Fréttablaðið - 10.04.2010, Blaðsíða 46
10. 4
HLÁTURJÓGANÁMSKEIÐ verður haldið næstu helgi 16.
og 17. apríl. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja verða hláturjóga-
leiðbeinendur. Nánari upplýsingar er að finna á www.hlatur.com
„Við erum umkringd vísindum alla
daga án þess að hafa hugmynd um
það,“ segir Guðrún Bachmann,
kynningarstjóri Háskóla Íslands og
meistari í vísindamiðlun, en mark-
mið Tilraunalandsins er að kynna
og kanna undraheima vísindanna.
„Grundvallaratriði sýninga á
borð við Tilraunalandið er hvern-
ig við uppgötvum gegnum upplif-
unina. Með því að þreifa og prófa,
skoða og finna lausnir fæst aukinn
skilningur og áhugi á fyrirbærum
í náttúrunni og á eðli og lögmálum
hennar,“ útskýrir Guðrún. „Kennar-
ar grípa svona sýningar til dæmis
fegins hendi en þarna geta börnin
upplifað námsefni sitt á skemmti-
legan hátt og textinn úr skólabók-
unum lifnar við ef svo má segja.“
Í Tilraunalandinu verða meðal
annars tæki til að skilja hraða og
mótstöðu, snúning jarðar og mis-
munandi eðlismassa hluta. Hægt
verður að prófa rólu sem teiknar
munstur og sjá orgel sem spúir eldi
eftir nótum svo eitthvað sé nefnt.
Hluti sýningarinnar er fenginn
frá Tom Tits Experimenter í Sví-
þjóð en einnig leggur Tilrauna-
smiðja Háskóla Íslands til tæki og
faglega leiðsögn. Tilraunalandið
verður bæði innan- og utandyra og
einnig sem farandsýning í vögnum
sem ferðast um landið.
„Við opnuðum innihluta sýning-
arinnar í gær og með hlýnandi
veðri kemur útihlutinn svo í ljós.
Þar verður mikið um vatn vegna
tengingarinnar við Vatnsmýrina
en því miður getum við ekki sullað
mikið inni í sýningarsalnum. Með
sumrinu stefnum við svo á stutt-
ar ferðir með sýninguna um landið
en við áætlum að halda Tilrauna-
landinu úti fram í september. Ef vel
tekst til verður vonandi framhald á
en Háskólinn fagnar aldarafmæli
næsta sumar.
Það væri gaman að tengja Til-
raunalandið við þau hátíðahöld.“
Guðrún segir alla fjölskylduna geta
skemmt sér á sýningunni þó meg-
inmarkhópurinn sé á aldrinum 7 til
14 ára. Tilraunalandið verður opið
alla daga milli klukkan 9 og 17 og
er aðgangur ókeypis. Guðrún bend-
ir á að til að fá aðgang að tilraunun-
um verði fólk að skrá sig á heima-
síðu Norræna hússins nordice.is,
til að forðast biðraðir. Á heimasíð-
unni má einnig fræðast nánar um
það sem Tilraunalandið býður upp
á. heida@frettabladid.is
Vísindin í Vatnsmýrinni
Sýningin Tilraunalandið var opnuð í gær í Norræna húsinu en hún er hluti af dagskránni Fjöregg: barna-
menningarhátíð 2010. Sýningin er samstarf Háskóla Íslands og Norræna hússins.
Guðrún Bachmann, kynningarstjóri Háskóla Íslands, hefur ein Íslendinga meistara-
gráðu í vísindamiðlun og segir vísindin allt í kringum okkur.
Hægt verður að átta sig á lögmálum og eðli hlutanna með því að prófa og gera tilraunir í Tilraunalandi Norræna hússins og HÍ.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mán. - föst. kl. 9-18
Laugard. kl. 11-15
www.friform.is
REYFARAKAUP
FRÍFORM
NÝIR TÍMAR - FERSK FORM
HREINT OG KLÁRT
ÞEGAR ÞIG VANTAR INNRÉTTINGU
AF LAGER Á LÆGRA VERÐI 20%
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík - 517-2040
LAGERSALA
Góðir skór - gott verð
Mikið úrval af nýrri vöru á
alla fjölskylduna
Opið virka daga 12-18
laugardag og sunnudag 12-16
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
SC
SCH
KENNEL
NÝ SENDING
Miðvikudaga
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
Föstudaga
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki