Fréttablaðið - 10.04.2010, Side 102
62 10. apríl 2010 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Viðureignir Real Madr-
id og Barcelona eru meðal þeirra
allra stærstu í fótboltaheiminum.
Liðin mætast í kvöld og er þessi
risaleikur enn stærri en oft áður
að þessu sinni. Aðeins átta umferð-
ir eru eftir af tímabilinu og eru
liðin jöfn að stigum á toppi deild-
arinnar, bæði með 77 stig.
Ef liðin enda jöfn munu innbyrð-
is viðureignir þeirra á milli skera
úr um hvort liðið vinnur titilinn.
Barcelona nægir jafntefli í kvöld
til að vera ofan á í þeirri baráttu
þar sem liðið vann 1-0 sigur á
Nývangi fyrr á leiktíðinni.
Börsungum hefur vegnað vel í
El Clasico að undanförnu og unnið
síðustu þrjár viðureignir, þar á
meðal er eftirminnilegi 6-2 sigur-
inn á Santiago Bernabeu á síðasta
tímabili. Sá sigur verður líklega
seint endurtekinn en Madríding-
ar hafa unnið alla heimaleiki sína
í deildinni á þessu tímabili.
Í aðalhlutverki í kvöld verða þeir
Lionel Messi og Cristiano Ronaldo,
tveir af allra bestu leikmönnum
heims. „Messi hefur átt ótrúlegt
tímabil. Hann er í frábæru formi
og er meðal bestu leikmanna
heims,“ sagði Ronaldo á blaða-
mannafundi. „Barcelona er samt
ekki bara Messi. Liðsfélagar hans
og þjálfari eiga líka hrós skilið.“
Ljóst er að Börsungar þurfa
að hafa góðar gætur á Ronaldo,
reyna að forðast það að hann kom-
ist í stöðuna einn gegn einum og
ekki gefa aukaspyrnur rétt fyrir
utan teiginn. Sömuleiðis þarf Real
Madrid að reyna að stöðva töfra-
manninn Messi með einum eða
öðrum hætti.
Hristo Stoichkov, gamla goð-
sögnin hjá Barcelona, telur að eini
möguleiki Real á að stöðva Messi
sé að sparka hann niður. „Ef þeir
sparka hann ekki niður sé ég ekki
hvernig eigi að stöðva hann,“ sagði
Stoichkov. „Ég tel þetta síðasta
tækifærið fyrir Real Madrid til
að liðið geti unnið titilinn. Ef þeir
ná ekki að leggja Barca geta þeir
kysst titilvonirnar bless.“
Alvaro Arbeloa gæti fengið
verkefnið stóra að reyna að stöðva
Messi en honum hefur áður geng-
ið ágætlega með hann. Miðað við
spilamennsku Messi þessa dag-
ana virðist hann þó óstöðvandi
sama hvað reynt er að gera gegn
honum.
Fjölmargar aðrar stórstjörnur
verða í eldlínunni en Messi og Ron-
aldo. Ljóst er þó að Zlatan Ibra-
himovic, sem skoraði sigurmark-
ið þegar liðin mættust á Nývangi,
verður fjarri góðu gamni vegna
meiðsla.
Barcelona vann glæsilegan
sigur á Arsenal fyrr í vikunni
en þá voru miðverðirnir Gerard
Pique og Carles Puyol í leikbanni
en þeir snúa nú aftur inn í liðið.
Vinstri bakvörðurinn Eric Abidal
er á meiðslalistanum og því líklegt
að Maxwell leiki í hans stöðu.
Real Madrid verður án Brasilíu-
mannsins Kaka sem er ekki orðinn
leikfær eftir meiðsli. Xabi Alonso
er tæpur en mun líklega spila.
Leikurinn verður sérstakur fyrir
Guti.
„Í dag eru engar líkur á því að
ég verði áfram hjá Real Madrid.
Þetta verður líklega minn síðasti
El Clasico,“ segir Guti sem verður
34 ára á árinu. Hann hefur þjónað
Real Madrid lengi en hyggst fara
annað eftir tímabilið.
Pep Guardiola segir leikinn
ekki vera úrslitaleik. „Við munum
samt fara í hann eins og þetta sé
úrslitaleikur. Ef við töpum komum
við andstæðingum okkar í lyk-
ilstöðu. Ef það væru þrír leikir
eftir af tímabilinu myndi ég segja
að leikurinn myndi ráða úrslitum.
En það eru átta eftir svo leikur-
inn telst mjög mikilvægur,“ segir
Guardiola. elvargeir@frettabladid.is
Risaslagurinn stærri en oftast áður
Það verður sannkölluð fótboltaveisla í Madríd í kvöld þegar Real Madrid tekur á móti Barcelona. Þessi
risalið skarta fremstu leikmönnum heims og eru hnífjöfn á toppi spænsku deildarinnar.
Í FREMSTU RÖÐ Enginn neitar því að Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru tveir af
fremstu leikmönnum samtímans. Þeir stíga á stóra sviðið í kvöld. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Meiðsli Hermanns Hreið-
arssonar koma í veg fyrir að boðið
verði upp á Íslendingaslag í undan-
úrslitum ensku bikarkeppninnar.
Portsmouth og Tottenham mætast
á Wembley og mun sigurvegarinn
leika úrslitaleikinn gegn því liði
sem hefur betur í viðureign Aston
Villa og Chelsea í dag. Flestir spá
því að úrslitaleikurinn verði á milli
Tottenham og Chelsea.
„Ég hef aldrei áður spilað á
Wembley og get ekki beðið eftir
þessum leik,“ segir Aaron Moko-
ena, leikmaður Portsmouth. „Þessi
völlur er sögufrægur, allir í heim-
inum þekkja Wembley.“
Tímabilið hefur verið samfelld
sorgarsaga hjá Portsmouth. Félag-
ið var sett í greiðslustöðvun, er á
hraðleið niður um deild og fjöldi
fólks missti vinnu sína hjá því. Í
bikarkeppninni hefur hins vegar
allt gengið í haginn og er hún eini
ljósi punkturinn á leiktíðinni.
„Það er frábært fyrir alla sem
tengjast Portsmouth að félagið sé
að fara að keppa til undanúrslita í
bikarnum, sérstaklega fyrir stuðn-
ingsmennina sem hafa átt erfiðan
vetur. Þeir eiga betra skilið,“ segir
Mokoena sem hefur reynst liðinu
mikilvægur í keppninni.
Harry Redknapp, knattspyrnu-
stjóri Tottenham, mun bíða með
það fram á síðustu stundu að til-
kynna lið sitt fyrir leikinn.
Eiður Smári Guðjohnsen hefur
byrjað síðustu leiki en aðrir sókn-
armenn liðsins eru að snúa úr
meiðslum og Redknapp hefur ýmsa
kosti í sókninni.
Meiðsli miðvarða liðsins er hins
vegar áhyggjuefni fyrir Redknapp
en óvíst er hver mun leika við hlið
Sébastien Bassong.
Í dag verður stórleikur milli
Aston Villa og Chelsea. Síðast
þegar liðin mættust var þó engin
spenna því Chelsea slátraði leikn-
um 7-1 í deildinni. Það má búast
við því að Martin O’Neill, stjóri
Villa, komi með aðrar áherslur að
þessu sinni.
Hann verður þó líklega án varn-
armannsins Richard Dunne sem
hefur átt við meiðsli að stríða síð-
ustu vikur. Góðu fréttirnar fyrir
Villa eru þær að James Milner gat
æft af krafti og ætti að vera klár í
slaginn. - egm
Portsmouth getur gleymt vonlausri stöðu í deildinni á morgun þegar liðið mætir Tottenham í bikarnum:
Ljósi punkturinn á hörmungartímabili
EIÐUR SMÁRI Fær ekki að kljást við
Hermann Hreiðarsson á morgun.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester United,
segir að Wayne Rooney verði
ekki með liðinu gegn Blackburn á
morgun í ensku úrvalsdeildinni.
Rooney var mættur í slaginn
gegn FC Bayern í Meistara-
deildinni en byrjaði að haltra í
fyrri hálfleiknum og fór af velli
snemma í þeim síðari.
Ferguson segir meiðsli Rooney
aðeins smávægileg en leikmað-
urinn verði þó fjarri góðu gamni
í næsta leik. Hann ætti að vera
orðinn klár fyrir nágrannaslag-
inn gegn City 17. apríl. - egm
Wayne Rooney ekki klár:
Spilar ekki
gegn Blackburn
MEIDDUR Rooney þarf að hvíla ökklann
um helgina. NORDICPHTOS/GETTY
GOLF Tiger Woods lék aftur vel
á öðrum keppnisdegi á Masters-
mótinu í golfi. Tiger kom í hús á
70 höggum, eða tveim undir pari
og er sem stendur í þriðja sæti
ásamt KJ Choi.
Tiger fékk 14 pör í dag, þrjá
fugla og einn skolla. Hann er því
samtals á 6 höggum undir pari.
Ian Poulter lék vel í gær og er
á 8 höggum undir pari og hann
hefur lokið leik í dag.
Forystusauðurinn frá því í gær,
Fred Couples, missti flugið í dag
og lék á 75 höggum eða 3 höggum
yfir pari.
Gamla brýnið Sandy Lyle lék
þó verst allra í gær en hann
missti algjörlega flugið og kom í
hús á 14 höggum yfir pari. - hbg
Masters-mótið í golfi:
Tiger spilaði vel
NÝR OG LÉTTARI TIGER Tiger Woods
heilsar hér áhorfendum í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY