vilja samkomulag við ráðherra um niðurskurð:
Læknar samþykkja að fresta hækkun
LÆKNAR Sjálfstætt starfandi sérfræðilæknar fá um
400 þúsund heimsóknir á ári, en heilsugæslan fær
300 þúsund.
VIÐSKIPTI Fjárfestingarsjóðurinn
Frumtak hefur fjárfest í tölvu-
leikjafyrirtækinu Gogogic fyrir
150 milljónir króna.
Þetta er fimmta fjárfesting
Frumtaks í íslenska sprotafyrir-
tækinu frá því í febrúar í fyrra.
Gogogic var stofnað fyrir fjór-
um árum og er nú orðið eitt af
stærstu leikjafyrirtækjum lands-
ins með CCP og Betware. Meðal
leikja fyrirtækisins er verðlauna-
leikurinn Symbol 6. Sá nýjasti er
netleikurinn Vikings of Thule.
- jab
Frumtak fjárfestir í Gogogic:
Styðja fjögurra
ára leikjarisa
RÚSSLAND Sautján ára gömul ekkja
uppreisnarmanns frá Kákasus er
grunuð um að vera önnur þeirra
sem sprengdu sig í loft upp á
neðanjarðarlestarstöð í Moskvu
síðastliðinn mánudag. Tvær
sprengjur sprungu með þeim
afleiðingum að 39 fórust og meira
en sjötíu særðust. Flestir hinna
særðu eru enn á sjúkrahúsi.
Breska fréttastofan BBC hefur
það eftir talsmanni rússnesku
lögreglunnar að stúlkan, sem hét
Dzhennet Abdurakhanova, hafi
verið gift íslömskum hryðju-
verkamanni sem rússneska leyni-
þjónustan banaði rétt fyrir síð-
ustu áramót. - jhh
Mannskæð árás í Moskvu:
Sautján ára
ekkja grunuð
GRUNUÐ Dzhennet Abdurakhanova er
grunuð um ódæðið.
Viðurkenna spillingu
Þýski bílaframleiðandinn Daimler
hefur viðurkennt að hafa greitt tugi
milljóna Bandaríkjadala í mútur til
embættismanna í að minnsta kosti
22 löndum. Fyrirtækið hefur sam-
þykkt að greiða 23 milljarða í sátta-
gjörð í Bandaríkjunum. Alls hafa 45
verið reknir úr starfi vegna málsins.
BANDARÍKIN