Fréttablaðið - 03.04.2010, Síða 30

Fréttablaðið - 03.04.2010, Síða 30
Danskt hænsnasalat sannar að framsetningin skiptir ekki síður máli en bragðið. Girnilegt rækjusalat. Íslendingar eru gefnir fyrir góð salöt og ekki verra ef í þau fer dágóður skammtur af majónesi. Sumarsalat er tiltölulega einfalt að útbúa og að sama skapi einstaklega gott. Íslendingar eru salatfólk að upp-lagi og heilmikið majónes í mat-arsmekknum, enda ekki langt að sækja það til Dana, sem eru drjúg- ir í því líka, enda smurbrauð stað- góður matur. Samsetningin tryggir mikið af trefjum, kolvetni, prót- íni og fitu, í grófu rúg- eða malt- brauði, fisk- og kjötmeti, eggj- um, grænmeti og salati. Útkoman getur því ekki orðið annað en sæl- gæti,“ segir Snorri Birgir Snorra- son, matreiðslumeistari á Brauð- bæ, sem í fyrravor opnaði aftur á horni Óðinsgötu og Týsgötu. „Ég lærði matreiðslu í Brauðbæ á sínum tíma svo það var eins og að koma aftur heim að taka við staðn- um. Smurbrauðstofa Brauðbæjar var starfrækt sér meðan Siggi Hall rak hér veitingahús en virt- ist mér dálítið gleymd, sem virðist rétt því síðan hefur verið rífandi gangur og margir lýst ánægju með að geta aftur notið veitinga á þess- um rótgróna stað,“ segir Snorri sem í ár mun fagna 45 ára afmæli Brauðbæjar, sem er fyrsta og elsta smurbrauðsstofa lýðveldsins. „Þar af hefur Oddrún Sverris- dóttir smurbrauðsjómfrú staðið vaktina í 20 ár, en hún lærði hjá Idu Davidsen og smurði allt brauð fyrir myndatökur í fyrstu bók Idu. Smurt brauð og salöt eru hæstmóð- ins nú enda Íslendingar að hverfa aftur til fortíðar í matargerð eins og fleiru, sem mér þykir mikill kostur og gaman að leika sér áfram þar sem frá var horfið.“ Í Brauðbæ er boðið upp á smur- brauðshlaðborð í hádeginu sex daga vikunnar en á kvöldin hefð- bundinn íslenskan-danskan à la carte-matseðil. „Hlaðborðið hefur slegið í gegn og þar erum við með öll þessi salöt á brauði, ásamt heitri lifrarkæfu, roastbeef, rauð- sprettu og fleiru sem er danskt og dejligt. Þá höfum við sneiðarnar ívið minni svo gestir geti virki- lega notið lífsins yfir sem flest- um tegundum smurbrauðs,“ segir Snorri. Hann segir að í bústaðaferð- ir megi ekki skorta góð brauð. „Þegar boðið er í frokost á dönsku heimili er gott brauð uppistað- an, en síðan borið á borð allt sem finnst í ísskápnum, hvort sem það er afgangur af kjöti og fiski, beik- on, ostur, asíur, remúlaði, laukur eða hvað sem er, sem allt má útbúa brauðsneið með. Þannig verður til skemmtilegasti málsverður sem hægt er að hugsa sér, þar sem allir sitja saman við hlaðborð matar og útbúa sínar eigin sælkerasneiðar eftir smekk og þörfum.“ - þlg Brauðsalöt í tísku Það skal engan undra að lostæt brauðsalöt séu jafn vinsæll kostur hjá íslenskri þjóð og raun ber vitni, enda heilnæmt álegg sem í réttum hlutföllum inniheldur fullkomna samsetningu kolvetna, prótíns, trefja og fitu. FRÉTTA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.