Fréttablaðið - 10.04.2010, Blaðsíða 89
LAUGARDAGUR 10. apríl 2010 49
Stone nefnist fyrsta sólóplata Akureyringsins
Aðalsteins Jóhannssonar. Tónlistin er í
rólegri kantinum, stundum með kántríívafi en
á milli eru hraðari sprettir.
„Ég hlusta frekar lítið á kántrí. Þetta er
eitthvað sem kemur þegar ég er að semja. Það
er nú svo skrítið með það,“ segir Aðalsteinn,
sem kallar sig einmitt Stone. Hann hefur
verið í ýmsum hljómsveitum um árin, þar á
meðal Exit, Neista, Útópíu og Sent, sem lagði
upp laupana árið 2007. Í kjölfarið fór hann
að huga að sólóplötu því hann átti mikið af
frumsömdu efni sem honum þótti of gott til að
liggja ofan í skúffu. „Þannig að karlinn bara
dreif sig af stað með þetta. Svo er erfitt að
stoppa þegar maður er kominn svona langt.“
Plötuna fjármagnaði hann alfarið sjálfur
og vonast hann til að lögin komist í spilun í
útvarpinu á næstunni. Útgáfutónleikar eru
síðan fyrirhugaðir en nákvæm tímasetning
hefur ekki verið ákveðin.
Aðalsteinn er verslunarstjóri Wurth á
Akureyri sem selur efnavörur og verkfæri.
Þess á milli keyrir hann um á mótorhjóli,
stundar veiðiskap og semur að sjálfsögðu hell-
ing af tónlist. „Maður verður að njóta lífsins á
meðan maður hefur það,“ segir hann og viður-
kennir að vera algjör dellukarl.
Nánari upplýsingar um Stone má finna á
Myspace.com/ssstone. - fb
Harðnaglarnir Jack Ryan og
John Clark snúa aftur í nýjustu
bók Toms Clancy. Bókin á að
fjalla um hryðjuverkamenn sem
ógna vestrænni menningu og
sameinar í fyrsta skipti krafta
Jacks Ryan, sonar hans Jacks
Ryan Jr. og Johns Clark.
Bókin kemur út í desember
og munu lesendur fá að fylgjast
með harðnöglunum eltast við
Emir; kaldrifjaðan morðingja
sem hefur skipulagt hrikalegar
hryðjuverkárásir á vestræn ríki.
Clancy skrifar bókina í sam-
starfi við fyrrverandi hermann-
inn Grant Blackwood sem hefur
mikla reynslu á þessu sviði. Hann
vann einnig með Clive Cussler
við bækurnar Spartan Gold og
Lost Empire. - afb
Tom Clancy
snýr aftur
KOMINN AFTUR Tom Clancy hefur ekki
gefið út bók í sjö ár. NORDICPHOTOS/AFP
Dellukarl gefur út sólóplötu
STONE Aðalsteinn Jóhannson hefur gefið út sína
fyrstu sólóplötu.
Inga Sólveig Friðjónsdóttir ljós-
myndari er myndlistarmaður
aprílmánaðar hjá Sambandi
íslenskra myndlistarmanna, SÍM.
Inga Sólveig nam listir við San
Fransisco Art Institute og lauk
þaðan BA-prófi 1987 og hefur
síðan búið og starfað hér á landi.
Hún hefur haldið yfir 20 einka-
sýningar auk samsýninga. Síð-
astliðin fimm ár hefur Inga Sól-
veig rekið vinnustofu/gallerí
Auga fyrir auga, Hverfisgötu 35
í Reykjavík og hafa ýmsir lista-
menn, erlendir og innlendir, sýnt
í galleríinu.
Verkin sem Inga sýnir í SÍM-
húsinu, Hafnarstræti 16, eru frá
árunum 2003 til 2010. Myndirnar
fjalla um dauðann,
sorgina, himna-
ríki fugla og eyð-
ingu náttúrunnar á
mannvirkjum. Sýn-
ingin stendur til 29.
apríl næstkom-
andi. Opið er
frá klukkan
10-16 mánu-
daga til föstu-
daga.
Inga mynd-
listarmaður
mánaðarins
INGA SÓLVEIG
FRIÐJÓNSDÓTTIR
Sýnir verk frá
árunum 2003-
2010 í SÍM-hús-
inu, Hafnarstræti
16.
Litla ljóðahátíðin verður haldin
á Akureyri um næstu helgi.
Þetta er í annað sinn sem hátíð-
in er haldin en í ár koma fram
þau Sigurður Pálsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Vilborg
Dagbjarts dóttir, Elísabet Kristín
Jökulsdóttir, Kristín Ómarsdótt-
ir, Óskar Árni Óskarsson, Bragi
Ólafsson, Haukur Ingvarsson,
Magnús Sigurðsson og Hermann
Stefánsson.
Í tilkynningu segir að líkt og
í fyrra verði tvö ljóðakvöld, að
þessu sinni í Populus Tremula í
Listagilinu. Viðburðir hátíðarinn-
ar verða öllum opnir án endur-
gjalds.
Ljóðahátíð
á Akureyri
FJÖREGG
Vísindin lifna við í Vatnsmýrinni
Vertu með, komdu og prófaðu!
Allir velkomnir!
Gestir eru beðnir um að skrá sig í Tilraunalandið á netfangið nh@nordice.is
eða í síma 551 7030 til að tryggja að tilraunirnar og tækin séu laus þegar þið komið.
Innan skamms verður hægt að bóka tíma á heimasíðu Norræna hússins.
Á www.norraenahusid.is er að finna frekari upplýsingum um Tilraunalandið.
Tilraunalandið er samstarfverkefni Háskóla Íslands og Fjöreggs,
Barnamenningarhátíðar Norræna hússins.
Tilraunalandið
9. apríl - 30. september 2010
Sápukúluborðið
Ísprinsessan
Vatnshrúturinn
Sólarofninn
Kúlubekkurinn
Brunnurinn skjálfandi
Ölduvaggan
Eldorgelið
Teiknirólan
Hármælingin