Fréttablaðið - 10.04.2010, Page 45

Fréttablaðið - 10.04.2010, Page 45
LAUGARDAGUR 10. apríl 2010 „Ljósmynd frystir tímann en vídeó fangar tímann á þann hátt að hann lifir um eilífð eins og hann nákvæmlega var,“ segir Ásvaldur Kristjánsson kvikmyndatökumað- ur sem tekur lifandi myndir af brúðkaupum landsmanna og skil- ar heillandi verkinu klipptu, hljóð- settu og fullunnu á DVD-formi. „Með kvikmyndavél er hægt að ná allri upplifun betur. Þannig fara atburðir eins og ræður, söng- ur og önnur gullkorn fram hjá á ljósmyndum, meðan það varðveit- ist óskeikult í kvikmynd og alltaf hægt að njóta á ný þegar rifja á upp hver sagði hvað á jafn einstökum degi,“ segir Ásvaldur og útskýr- ir að þegar frá líði muni brúðhjón ólíklega allt sem gerðist. „Á brúðkaupsdaginn gerast hlut- irnir hratt en því miður ekki hægt að vera alls staðar. Stóri dagurinn er söguleg heimild og með upp- töku er dagurinn fangaður í heild sinni. Eftir á sér fólk það sem ann- ars hefði farið fram hjá því, því í annríki dagsins er auðvelt að missa af mörgu sem brúðhjónum er dýr- mætt.“ Ásvaldur tekur upp brúðkaups- daginn í heild sinni; athöfnina, söng og ræður í veislunni, fyrsta dansinn og þegar tertan er skorin, ásamt fjölbreyttum skotum af gest- um, skreytingum, allri umgjörð og stemningu. „Ég mæti til kirkju klukkutíma fyrir giftingu til að stilla upp tækj- um og ná útiskotum af umhverfi og gestum koma. Margir óska þess að ég taki upp andrúmsloftið fyrr um daginn þegar brúðhjónin hafa sig til og þá er gaman að taka púlsinn á ástandinu og heyra hvernig fólkinu líður,“ segir Ásvaldur sem slekk- ur á myndavélunum fljótlega eftir fyrsta dansinn, þegar búið er taka upp önnur atriði sem oftast eru við brúðkaup. Ásvaldur, sem hefur tveggja ára- tuga reynslu af kvikmyndatökum, segist gera myndirnar enn áhuga- verðari með skapandi nálgun. „Ég hef stundum sagt að þrennt þurfi svo útkoman verði góð, en það er að myndin sé góð, hljóð- ið gott og tökugæðin mikil. Með stílhreinni og listrænni klipp- ingu verður útkoman svo þannig að brúðhjón sýna hana stolt fjöl- skyldu og vinum,“ segir Ásvaldur sem skilar dagsverkinu á tvöföld- um, kaflaskiptum DVD-diskum. Þá skilar hann styttri útgáfu sem er hentug til að sýna gestum og hefur þá dregið saman lykilatriði í kirkjunni, veislunni, setningar sem sagðar voru hér og þar, söng- brot og fleira. „Nú er líka vinsælt að gera stuttmynd um sögu ástar- sambandsins, hvernig þau kynnt- ust og fleira rómantískt, og enda á því að bjóða til brúðkaups í mynd sem er send út sem boðskort, öllum til ómældrar ánægju.“ Sjá myndbrot á akfilm.is. thordis@frettabladid.is Kvikmynd um eilífa ást Fyrsti kossinn í hjónabandinu, blik í augum brúðgumans þegar hann sér brúði sína, hendur sem fléttast til að skera brúðartertuna, ástfangin hjörtu sem dansa saman til framtíðar og allt varðveitt í kvikmynd. Kvikmyndatökumaðurinn Ásvaldur Kristjánsson rekur fyrirtækið Akfilm sem sérhæfir sig í brúðkaupskvikmyndatökum. Útkoman er vægast sagt glæsileg og eigulegur minjagripur um einn af stærstu og fegurstu dögum lífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is sími 512 5447 Þriðjudaga Fyrstu ryðfríu pottarnir frá Rösle gjörbyltu öllu fyrir 70 árum. Í dag eru pottarnir með Multiply „samloku“-kerfi þannig að þeir eru fljótir að hitna og kólna og dreifa hitanum einnig jafnt um pottinn, alveg upp í topp. Rösle pottarnir henta á allar gerðir eldavéla, rafmagns-, gas- og spansuðuhellur . Algjörar samlokur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.