Fréttablaðið - 10.04.2010, Blaðsíða 110
70 10. apríl 2010 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. skák, 6. snæddi, 8. traust, 9. farfa,
11. klaki, 12. Þvílíkt, 14. skrölt, 16. átt,
17. fiskur, 18. fálm, 20. samtök, 21.
atlaga.
LÓÐRÉTT
1. elds, 3. ólæti, 4. stærðfræðihugtak,
5. sníkjudýr, 7. andsvar, 10. tæfa, 13.
knæpa, 15. áætlun, 16. fyrirboði, 19.
á fæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. tafl, 6. át, 8. trú, 9. lit, 11.
ís, 12. slíkt, 14. skrap, 16. sv, 17. áll,
18. pat, 20. aa, 21. árás.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. at, 4. frítala, 5.
lús, 7. tilsvar, 10. tík, 13. krá, 15. plan,
16. spá, 19. tá.
„Þetta er ótrúlega skemmtilegt og spennandi,“
segir Rebekka Bryndís Björnsdóttir í Hjaltalín.
Hljómsveitin er að undirbúa nýtt myndband við
lagið Sweet Impressions í samstarfi við leikhóp-
inn Vesturport. Leikstjóri verður Árni Þór Jónsson,
eða Zúri gæinn, og var handritið unnið af Árna í
samvinnu við meðlimi Hjaltalíns. Lagið er tekið af
annarri plötu Hjaltalíns, Terminal, sem kemur út í
Evrópu 24. maí.
„Við höfum ekki verið nógu dugleg í tónlistar-
myndbandastússinu en þetta er allt að fara af stað
núna,“ segir Rebekka. Tökur hefjast í Reykjavík í
lok apríl og á meðal leikara verður Gísli Örn Garð-
arsson. Að sögn Rebekku verður myndbandið frek-
ar myrkt en meira vildi hún ekki tjá sig um sögu-
þráðinn.
Hjaltalín er með fleiri járn í eldinum því tónleik-
ar með Sinfóníuhljómsveit Íslands eru fyrirhug-
aðir 16. júní. Stjórnandi verður Daníel Bjarnason,
sem nýverið hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin.
„Þetta er algjör frumraun fyrir okkur. Við erum
búin að spila með kammersveit en það verður ótrú-
lega skemmtilegt að vera með Sinfóníuhljómsveit
Íslands,“ segir hún. Hjaltalín ætlar að nota tæki-
færið og flytja nokkur ný lög á tónleikunum.
Næstu tónleikar Hjaltalíns verða á Rósenberg
í kvöld klukkan 22 og er miðaverð 2.000 krónur. Í
sumar spilar hljómsveitin bæði erlendis og hér á
landi. Meðal annars kemur hún fram á sumarsól-
stöðuhátíð í Garði, Þjóðlagahátíð á Siglufirði og á
Lunga á Seyðisfirði. - fb
Vinna með Vesturporti og Sinfó
HJALTALÍN Hljómsveitin Hjaltalín ætlar að taka upp nýtt mynd-
band með Vesturporti. MYND/HÖRÐUR SVEINSSON
Nú styttist í að flautað
verði til leiks á HM í
fótbolta sem fer fram í
Suður-Afríku í sumar.
Fjölmiðlamaðurinn
Þorsteinn Joð verður
með sína sívinsælu
þætti um
mótið, eins
og síðustu
stórmót,
og byrjar
einnig með undirbúningsþætti um
miðjan maí. Þorsteini til halds og
trausts í HM-þáttunum verða Pétur
Marteinsson, Auðun Helgason og
markmaðurinn Hjörvar Hafliðason,
en sá síðastnefndi hefur vakið
mikla athygli fyrir hispurslausa og
hreinskilna gagnrýni á íþróttina
þegar hann hefur verið kallaður til
sem álitsgjafi …
Margir hafa velt fyrir sér hver
taki að sér að lýsa leikjum þessa
stærsta sjónvarpsviðburðar allra
tíma. Hjá RÚV
stendur ekki
til að leita til
utanaðkomandi
sparkspekinga til
þess og munu því
væntanlega strák-
arnir á íþrótta-
deildinni, þeir
Adolf Ingi
Erlingsson, Hjörtur Hjartarson og
Ásgeir Erlendsson skipta með sér
heiðrinum.
Og enn meira um HM. Sú einstaka
staða er komin upp að RÚV og
Stöð 2 sport skipta með sér leikj-
um keppninnar. RÚV á réttinn á
keppninni en er með þessu að sjá
til þess að eldheitar fótboltabullur
geti séð fleiri leiki. Sjónvarps-
stöðvarnar verða þó væntanlega
í samkeppni á öðru
sviði, þar sem búast
má við að Hörður
Magnússon og
félagar á Stöð 2
sport verði með
sinn eigin þátt þar
sem farið verður
yfir leikina.
- afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta verður svakalega gaman.
Við höfum fengið mikið af boðum
frá Eurovision-klúbbum úti um
alla Evrópu en ætlum að vera
með í tveimur; einu í Brussel og
öðru í London,“ segir Hera Björk
Þórhallsdóttir, fulltrúi Íslands í
Eurovision-keppninni sem fram
fer í Ósló í maí.
Hera mun meðal annars troða
upp á skemmtistaðnum The
Shadow Lounge í London 2. maí
ásamt fulltrúa Írlands, Niamh
Kavanagh. Kynnir kvöldsins er
hinn virti sjónvarpsmaður BBC,
Paddy O‘Connoll en fyrirmynd-
in að þessari Eurovision-veislu er
fengin frá Eurovision-veislu Páls
Óskars á Nasa.
Þetta er í þriðja sinn sem teit-
ið í London er haldið. Það er
kannski engin tilviljun að Heru
skyldi vera boðið, bæði Euro-
bandið og Jóhanna Guðrún sungu
fyrir Bretana á sínum tíma og
svo er breski Eurovision-aðdá-
endaklúbburinn bjartsýnn á
gott gengi Íslands; þeir spá lagi
Heru og Örlygs Smára öðru
sæti. Það kemur kannski engum
á óvart að Kavanagh er spáð
sigri en hún er feykilega vinsæl
á Bretlandseyjum.
Hera og Örlygur sitja ekki með
hendur í skauti og bíða eftir flug-
ferðinni til Óslóar því þau eru í
óða önn að leggja lokahönd á heila
plötu sem koma á út í maí.
„Þetta verður svona nafn-
spjaldið okkar þarna út, okkar
eigin útrás. Við ætlum að leyfa
þeim sem vilja að heyra hvað við
erum að gera,“ útskýrir Hera og
bætir því við að innihald plötunn-
ar sé í takt við hinn dansvæna
slagara Je ne sais quoi. - fgg
Bretarnir hrifnir af Heru Björk
SYNGUR Í LONDON Hera Björk
syngur í Eurovision-teiti breska
Eurovision-klúbbsins ásamt fulltrúa
Íra, Niamh Kavangh. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Skúli Z. Gestsson
Aldur: 27 ára.
Starf: Kennari og
tónlistarmaður.
Foreldrar: Gestur
Gunnarsson flugvirki
og Helga Skúladótt-
ir, helsti stuðnings-
maður Diktu.
Fjölskylda: Í
sambúð með Auði
Önnu Jónsdóttur,
háskólanema. Þau eiga eins árs
dóttur sem heitir Iðunn Mattea.
Búseta: 104 Reykjavík.
Stjörnumerki: Ljón.
Skúli er bassaleikari hljómsveitarinnar
Diktu sem á vinsælasta lag landsins,
Thank You.
„Þátttakan var mjög góð og ég
fékk eiginlega of margar umsókn-
ir,“ segir danski tískuljósmyndar-
inn Søren Rønholt.
Mikla athygli vakti á miðviku-
dag þegar Søren auglýsti eftir tíu
íslenskum konum til að sitja nakt-
ar fyrir á heimilum sínum. Hann
vinnur að bók um konur á Norður-
löndunum og ætlar að taka myndir
af tíu dönskum, íslenskum, sænsk-
um, finnskum og norskum konum.
Søren er tískuljósmyndari í heima-
landi sínu og hefur tekið myndir
af mörgum af helstu stjörnum
landsins.
„Fyrir nokkrum árum fór ég
að velta fyrir mér hvað væri að
staðalímyndunum í tískubransan-
um,“ segir Søren spurður um til-
urð verkefnisins. „Myndvinnsla og
notkun á Photoshop fór úr böndun-
um og ég vildi skoða hvernig lík-
amar kvenna á Norðurlöndunum
líta út í raun og veru.“
Ertu búinn að velja tíu íslenskar
konur í verkefnið?
„Já, ég er búinn að velja konurn-
ar. Það getur verið erfið vinna því
þær eru að fara að sitja fyrir nakt-
ar og þekkja mig ekki neitt. Þannig
að ég þarf auðvitað að ræða mikið
við þær.“
Á hvaða aldri eru þær?
„Konurnar eru á aldrinum 22 til
62 ára.“
Søren segir að verkefnið sé ekki
aðeins heimild um útlit kvenfólks-
ins á Norðurlöndunum heldur einn-
ig um heimili fólks og umhverfi.
„Bókin verður heimild um tímana
okkar,“ segir hann. „Myndirnar
sýna hvernig við lítum út – hvern-
ig danskar og íslenskar konur líta
út á heimilum sínum árið 2010.“
Engum myndvinnslubrögðum
eða Photoshop-göldrum verður
beitt til að fegra myndirnar, en
Søren ítrekar þó að þær eigi að
líta mjög vel út. „Myndirnar verða
ofurnáttúrulegar,“ segir hann.
Settirðu konunum einhver
líkamleg skilyrði?
„Nei, ekkert svoleiðis. Einu skil-
yrðin voru þau að konurnar væru
18 ára eða eldri og vildu taka þátt
í verkefninu. Það er mjög mikil-
vægt.“
Søren finnur fyrir miklum
áhuga á verkefninu hér á landi og
segir að það komi sér skemmtilega
á óvart. „Ég vona að ég geti sýnt
myndirnar á Íslandi þegar að því
kemur og mun gera allt sem ég get
til þess að það verði að veruleika,“
segir hann að lokum.
atlifannar@frettabladid.is
SØREN RØNHOLT: ÍSLENSKAR KONUR Í DANSKRI LJÓSMYNDABÓK
Tíu konur á aldrinum 22
til 62 ára sitja naktar fyrir
Opið í IÐU um helgina.
Laugardag 9-22, mánudag 2. í páskum 10-22, lokað páskadag.
Sígild fermingar
gjöf
Viku-
tilboð
7.950
5.990,-
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8
1. Fjórar.
2. Garðar Eyland.
3. Dræsu.
SPEGLAR NAKINN NÚTÍMA Søren
Rønholt kom til landsins í gær og
dvelur hér til 18. apríl. Hann mun
nýta tímann í að taka nektarmyndir
af tíu íslenskum konum á heimilum
þeirra.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N