Fréttablaðið - 10.04.2010, Side 74
10 FERÐALÖG
Kemur út fimmtudaginn 15. apríl
Sérblað
um sófa
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband:
Benedikt
• benediktj@365.is
• sími 512 5411
Hlynur Þór
• hlynurs@365.is
• sími 512 5439
Þ
að er vor í Hamborg. Dög-
unum sem hitinn fer yfir
15 gráður fer fjölgandi,
þótt regnhlífin sé sjaldnast
skilin eftir heima. Hér er nefnilega
ansi oft rigning og allan aprílmánuð
keppast sólin og skýin um orðaflaum
borgarbúa, sem virðast ekki tala
minna um veðrið en við Frónbúar.
Það er gott að vita að þótt McDon-
alds sé ekki lengur með útibú í
Reykjavík sé eitthvað sem er allt-
af eins, hvert sem maður fer. Ekki
veðrið, heldur óþreyja sérhvers
manns að ræða um það.
Á hlýrri og sólríkari dögum, þegar
minni líkur eru taldar á rigningu en
aðra daga, þykir mér gott að hitta
vini yfir bjórflösku í Sternschanze.
Þetta skemmtilega hverfi er í dag-
legu tali kallað Schanzen af heima-
mönnum, en mér finnst það gæti líka
heitið Lower East Side (eftir hverf-
inu í New York) eða jafnvel Litla-
Reykjavík. Eins og Oranienburger-
straße í Berlín, án vændiskvennana.
Það er rólegt og þægilegt andrúms-
loft í Schanzen og þar er aragrúi
kaffihúsa, pöbba og lítilla veitinga-
staða. Haus 73 (dreiundsiebzig.de) er
einn af mínum
uppáhalds-
stöðum í þessu
hverfi. Þar er
kaffihús, bar
og tvö tónleika-
rými, og í öðru
þeirra ætlar FM
Belfast að spila
á hvítasunnudag. Ég þangað.
Í Schanzen eru líka margar litlar
og skemmtilegar búðir fyrir ungt
fólk. Flestar þeirra selja bæði föt
og svo aragrúa af litlu smádóti og
skrauti sem heillar hégómagirndina.
Sé rölt í norðaustur út úr Schanzen
má finna fleiri svona litlar sjoppur
og kaffihús með skemmtileg nöfn
eins og Yoko Mono og ChariTea.
Skammt frá er Uebel und Gefähr-
lich sem er dansstaður í sérstöku
húsnæði, á fimmtu hæð í ramm-
gerðu loftvarnarbyrgi frá seinni
heimsstyrjöld.
Þó svo að hverfi eins og Schanz-
en njóti vinsælda meðal unga fólks-
ins eru margir sem kjósa heldur
að skoða sig um í ríkmannlegum
og gullfallegum miðbænum, ganga
spöl meðfram hinu gríðarstóra
manngerða vatni Alster sem setur
svip sinn á borgina. Versla í rán-
dýrum merkjavörubúðum eða bara
kanna úrvalið í H&M. Svo er hægt
að setjast á kaffihús á góðum stað
og njóta útsýnisins.
Hugmyndin var að eyða vori og
sumri sem gestanemandi í litlum
listaháskóla í Berlín, en mér varð
ekki að ósk minni og ég endaði í
staðinn í hönnunardeild í risastórum
háskóla í Hamborg. Í fyrstu var ég
ósáttur, þótt ég reyndi að segja við
sjálfan mig að Hamborg væri örugg-
lega frábær borg. Það var ekki fyrr
en ég komst að því að Hamborg er
frábær borg sem ég sættist á að vera
hérna. Það kom mér á óvart, en Þjóð-
verjar (og þá meina ég Hamborgar-
búar) eru mun jákvæðari og opn-
ari en Íslendingar. Það er gott fyrir
sjálfstraustið að lifa og leika á nýjum
stað, maður verður víðsýnni og verð-
ur betur gefinn fyrir vikið. Berlín
er frábær, en það skiptir litlu hvar
maður er í heiminum, svo lengi sem
maður á góða að og kann að njóta
lífsins.
Arnór skrifar einnig pistla á arnor.
is/hamborg
PÓSTKORT FRÁ
HAMBORG
Arnór Bogason, nemi í grafískri hönnun, skrifar
Arnór Bogason
Skilti um allt Í Þýskalandi eru alls konar skilti sem vara mann við hinu og þessu.
Íslenska ferðaskrifstofan Ferd.is
býður upp á afar spennandi mögu-
leika fyrir ævintýragjarna ferða-
langa. Um er að ræða fullkomna
ferðaþjónustu á Netinu þar sem
ferðir eru í boði alla daga, allt
árið um kring. „Við seljum ekki
leiguflug heldur aðeins áætlunar-
flug,“ segir Jón Haukur Daníelsson
framkvæmdastjóri, sem bætir við
að fyrirtækið sé oft með mun sterk-
ari samninga en innlendar ferða-
skrifstofur þar sem það semur
aðallega við danska aðila.
„Við getum boðið flugmiða og
gistingu ódýrara en áður hefur sést
á íslenskum markaði og erum sér-
staklega sterk á velli hvað varðar
Asíu.“ Á vefsíðunni er að finna
risastóran bækling með alls kyns
ferðum til Taílands auk ferða til
Borneó, Malasíu, Balí og Kína.
Veglegur tólf síðna bæklingur til-
einkaður Kína er væntanlegur nú
eftir helgi. Þetta er í fyrsta sinn
sem Íslendingum býðst sá kostur
að fljúga til Kína með ferðaskrif-
stofu hvenær ársins sem er. Þegar
á leiðarenda er komið er tekið á
móti gestum með einkabílstjóra
og leiðsögumanni sem eru fólki
innanhandar alla ferðina.
Ferð.is skipuleggur einnig ein-
staklingsferðir, hópferðir og sér-
ferðir um allan heim og útvegar
flugmiða, hótel, ferðatryggingar,
bílaleigubíla og fleira. Einnig má
geta þess að meðal áfangastaða hjá
Ferð.is er Suður-Afríka þannig að
þeir sem brenna í skinninu eftir
að komast á HM geta skellt sér á
miða. www.ferd.is - amb
ÆVINTÝRAFERÐIR ALLT ÁRIÐ UM KRING
Leyndardómar Kína Á næstunni kemur út
stór bæklingur um Kína hjá ferd.is með
spennandi möguleikum.
17.–22.08.
HELSINKI OG TALLINN
Verð á mann frá: 140.840,-
Innifalið í verði er fl ug, fl ugvalla-
skattar, gisting í tveggjamanna
herbergjum, morgunverður, skoðun-
arferð um Helskinki, sigling til og
frá Tallinn og skoðunarferð þar,
skoðunarferð til Porvoo og íslenzk
fararstjórn.
Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson
Verð miðast við gengi og forsendur
23. marz 2010 og 30 manna hóp.
Leitið nánari upplýsinga og kynnið
ykkur fl eiri ferðir á okkar vegum á
heimasíðu okkar www.ferdir.is
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf.
Sími 511 1515
www.ferdir.is outgoing@gjtravel.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki