Fréttablaðið - 10.04.2010, Síða 90
50 10. apríl 2010 LAUGARDAGUR
Hljómsveitin Blur ætlar að gefa út sína fyrstu
smáskífu í sjö ár hinn 17. apríl. Sveitin hætti
störfum árið 2002 eftir að gítarleikarinn Gra-
ham Coxon hætti meðan á upptöku plötunnar
Think Tank stóð. Blur kom aftur saman á síð-
asta ári og hélt nokkra vel heppnaða tónleika.
Lagið sem þeir félagar ætla að gefa út er hluti
af svokölluðum plötubúðadegi þar sem lögð er
áhersla á mikilvægi sjálfstæðra plötubúða.
„Við viljum að sjálfstæðar plötubúðir starfi
áfram. Þær eru mikilvægur hluti af tónlistar-
menningu okkar. Tónlist er einföld leið fyrir
Blur til að sýna stuðning sinn og við vonum
að fólk hafi gaman að henni,“ sagði söngvar-
inn Damon Albarn. Aðeins eitt þúsund eintök-
um af smáskífunni verður dreift í sjálfstæðar
plötubúðir.
Blur með smáskífu
DAMON ALBARN Hljóm-
sveitin Blur gefur út sína
fyrstu smáskífu hinn 17.
apríl.
Skemmtilegt ævintýraspilamót
fer fram í Rimaskóla um helg-
ina, en það er verslunin Nexus
sem stendur fyrir mótinu. Kynnt
verða borðspil, Warhammer, hlut-
verkaspil og safnkortaspil en
einnig verða skipulögð mót og
keppnir bæði fyrir byrjendur og
lengra komna. Spilin eiga það öll
sameiginlegt að vera félagsleg,
enda spiluð augliti til auglitis og
án tölva.
Mótið er ætlað bæði stúlkum
og piltum frá tíu ára aldri og er
þetta fyrsta stórmótið sem haldið
hefur verið í tíu ár.
Aðgangur er frá 500 krónum til
2.000 króna, en verðið miðast við
þau spil sem þátttakendur ætla að
vera með í.
Nánari upplýsingar má finna á
fenr.is.
Stórmót í
Grafarvogi
NEXUS Pétur Yamagata og félagar í
Nexus hafa puttann á púlsinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Leikarinn David Cross, sem fer
með hlutverk Tobiasar Funke í
gamanþáttunum Arrested Devel-
opment, segir að hugmyndin um
að gera kvikmynd eftir þáttunum
muni ekki líta dagsins ljós.
„Ég held ég verði að segja
ykkur að það mun ekki gerast.
Það er ekki opinbert en ég held
bara að þetta verði ekki að raun-
veruleika. Það eru svo margir
leikarar í þáttunum sem eru að
sinna sínu þessa stundina, hver í
sínu horni. Ég er viss um að ég
tala fyrir hönd allra þegar ég
segi að ég vona að kvikmyndin
verði gerð einn daginn, við mund-
um gjarnan vilja taka slíkt verk-
efni að okkur, en ég bara held
að sú verði ekki raunin,“ sagði
leikarinn um málið.
Litlar líkur á gerð kvikmyndar
ENGIN MYND David Cross telur ólíklegt
að kvikmynd byggð á þáttunum Arrest-
ed Development verði að veruleika.
NORDICPHOTOS/GETTY
Breski leikarinn Robert Pattin-
son, sem sló í gegn í Twilight-
myndunum, mun leika rokkar-
ann sáluga, Kurt Cobain, í nýrri
mynd um
ævi hans
sem er í
undirbún-
ingi. Patt-
inson spil-
ar á gítar í
frístundum
sínum og er
því vafalít-
ið sáttur við
þetta nýja
hlutverk.
Courtney
Love, ekkja
Nirvana-
söngvar-
ans, tekur
þátt í framleiðslu myndarinnar.
Talið er að Love vilji að Scarl-
ett Johansson leiki hana sjálfa
í myndinni, sem David Fincher
mun hugsanlega leikstýra.
Fincher á að baki myndir á
borð við Fight Club, Seven og
The Curious Case Of Benjamin
Button.
Pattinson
sem Cobain
ROBERT PATTINSON
Pattinson leikur rokkar-
ann Kurt Cobain í nýrri
mynd um ævi hans.