Fréttablaðið - 10.04.2010, Síða 36

Fréttablaðið - 10.04.2010, Síða 36
36 10. apríl 2010 LAUGARDAGUR Byrjum á byrjuninni! Hvað vitið þið hvort um annað? Lára Björg: Ég veit bara hver þú ert af því þú ert frægur! Ég vissi að þú hefðir verið í Sykurmolun- um, værir rithöfundur og viðrið- inn leikhúsið, allt án þess að gúggla þig. Bragi: Ég reyndar verð að viður- kenna að ég þekkti ekki Láru, enda les ég ekki mikið blogg. Lára: Þetta eru sko pistlar, ekki blogg! Bragi: En svo fór ég í röntgen- myndatöku klukkan átta í morgun og tók upp Vikuna á meðan ég beið. Þá var viðtal við þig það fyrsta sem ég sá þar! Lára: Varstu ekki feginn? Bragi: Jú, og mér fannst svo gaman að lesa að þú þolir ekki leikhús! Ég þoli reyndar leikhúsið alveg, en ég skildi þig samt svo vel. Lára: Það er samt ekki það að mér þyki leikhús asnaleg. Mér líður bara svo illa í leikhúsi. Ég hef meira að segja kastað upp á bíla- planinu fyrir sýningu. Ég fæ bara kvíðakast. Bragi: Ég átti lengi svo erfitt með leikhús því ég varð alltaf svo syfj- aður. Ég fór einu sinni með ungan son minn á Kardimommubæinn á sunnudagseftirmiðdegi og stein- sofnaði. Lára: Já, já, það eru kvíðaviðbrögð líka. Bragi: Heldurðu það? Samkvæmt því hefði ég átt að sofa í gegnum eigin frumsýningar. Ofmetni árstíminn Þetta minnir á annað sem er eig- inlega enn óvinsælla að segja en að manni leiðist leikhús. Að sum- arið sé stórlega ofmetið, eins og Lára segir í einum pistla sinna með þeim skemmtilega titli „taktu þetta sumar og troddu því …“ Lára: Ókei, ég er kannski stund- um aðeins að ýkja. Auðvitað nenni ég alveg að sitja úti á palli í sól og grilla. En ég er samt meiri vetrar- kona. Mér finnst vorið líka alltaf svo langt og eilíf bið eftir sumri sem kemur svo – aldrei! Ég væri alveg til í að hafa sumar í mánuð á Spáni, restina af árinu bara vetur á Íslandi. Mér finnst myrkrið bara fínt og alls ekkert þrúgandi. Bragi: Ég er svolítið sammála þessu. Sumarið er stórlega ofmet- inn árstími! En vorið er erfiðasti tíminn fyrir inniveru, þegar sólin er svona lágt á lofti en það er samt of kalt til að vera úti. Eiginlega finnst mér best þegar septemb- er byrjar aftur, þá byrja ég alltaf að finna lyktina af rauðu epli og skólatösku úr leðri. Þá hefst líka allt aftur og lifnar við, þó það sé dálítið mótsagnakennt. Lára: Þá fer rútínan í gang. Ég er alltaf svolítið fyrir rútínu. Bragi: Já, mér líkar vel við hana af því ég þarf á henni að halda. Hraunað yfir fréttirnar Hvað segið þið annars um eldgos- ið? Eruð þið búin að fara að skoða það eða eruð þið búin að fá nóg af fréttum af því? Bragi: Ég held að fólk sé almennt afskaplega ánægt með þetta gos, það hraunar alveg yfir margt annað sem fólk er orðið þreytt á í fréttun- um, í bókstaflegri merkingu. Lára Björg: Já, en hvað varð um allar hinar fréttirnar? Er ekkert að gerast lengur? Reyndar held ég að þjóðin þurfi oft eins og einn jarðskjálfta til að hvíla sig á hinum fréttunum. En þegar eitthvað svona gerist er eins og ekkert annað kom- ist að. Bragi: Hefur Séð og heyrt ekkert farið á staðinn? Lára: Sáust leiðast við gosstöðvarn- ar! Sjáið myndirnar! Bragi: Við fórum í Fljótshlíðina og horfðum á gosið í gegnum kíki. Það var mjög fallegt. En það kom mér á óvart að þangað voru ekki komn- ir neinir pylsusalar, fólk að selja stutt ermaboli með gosmyndum og svoleiðis. Lára: Fannst þér það vanta? Bragi: Það hefði komið sér vel að geta fengið sér pylsu með bjórn- um. Lára: Mig langar rosalega að fara að gosstöðvunum. En ég bara þori það ekki fyrir mitt litla líf. Golfvöllur út úr kú Hvað finnst ykkur um golfvöllinn sem Reykjavíkurborg ætlar að setja 230 milljónir í? Lára: Ég tek þessum 230 milljónum mjög persónulega. Sem móðir barns með sérþarfir finnst mér þetta út í Golf fer illa með góðan göngutúr Lára Björg Björnsdóttir hefur aldrei séð leikrit eftir Braga Ólafsson, enda forðast hún leikhús eins og pestina sjálfa. Það þyk- ir Braga sjálfum að mörgu leyti skiljanlegt, enda átti hann lengi við þann vanda að stríða að sofna alltaf í leikhúsi. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir komst að því að rökstólapar vikunnar er sammála um margt. Svo sem að sumarið sé ofmetinn árstími og að stækkun golfvallar ætti að færa langt aftur á forgangslista borgarinnar. BLOGGAR EKKI OG LES EKKI BLOGG Bragi Ólafsson rithöfundur kannaðist ekki við Láru Björgu Björnsdóttur áður en hann settist með henni á rökstóla. Það afsakaði hann með því að hann læsi sjaldan blogg. Ekki þótti Láru, sem það góð ástæða, enda væru pistlarnir pistlar en alls ekki blogg. Síðasta ferðalagið sem þú lagðir upp í: Ég fór í Fljótshlíðina með vinum og tveimur útlendingum. Mjög líklega ógleymanlegt að horfa á eldgosið úr fjarska, þótt fullsnemmt sé að dæma um það núna. Útlendingarnir voru mjög ánægðir, ekki síst með að sjá norðurljós á leiðinni til baka. Síðasta klúðrið sem þú lentir í: Fór með yngri dóttur mína í Smáralind, Kópavogi. Síðasta bókin sem þú last: Ég les alltaf tvær eða fleiri í einu: Our times, The age of Elizabeth II eftir A.N. Wilson, og Síðustu dagar móður minnar eftir Sölva Björn Sigurðsson. Síðasta manneskjan sem þú rabbaðir við: Fyrir utan fólk á heimilinu, þá var það afgreiðslukona í búð í Smáralind. Síðasta lagið sem lagðist á heilann á þér: Nights on Broadway með Bee Gees. Ég setti það í spilarann til að losa úr höfðinu agalegt lag með Leonard Cohen sem ég heyrði óvart í útvarpinu og þori ekki að nefna af hættu við að fá það aftur á heilann. „Síðustu” Braga Á RÖKSTÓLUM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.