Fréttablaðið - 10.04.2010, Side 40
4 FERÐALÖG
Sziget Festival, Búdapest, Ungverja-
landi.
Fimm daga hátíð sem spannar allt
frá neðanjarðarböndum upp í meira
„mainstream“ popp. Dagskráin í
sumar er ekki alveg komin á hreint
en í fyrra spiluðu meðal annars
Primal Scream, Faith no More og
Snow Patrol. Svo er líka gaman að
skoða þessa sögufrægu borg í leið-
inni.
Hefst 11. ágúst.
Hróarskelda, Danmörku
Fjögurra daga partí þar sem þú
getur horft á allt frá skandínavísku
pönki upp í þungarokkshljómsveit-
ir. Í sumar spila meðal annars Alice
in Chains og The Crooked Vultures.
Miðinn kostar 240 evrur sem er ekki
svo slæmt miðað við að allt er inni-
falið.
Oxegen Festival, Dublin, Írlandi
Þann 10. júli byrjar stórskemmtileg
tónlistarhátíð með yfir 100 hljóm-
sveitum. Meðal þeirra sem spila eru
Florence and the Machine, Eminem,
Black Eyed Peas, Muse, Stereophon-
ics og Faithless.
Pukkelpop, Belgíu
Í fyrra spiluðu Kraftwerk, Arctic
Monkeys, The Whitest Boy Alive
og Faith No More á þessari þriggja
daga hátíð. Við bíðum spennt eftir
að sjá hvað verður á dagskránni í
sumar. Fjörið byrjar 18. ágúst.
Hultsfred Festival, Svíþjóð
Í sumar verða það Killswitch
Engage, Wolfmother, Royal Repu-
blic, Sista Sekunden, Babian, Emp-
ire of the Sun og The Dirty Youth
sem spila á þessari skemmtilegu
hátíð í Suður-Svíþjóð. Miðar seljast
upp hratt og um að gera að bóka sem
fyrst.
Rock Werchter, Belgíu
Ekta hátíð fyrir rokkara, gamalt og
gott stöff eins og Faithless, Greeen
Day, Rammstein, Phoenix, Pink og
Funk Anansie spila á þessari fjög-
urra daga hátíð sem hefst 1. júlí.
Provinssirock Festival, Finnlandi
Bærinn Seinajoki lifnar við þann 18.-
20. júní með rokki eins og Ramm-
stein, Bullet For My Valentine, Wolf-
mother, Between the Buried and Me,
A Day To Remember, Jello Biafra og
the Guantanamo School of Medicine.
Fleiri nöfn eiga eftir að bætast við.
T in the Park, Skotlandi
Paloma Faith, Black Eyed Peas, Jay
z, Muse, Madness og Eminem hafa
staðfest komu sína og mun fleiri
bönd eru væntanleg á þessa hressu
rokkhátíð sem á sér stað í Balrado
í grænum engjum Skotlands 9.-11.
júlí.
Benicassim Festival, Spáni
Drífðu þig til Miðjarðarhafsins og
dansaðu úr þér allt vit á þessari
fjögurra daga hátíð sem hefst 15.
júlí. Í sumar er það Vampire Week-
end, Leftfield, Klaxons, Prodigy og
Ian Brown sem spila.
BESTU TÓNLISTARHÁTÍÐ-
ARNAR Í EVRÓPU Í SUMAR
Eftirsóttustu hljómsveitir heimsins verða á rúntinum og um að gera að bóka miða
sem fyrst.
Ian brown Spilar á Benicassim á Spáni Hróarskelda Sveitt og skemmtileg stemning á hverju ári.
ÓDÝR GISTING Í LONDON OG BERLÍN FYRIR FERÐALANGA
Gistiheimilin Generator Hostels eru góður kostur fyrir ungt fólk með lítinn aur til að spila úr. Þau eru afar
snyrtileg og vel staðsett, í London er það á Russell Square, rétt hjá Covent Garden, og í Berlín er það í
Prenzlauer Berg, örskot frá Alexanderplatz. Hægt er að velja um einkaherbergi eða kojuherbergi og innifalið
í verðinu er myndarlegur morgunverður auk sængurfata. Síðast en ekki síst er líflegur bar á gistiheimilunum
þar sem er gaman að kynnast öðrum ferðalöngum frá ýmsum heimshornum. www.generatorhostels.com
Þarftu að skerpa
hugann fyrir prófin?
Énaxin jurtablandan eykur einbeitingu og úthald!
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
ORKA & KRAFTUR ÚR NÁTTÚRUNNI
SUÐUR ENGLAND
16.–20.09.
Verð á mann frá 124.800,-
Innifalið er fl ug, fl ugvallaskattar,
gisting í tveggjamanna herbergjum,
morgunverður og kvöldverður
(1/2 fæði), allur akstur, skoðunar-
ferðir og aðgangseyrir og íslenzk
fararstjórn.
Fararstjóri: Emil Örn Kristjánsson
Verð miðast við gengi og forsendur
24.marz 2010 og 35 manna hóp.
Leitið nánari upplýsinga og kynnið
ykkur fl eiri ferðir á okkar vegum á
heimasíðu okkar www.ferdir.is
Windsor-Oxford-Cotswolds-Bath-Wells-Stonehenge og fl eira
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf.
Sími 511 1515
www.ferdir.is outgoing@gjtravel.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki