Fréttablaðið - 10.04.2010, Síða 94
54 10. apríl 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Leikkonan Gwyneth Paltrow átti í
miklum vandræðum með tilfinn-
ingar sínar eftir að hún eignaðist
annað barn sitt, Moses, með eig-
inmanni sínum Chris Martin úr
Coldplay.
„Þegar ég var hvað lægst niðri
var ég eins og vélmenni. Ég hafði
engar tilfinningar. Ég bar engar
móðurlegar tilfinningar til hans.
Þetta var hræðileg upplifun,“
sagði Paltrow í viðtali við tíma-
ritið Vogue. „Ég hugsaði ekkert
um að skaða hann eða neitt slíkt
en ég náði engum tengslum við
hann. Enn þann dag í dag þegar ég
horfi á myndir af honum þriggja
mánaða þá man ég ekki eftir þessu
tímabili.“
Paltrow vildi ekki viðurkenna að
hún ætti við vandamál að stríða fyrr
en Martin ræddi við hana. „Ég hélt
bara áfram eins og ekkert hefði í
skorist en mér leið ömurlega. Chris
sagði við mig að eitthvað væri að.
Það var mikill léttir því það stað-
festi að ég væri ekki sú eina sem
áttaði mig á þessu,“ sagði hún. „Þá
komst ég á beinu brautina. Ég fór að
stunda líkamsrækt og fór að hugsa
um að vinna á nýjan leik.“
Var tilfinningalaust vélmenni
GWYNETH PALTROW Átti í vandræðum
með tilfinningar sínar eftir að hún eign-
aðist sitt annað barn.
Jason Valenta starfar sem
útsendari á vegum umboðs-
skrifstofunnar Next, sem
er ein elsta og virtasta
umboðsskrifstofa heims.
Hann er staddur hér á landi
til að eiga fund með Andreu
Brabin, einum eigenda
Eskimo, og fyrirsætunni
Brynju Jónbjarnardóttur,
en Next hefur boðið henni
svokallaðan heimssamning
sem gæti komið henni á
toppinn í tískuheiminum.
Jason ferðast um heiminn á vegum
Next í leit að næstu ofurfyrirsætu
og hefur meðal annars uppgötvað
stúlkur á borð við Abbey Lee, sem
er andlit tískuhússins Chanel og í
tíunda sæti yfir fimmtíu vinsæl-
ustu fyrirsætur heims.
„Íslenskar stúlkur eru með alveg
einstakt útlit og alveg sérstaklega
fallega húð sem ég held að sé vegna
þess að þær fá ekki jafn mikla sól
og margar aðrar. Það sem umboðs-
skrifstofur eru að leita að í dag eru
stúlkur með ákveðin sérkenni, sem
sagt fallegar en ekki of venjuleg-
ar, og svo þarf persónuleikinn að
vera sterkur svo þær skeri sig úr,“
útskýrir Jason. Hann segir Brynju,
sem er 16 ára, hafa það sem þarf
til að geta náð langt innan tísku-
bransans og útilokar ekki að hún
gæti orðið á meðal þeirra fremstu í
framtíðinni. „Hún er alveg einstök
og hefur rétta útlitið til að ná alla
leið. Ég kom hingað sérstaklega
til að ræða við hana og komast að
því hvaða væntingar og óskir hún
hefur. Hún er mjög ung enn og það
getur verið erfitt fyrir svo ungar
stúlkur að dvelja svona lengi að
heiman.“
Aðspurður segir Jason tísku-
bransann vera erfiðan sé fólk ekki
opið fyrir ferðalögum og miklu
flakki. „Maður þarf að vera mjög
opinn því í þessum bransa þarf
maður að ferðast víða og starfa
með fólki frá ýmsum löndum og
menningarheimum, en ef þú hefur
gaman af því að ferðast og heim-
sækja nýja staði er þetta algjört
draumastarf.“
Þetta er í annað sinn sem Jason
sækir Ísland heim og segist hann
helst vilja heimsækja landið árlega.
„Ég hef afskaplega gaman af því
að heimsækja Ísland og helst vildi
ég koma hingað minnst einu sinni á
ári. Mér finnst gaman að rölta um
miðborgina og taka myndir af því
sem fyrir augu ber og svo finnst
mér líka mjög notalegt að fara í
Bláa lónið,“ segir hann að lokum.
sara@frettabladid.is
Telur að Brynja geti náð á
toppinn í tískuheiminum
BRYNJA JÓNBJARNARDÓTTIR
LEITAR AÐ OFURFYRIRSÆTUM Jason Valenta starfar á vegum umboðsskrifstofunnar Next, sem er ein elsta og virtasta umboðs-
skrifstofa heims. Hann telur að Brynja Jónbjarnardóttir gæti náð langt innan tískuheimsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
> MEÐ BÖRNIN
Þrátt fyrir að leikkonan Sandra Bull-
ock hafi flutt út frá eiginmanni sínum
til fimm ára eftir að upp komst um
framhjáhald hans, dvelja börn-
in hans þrjú hjá henni þessa dag-
ana. Bullock hafði hugsað
sér að ættleiða yngstu dótt-
ur Jesse James á meðan allt
lék í lyndi.
Bandaríski leikstjórinn Quentin Taran-
tino hefur bæst í hóp þeirra sem vilja
bjarga Lindsay Lohan frá sjálfstortím-
ingu. Lindsay hefur ekki gert neitt af viti
á hvíta tjaldinu undanfarin ár og hefur
aðallega verið á forsíðum slúðurblaðanna
fyrir taumlaust djamm og villt líferni.
Tarantino hefur hins vegar mikinn
hug á að reisa við feril þessarar banda-
rísku leikkonu sem sló eftirminnilega í
gegn í kvikmyndinni Mean Girls. Heim-
ildarmaður vefsíðunnar Absoulut Noew
lætur hafa eftir sér að Lindsay sé leik-
kona sem Tarantino sé hrifin af. „Það
býst enginn við því að Lindsay muni
nokkurn tíma leika í alvörumynd hér
eftir. En hann hefur hana í huga fyrir
hlutverk sem hann álítur að yrði full-
komið fyrir hana,“ hefur vefsíðan eftir
leikstjóranum.
Tarantino hefur áður reist gamla
og gleymda leikara upp úr ösku-
stónni. Pam Grier hafði varla sést
þegar hún fór á kostum í Jackie
Brown en þekktasta endurkoman er
sennilega þegar Tarantino gróf sjálf-
an John Travolta upp og gerði
hann aftur að stjörnu sem
Vincent Vega í Pulp
Fiction. Lindsay bregð-
ur næst fyrir í kvik-
myndinni Machete á
móti Jessicu Alba og
Robert De Niro.
Tarantino vill bjarga Lindsay
ÓLÍKINDATÓL Tarantino og Lohan
ættu eflaust vel saman enda þekkt
fyrir að vera mikil ólíkindatól.
Nýtt 4 vikna byrjendanámskeið
Innifalið í kortum eru allir opnir tímar
ásamt þeirri þjónustu sem boðið er
upp á í Veggsport.
Stórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport)
Sími: 695 8464 og 772 1025
www.jogastudio.org
Persónuleg jógastöð
hefst 12. apríl. Skráning hafi n í síma
695 8464 / 772 1025 eða á jogastudio.org
• Hot jóga • Hatha jóga • Byrjendanámskeið
• Krakkajóganámskeið
Sjálfshjálparbók handa öllum þeim sem einhvern tíma
hafa efast um ríkjandi hugmyndir.
Ögrandi bók sem afhjúpar hræsnina í samfélaginu
en er jafnframt frábærlega skemmtileg.
Fjöldi ljósmynda eftir Ingólf Júlíusson.
EKKI LITA ÚT FYRIR
SKRUDDA
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…